Þjóðlíf - 01.12.1988, Side 68
VIÐSKIPTI
Stúlkubörn við vinnu í Schenzhen.
Barnaþrælkun
í Kína
í Kína eru vinnuaðstæður sums
staðar eins og í árdaga kapita-
lismans í iðnríkjunum og þykja
háðulegar fyrir hinn kínverska
kommúnisma. Þessa hefuraðal-
lega þótt gæta á fjórum svoköll-
uðum „fríverslunarsvæðum",
þarsem tugir erlendra fyrirtækja,
sem flest eru frá Hong Kong,
framleiða hvers konar vöru; leik-
föng, fatnað, rafmagnstæki og
sitthvað fleira. Fréttir eru teknar
að birtast í auknum mæli í kín-
verskum fjölmiðlum um, að börn
séu ráðin til vinnu á smánarlaun-
um, t.d. á fríverslunarsvæðinu
Shenzhen í Suður-Kína. Það er
jafnvel talað um að börn allt niður
í 10 ára aldur séu við störf í allt að
15 klukkustundir á dag sjö daga
vikunnar. Auðvitað eru viðkom-
andi atvinnurekendur að brjóta
kínversk lög og alþjóðleg með
þessu háttalagi, en þá bregður
svo við að kommúnistarnir
veigra sér við að ráðast til atlögu
við hina erlendu arðræningja;
þeir vilja ekki flæma burt er-
lendar fjárfestingar...
(Byggt á Spiegel)
Maradona áfram
í Puma-skóm
Þvert á allar spár mun dýrasti
knattspyrnumaður heims, Diego
Maradona, halda áfram að
sækja að marki í Puma-skóm
næstu árin. Langtímasamningur
milli Maradona og framleiðslufyr-
irtækisins rann út árið 1987 og
leit lengi út fyrir að ekkert fram-
hald yrði á samvinnu arg-
entínska snillingsins og fyrirtæk-
isins. Maradona sem er 28 ára
gamall krafðist 10 ára samnings
Gull verður ódýrara
Verð á gulli hefur farið lækkandi
að undanförnu samhliða góðu
gengi í efnahagslífi Vesturlanda.
Fyrir þremur árum kostaði kílóið
af gulli 34.000 v-þýsk mörk en
kostar nú um 24 þúsund. Á
þessu ári hefur verðfallið verið
mest; um áramótin kostaði úns-
an af gulli um 500 dollara en er
komin í um 400 dollara um þess-
ar mundir. Þessi verðþróun hefur
bitnað harkalegast á hvítu minni-
hlutastjórninni í Suður-Afríku,
sem hefur tapað um tveimur mil-
Ijörðum dollara á ársgrundvelli
vegna verðfallsins. Til að freista
þess að hækka verð á gulli á
heimsmarkaði drógu Suður-Afr-
íkumenn saman framleiðsluna
um tíma, en án árangurs, því
önnur lönd juku að sama skapi
sína framleiðslu. Þessi þróun
leiddi einnig til þess að hlutabréf í
með árlegum greiðslum sem
námu tugum milljóna króna.
Fyrirtækið hafði hins vegar
gengið í gegnum erfiðleikatíma-
bil 1986 og ’87 með taprekstri og
bauð því minna fé og styttri
samningstíma. Þetta stóð í járn-
um þar til japanskt verslunarfyrir-
tæki, Itho, leitaði hófanna um
samninga við Maradona. Itho og
Puma gerðu síðan baksamning
til fjögurra ára og mun Maradona
því áfram skora mörk með
Puma-skóm.
Gullið brætt í Suður—Afríku.
gullnámum í Suður-Afríku féllu í
verði um 75%. Og þau eiga eftir
að lækka enn; Bandaríkjaþing
hefur þrýst á umfangsmeiri við-
skiptahömlur á hvítu stjórnina í
Suður Afríku, — sem felast í því
að Bandaríkjamönnum og fyrir-
tækjum þeirra er gert að selja
hlutabréf sín í námum Suður Afr-
íku. Það mun leiða til enn meira
verðfalls hlutabréfanna...
(Byggt á Spiegel/óg)
SENDIBÍLASTÖÐIN HF.
BORGARTÚNI 21 áS SÍMI 25050 áS REYKJAVÍK
68