Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 66
Helgin 28.-30. nóvember 201466 tíska
S FCB
YOUR TIME IS NOW.
MORE THAN A CLUB. MORE THAN A WATCH.
FC BARCELONA OPINBER SAMSTARFSAÐILI
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Stílhreint og nýtískulegt
sjálfvindu sportúr í hæstu
gæðum, þekkt fyrir
framúrskarandi nákvæmni.
U pphafið að þessu ævin-týri má rekja til þess að ég var ekki nógu ánægð með
þann stað sem ég var á og langaði
til að breyta algjörlega til,“ segir
Hrefna, eða Dissý eins og hún er
alltaf kölluð. „Ég fékk allt í einu
mikla þörf fyrir að taka sjálfa mig
algjörlega í gegn og í upphafi sner-
ist það að mataræði og hreyfingu.
Smátt og smátt lærði ég betur inn
á það hvaða áhrif matur og hreyf-
ing hefur á okkur og varð þá í leið-
inni meðvitaðari um áhrif okkar
á umhverfið,“ segir Dissý sem
líkir þessari lífsstílsbreytingu við
hreinsun. „Ég bara varð fyrir vit-
undarvakningu. Ég get engan veg-
inn sagt að ég sé fullkomin og það
er margt sem ég gæti gert betur en
mér finnst allavega mikilvægt að
Hvert skref skiptir máli
Hrefna Gísladóttir segist hafa orðið fyrir vitundarvakningu
þegar hún ákvað að breyta um lífsstíl. Hún tók ekki bara til í
ísskápnum heldur líka í fataskápnum og ákvað svo í kjölfarið
að opna tískuverslunina ORG sem selur föt og fylgihluti úr
lífrænum efnum. Í dag lítur Hrefna á hreyfingu, mataræði,
snyrtivörur og föt sem hluta af stærri heild.
Tíska FöT og FylgihlUTir úr líFrænUm eFnUm
Kowtow er nýsjálensk hönnun. Allar þeirra vörur eru úr bómull með lífræna vottun
og sanngirnisvottun (certified organic and fair trade.)
Önnur merki í ORG, eins og Alchemist, Betty Browne og Monkee genes gallabuxur,
eru líka vottuð lífræn og sanngjörn.
Zuii snyrtivörurnar eru lífrænar vörur, framleiddar úr blómum í Ástralíu. Við fram-
leiðslu þeirra eru ekki gerðar tilraunir á dýrum og þær innihalda ekki paraben.