Þjóðlíf - 01.12.1988, Side 41
I
ERLENT
og nefndi mörg dæmi um jákvæða þróun í
byggingamálum. Hann hvatti til þess að
meira tillit væri tekið til óska íbúa við hönn-
un húsa og hrifning hans á eldri stílgerðum í
breskri byggingarsögu leyndi sér ekki. Hann
klykkti út með því að segja að hann byggist
ekki við að allir væru honum sammála, en
tilgangurinn væri að örva umræður manna
um þessi efni og umfram allt, að „draga í efa
tískukenningar sérfræðingaveldis sem héldi
því að óbreyttum almenningi að álit hans
skipti ekki máli.“
Umdeildur en vinsæll
Og Karli prins hefur sannarlega tekist að
fá menn til að líta í kringum sig og skiptast á
skoðunum. Blöðin hafa verið uppfull af
greinum á móti en þó oftar með prinsinum
og í sjónvarpinu hefur verið hleypt af stokk-
unum tveim myndaflokkum um húsbygging-
ar og skipulagsmál í Bretlandi. Gagnrýni
Karls hefur yfirleitt verið tekið óstinnt upp af
þeim sem urðu fyrir barðinu á henni — eins
og vonlegt er. Einn þeirra, Peter Palumbo
verktaki, sagði: „Guð blessi prinsinn af
Wales og forði okkur frá dómum prinsins í
byggingarmálum.“
Formaður Hins konunglega breska arki-
tektafélags, Max Hutchinson, hefur svarað
málflutningi Karls prins fullum hálsi. Arki-
tektar eigi ekki einir sök á því sem hefur farið
aflaga, stjórnmálamenn og byggingarverk-
takar bera einnig mikla ábyrgð. Hann hefur
sakað prinsinn um fortíðardýrkun og að vera
úr takt við nútímastrauma. Um byggingar
frá 7. áratugnum sagði hann að yngri kynslóð
arkitekta væri ekkert hrifnari en prinsinn af
mörgu því sem gert var þá og að menn hefðu
lært af mistökunum. Arkitektar ætla eftir
sem áður, segir hann, að taka nýjum hug-
myndum með opnum huga, því einmitt þær
hafa auðgað byggingarlistina frá ómunatíð.
Þrátt fyrir ýmsar aðfinnslur virðist sem
gagnrýni Karls prins hafi hlotið mikinn
hljómgrunn meðal Breta. Skoðanakannanir
sýna að mikill meirihluti landsmanna er
hlynntur gagnrýni hans á húsagerð og arki-
tektúr og rétt sé að hann láti hana uppi á
opinberum vettvangi. Og það er hressileg
tilbreyting að sjá að jafnvel kóngafólk geti
orðið tilefni umræðu sem einhverju máli
skipti í lífi almennings.
Guðmundur Jónsson/
Lundúnum.
ORIENT
ORIENT WATCH CO.,LTD.
Ef þú
gerir kröfur
um gæði
veldu þá
Fallegu
ORIENT
armbandsúrin
hjá úrsmiðnum
ORIENT
ORIENT WATCH CO..LTD.
41