Þjóðlíf - 01.12.1988, Blaðsíða 58
MENNING
Tvífararnir heitir seinni jólamynd Regnbogans. Ástarsaga blönduð sálrænum hryll-
ingi. En hér er hugljúft atriði.
framundan penna Ron Shelton (Under Fire,
The Best of Timer) en hann leikstýrir einnig
og er þetta frumraun hans á því sviði. Ekki
get ég sagt að honum takist síður upp á því
sviði, hann dregur það besta upp úr leikurum
sínum, jafnt aðalleikurum sem aukaleikur-
unt, tímasetning, klippingar og öll mynd-
vinnsla er í úrvalsklassa.
Eins og ég sagði áðan þá er Costner hér í
sínu besta hlutverki. Mjög traustur og trú-
verðugur leikur hjá kauða og ég veit að hann
á eftir að sjarmera rnargar (og marga?) upp
úr skónum (var einhver að tala um Tom
Cruise? Á ekki séns). Costner er hér kominn
í klassa með mönnum eins og Mickey
Rourke og Harrison Ford.
Susan Sarandon sem leikur hina tælandi
(úff) Annie Savoy er einnig alveg frábær,
meiriháttar leikur og skemmtilegt hvernig
hún fer með suðurríkjahreiminn.
Sá sem kemur mest á óvart er Tim Robb-
ins sem Ebby Calvin Laloosh, sem vill helst
láta kalla sig „Kjarna“ (Nuke = Nuclear
Meltdown Point), vegna getu hans í rúminu
með Annie (Crash vill nú helst kalla hann
„Kjöt" (Meat) vegna andlegrar getu hans).
Bull Durham er skemmtileg tilbreyting frá
Hollywood, mannleg gamanmynd. með
skýrum persónum. góðum samtölum, leik,
tónlist, þið bara nefnið það — hún hefur það
(fyrir utan Rambo og svoleiðis senur). Og
það skemmtilegasta er að hún tekur á kynlífi
eins og margar evrópskar myndir gera, ekki
eins og flestar Hollywoodmyndir hafa gert
hingað til, þið vitið, það má varla sjást í
beran rass í Hollywoodmynd án þess að hinir
háu herrar fórni höndunum.
Pess má svo geta svona til gamans að eftir
frumsýningu myndarinnar í Bandaríkjunum,
jókst sala þar á svörtum sokkabeltum um
meira en 15% og var það rekið til sokka-
bandanotkunar Susan Sarandon í Bull Dur-
ham.
GÓÐA SKEMMTUN.
Stjörnugjöf: ***1/2
Amerískur tryllir og kanadísk
hryllingsmynd í Regnboga
Nú. Regnboginn verður með tvær myndir
um hátíðarnar. Önnur er glæný kanadísk
mynd, frá mcistara David Cronenberg, en
hún nefnist á frummálinu „Dead ringers"
(Tvífarar). Hin, er amerískur tryllir frá
„ganila manninum“ Walter Hill (48 HRS,
Warriors, Southern Comfort), þetta er
myndin „Red heat“ (Rauður hiti), með þeim
Arnold Schwarzenegger og Jim Belushi í að-
alhlutverki.
Tvífarar
Kvikmyndaáhugamenn ættu að vera farn-
ir að kannast við snillinginn David Cronen-
berg, þetta er einn frægasti kvikmyndagerð-
armaður Kanada (ásamt Norman Jewison og
Denis Arcand) og hefur hann gert margar
góðar myndir. Cornenberg byrjaði auðvitað
á „low-budget“ myndum og voru fyrstu
myndir hans eins blóðugar og sláturtíð hjá SS
(Rabid, The Brood, Videodrome) en síðan
þá hefur hann slípast til og hryllingurinn hef-
ur minnkað þó Cronenberg minni okkur í
sífellu á að hann sé nú til staðar.
Nýjustu myndir hans, „The Dead Zone“
og „The Fly", hafa yfir sér meiri fágun og eru
mun sálfræðilegri í allri umfjöllun en fyrstu
myndirnar hans. Líkt og Kubrick. þá kannar
Cronenberg dekkri hliðar mannssálarinnar,
en þó á mun mannlegri hátt, ekki á eins
kaldan og miskunnarlausan og hjá Kubrick.
Með „The Dead Zone", „The Fly“ og nýj-
ustu rnynd sinni „Dead Ringers", hefur
Cronenberg skipað sér á bekk með virtustu
kvikmyndaleikstjórum í heiminum í dag.
„Dead Ringers" átti upphaflega að heita
.Twins" eins og bókin sem hún er byggð á, en
þar sem verið var að gera aðra rnynd með því
nafni (með þeim Arnold Schwarzenegger og
Danny DeVito(Nei þetta er ekki grín), þá
skiptu Cronenberg og kompaní urn nafn.
Eins og áður sagði er „Dead Ringers“
byggð á bók, sem aftur er byggð á sönnum
atburðum. Hún fjallar um tvíbura sem báðir
eru leiknir af Jewremy Irons (The Mission).
Þeir eru geysilega samrýmdir. báðir starfa
sem kvensjúkdómalæknar við sömu klíník-
ina og báðir hafa þeir sömu sérgein, lækna
ófrjósemi kvenna. Þrátt fyrir þessa samrými
(þeir búa meira að segja í sömu íbúð), eru
þeir ólíkir. Annar er hálfgerður glaumgosi,
kvennamaður, á auðvelt með að koma sér
áfram, hinn er frekar feiminn og ósjálfstæð-
ari.
Þar kemur að því að í bæinn kemur fræg
leikkona (Genevieve Bujold) til að leika í
sjónvarpsþáttum, hún heimsækir klíníkina
og glaumgosinn verður hrifinn af henni og
fer með henni í bólið, næst sefur hún hjá
þeim feimna (enda ekki auðvelt að þekkja þá
í sundur), þá finnur hún muninn og fréttir
seinna að þeir eru tvíburar. Báðir verða þeir
ástfangnir af henni, en hún velur feimna tví-
burann. Eftir það hrörnar samband tvíbur-
anna og þegar leikkonan þarf að fara í burtu
(lofar að koma aftur), þá fellur feimni tví-
burinn saman, búinn að missa konuna og
farinn að vaxa frá bróður sínum sem ætlar að
hætta við klíníkina og fara að kenna. Hann
leggst í eiturlyf og allt stefnir niður á við fyrir
hann, þá fer hinn tvíburinn að gera sér grein
fyrir ástandinu og. Ef ég þekki Cronen-
berg rétt þá verður enginn Hollywood
„happy ending" á þessari mynd. spennan á
eftir að stíga og stíga.
„Dead Ringers" hefur alls staðar fengið
annað hvort frábæra dóma eða frábæra
dóma. Hún var fyst sýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto (Festival of Festivals,
Kanadamenn eru mjög stoltir af sínum
manni) og þar var fólk hreint út sagt stórhrif-
ið. Eins og áður sagði er Cronenberg farinn
að draga úr hryllingnum og er víst lítið eftir
af honum í þessari nýjustu mynd hans, utan
nokkrar draumasenur sem eru töluvert
krassandi að sögn. En þrátt fyrir að tómat-
sósan fljóti ekki í eins stríðum straumi og
áður þá var David Ansen , kvikmyndagagn-
rýnandi Newsweek, „alveg búinn" þegar
hann gekk út af myndinni. Gaman, gaman.
Við bíðum spennt.
Rauður hiti
Viðbúin, tilbúin. NÚ. Spennum beltin því
að nú er komin enn ein stórborgarspennu-
myndin frá Walter Hill. Svokölluð „buddy-
buddy" mynd. þar sem tvær ólíkar týpur eru
paraðar saman, en það hefur verið töluvert
um þær síðustu árin (48 HRS, Off Limits,
Shoot To Kill. Colors, Trading Places,
o.s.frv., o.s.frv.), og alltaf verður pörunin
frumlegri og frumlegri (bíðið bara þangað til
þið sjáið Twins með DeVito og Schwarzen-
58