Fréttatíminn - 28.11.2014, Side 88
RitdómuR mói hRekkjusvín - misskilinn snillinguR
mói hrekkjusvín
- Misskilinn snillingur
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Æðisleg og fyndin bók
A llar persón-urnar höfðu fyndið eða
skemmtilegt hlutverk.
Mér fannst til dæmis
danski kallinn í flotta
tjaldinu ein af fyndn-
ustu persónunum,
eins og þegar að hann
sagði fyrst; Dí skal
ikki gera tetta! Þá
hélt ég að höfundur-
inn, Kristín Helga,
hafði annað hvort
gert prentvillu eða
að hún hefði sofnað á
lyklaborðinu. Og mér
fannst líka myndirnar
eftir Lindu afskaplega
fallegar og geymdu
svo mikla töfra.
Mér fannst annað
hvort Mói (Mar-
teinn) eða Danski
Rassi (Rasmuss)
vera skemmtilegastir
í þessari bók. Og
mér fannst líka hann
Byssu Jói rosa mikil-
vægur í þessari bók.
Og skemmtilegt hvað
Orri og Mói eru mikið
saman og gott að þeir
fara ekkert að rífast
eða neitt þannig. Mér
fannst sérstaklega
fyndið þegar að þeir
voru að gera sig fína
fyrir opinberu heim-
sóknina hjá forset-
anum og þeir rökuðu
sig með ekkert skegg!
Haha. Og þessi góða
þjónustukona var svo
indæl og ég held að
höfundarnir, Linda
og Kristín, séu líka
indælar og fyndnar
eins og þessi bók.
Og ef þið ætlið
að hætta að búa til
bækur þá er svarið:
Nei punktur og pasta
og bannað að breyta.
Og ef þið búið til aðra
misskilinn snillingur
myndi ég vilja hafa
þennan danska kall
sem var svo reiður
alltaf greyið, í næstu
bók. Mér fannst þetta
æðisleg bók og fyndin
en ekki samt mikil
spennusaga, bara
svona gamansaga
og mér finnst að hún
megi koma í flestar
bókabúðir á Íslandi.
Áróra
Jónsdóttir
10 ára
tónlist PlAtA til styRktAR fóRnARlömbum stRíðsins í PAlestínu
Breytingin
byrjar hjá
okkur
sjálfum
Þ að er gaman að gefa af sér,“ segir Eva Einarsdóttir sem var ein af 6 borgarfulltrúum
Besta flokksins sáluga sem gengu
inn í Bjarta framtíð í kosningunum í
vor. „Það kom mér á óvart hvað póli-
tík ætti vel við mig. Ég er á því að
hver sem er gæti plumað sig í póli-
tík þar sem þetta eru fjölbreytt hlut-
verk sem maður gegnir,“ segir Eva
sem á dögunum ákvað að gefa út
plötu með nokkrum hljómsveitum
og listamönnum og gefa ágóðann
til fórnarlamba stríðsins í Palestínu.
„Ég lét málið mig varða. Þetta
stríð, sem var áberandi síðasta sum-
ar, skyggði mjög á annars ágætt
sumar. Það hefur verið vitað lengi
hvernig ástandið er en ég held að
almenningur hafi vaknað í sumar,
segir Eva. Ég var dugleg að mæta
með manni mínum og börnum á
mótmælin, en mig langaði að gera
eitthvað meira,“ segir Eva sem gaf
út svipaða safnskífu undir nafninu
Frjáls Palestína fyrir 10 árum. „Ég
ákvað að endurtaka leikinn. Það er
ekki gleðileg ástæða, en samt er það
auðveldara nú vegna þess að það er
meiri vitund meðal fólks,“ segir hún.
Eva er tveggja barna móðir, gift
Eldari Ástþórssyni, sem vinnur hjá
CCP, og eru þau bæði með brenn-
Eva Einarsdóttir varaborgarfulltrúi stendur að útgáfu safnplötu til styrktar fórnarlömbum stríðsins í Palestínu. Baráttan er
mikið til umræðu á heimilinu og sonur hennar var farinn að halda að hann hefði komið til Palestínu. Ljósmynd/Hari
n GusGus
n FM Belfast
n Sóley
n Cell 7
n Mammút
n Mugison
n Múm
n Ojba Rasta
n Ólafur Arnalds
n Prins Póló
n Sin Fang
n Snorri Helgason
n Uni Stefson
n Ghostigital
n Borkó
n For A Minor
Reflection
n Moses Hightower
n Hjaltalín
n Samaris
Flytjendur á safnplötunni Tónlist fyrir GAZA
andi áhuga á mannréttindamálum
af ýmsum toga. „Þetta er mikið rætt
á heimilinu, kannski full mikið því
sonur okkar sagði í skólanum að
hann hefði verið í Palestínu í sum-
ar,“ segir Eva. „Hann tók virkan
þátt í mótmælunum með okkur og
kannski fannst honum bara eins og
hann hefði verið á staðnum. Mann-
réttindi eru eitthvað sem varðar
alla og margar leiðir til þess að taka
þátt. Breytingin byrjar hjá okkur
sjálfum og ég er ekkert hætt,“ segir
Eva sem er menntuð tómstunda- og
félagsmálafræðingur. „Ég ákvað að
demba mér í MBA námið og ætla að
tengja mína fyrri reynslu og nám til
þess að halda áfram að láta gott af
mér leiða,“ segir hún.
Platan Tónlist fyrir GAZA kemur
út í vikunni og á laugardaginn verð-
ur haldið útgáfuhóf á KEX Hostel.
„Það voru fleiri sem vildu vera með
á plötunni, svo það eru margir sem
láta þetta mál sig varða, segir Eva.
Í útgáfuhófinu á laugardaginn,
sem hefst klukkan 16, koma fram
listamennirnir Uni Stefson, Cell7
og Sóley.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Eva Einarsdóttir er
varaborgarfulltrúi
Bjartrar framtíðar og
MBA nemi við Háskól-
ann í Reykjavík. Hún
hefur mikinn áhuga
á réttindamálum
ýmiskonar og ákvað
að gefa út plötu til
styrktar AISHA sam-
tökunum sem sinna
neyðarhjálp við konur
og barnafjölskyldur á
Gaza-svæðinu.
MAGNOLIA skartgeymsla
1.960 kr.
CONCEAL
ósýnilega hillan
Lítil 2.950 kr.
Stór 3.950 kr.
BLACK TIE
bindahengi
2.450 kr.
BOHO
klútahengi
2.950 kr.
TEKK COMpANy
KAupTúN 3
SíMI 564 4400
vEfvErSLuN á www.TEKK.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Fallegar jólagjafir
frá Umbra
BOw-DrESS
skartgeymsla
2.950 kr.
HANGIT hengi fyrir
myndir og minnismiða
4.950 kr.
BIrDIE snagi
3 fuglar í pk.
3.950 kr.
pANE
myndarammi
3.450 kr.
pLATfOrM
skartgeymsla
4.950 kr.
STICKS snagi 5.950 kr.
88 menning Helgin 28.-30. nóvember 2014