Þjóðlíf - 01.04.1990, Side 42

Þjóðlíf - 01.04.1990, Side 42
MENNING Constance eiginkona Wildes og sonurinn Cyril.(1889) Wilde með ástmanninum „Bosie“. í borgaralegum klæðum. íprinsabúningi með kunningja s/num fyrir dansleik 1878. „Þcið eru einungis tvœr tragedíur til í lífinu. Önnur er sú að fá ekki það, sem mann langar í, hin er að fá það “ OSCAR WILDE í TÍSKU EINAR HEIMISSON Fyrir skömmu sýndi sjónvarpið víð- frægan þátt um Oscar Wilde, þann alræmda glaumgosa nítjándu aldar, sem að lokum var dæmdur í fangelsi fyrir sam- kynhneigð. Fyrir nokkru kom einnig út ævisaga Wildes eftir Bandaríkjamann að nafni Richard Ellmann. Ellmann helgaði alls rúm 30 ár ævi sinnar því verkefni að rannsaka líf Oscars Wild- es. Hann gerði sér far um að grafa upp hvert einasta smáatriði í lífi þessarar dul- arfullu persónu, sem heillaði og hneyksl- aði yfirstéttarheim Lundúna á öldinni sem leið. Raunar var persóna Wildes feimnis- mál í Bretlandi í áratugi eftir dauða hans. Oscar Wilde fæddist í Dyflinni á írlandi árið 1854. Þegar hann kom til náms í Magdalen-háskólanum í Oxford í Eng- landi árið 1874 hafði hann hins vegar þegar vanið sig af írskum framburði og vakti athygli fyrir flosmjúkt tungutak og rödd, sem þótti hljóma,, eins og fiðla“. Hann varð fljótlega frægt skáld en þó ekki hvað síst fyrir orðheppni sína. Hann komst í tísku meðal virðulegra borgara í Lundúnum Viktóríutímans með gaman- málum sínum, varð eftirsóttur, nánast nauðsynlegur gestur í veislum og öðrum skemmtunum yfirstéttarinnar. Um leið var hann alþekktur glaumgosi og kvenna- maður: ungar Lundúnasnótir féllu fyrir honum á augabragði og hann nýtti sér það út í ystu æsar. Hann fékk sífyllis aðeins 24 ára og beið við það varanlegt tjón á heilsu sinni. Fyrirlestraferð Wildes um Bandaríkin árið 1882 varð víðfræg og þar eins og ann- ars staðar varð hann óopinber leiðtogi tísku,, hins fagra“. Allir vildu sjá hann, þennan fagurkera, sem klæddist mjög áberandi fötum: skartlituðum jökkum, hnébuxum og grænum sokkum. Sjálfur dró hann ekki dul á áhuga sínum á eigin líkama og sagði jafnframt að sér fyndist afturendi sinn fegurstur af öllu, hann væri „eins og selló“ í útliti. Sagt er að á nokkr- um mánuðum í Bandaríkjunum hafi Wil- 42 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.