Þjóðlíf - 01.04.1990, Qupperneq 55
Desember er mánuður jóla-
hátíðarinnar, áramótanna og
alls sem því fylgir. En hann er
ekki einungis hátíðlegur
vegna gjafa, veisluhalda og
fjölskyldufunda því fleira
hangir á ánægjuspýtunni.
Fæðingartölur í mörgum
löndum sanna svo ekki verð-
ur um það efast að bólfarir
fólks eru tíðari og/eða árang-
ursríkari í þeim mánuði en
öðrum mánuðum ársins.
Tveir fróðleiksfúsir menn
við háskólann í Michican í
Bandaríkjunum tóku sér það
fyrir hendur að kanna sveiflur
á fæðingartölum í landinu árin
1942-81. Þeir komust að því að
fæðingar voru tíðari í septem-
ber en öðrum mánuðum, níu
mánuðum eftir hinn frost-
kalda desember. Könnun
þeirra leiddi jafnframt í ljós að
ljósmæður áttu náðugasta daga
í apríl og maí sem þykir benda
til þess að hitamolla í júlí og
ágúst slævi ástríðuhita fólks.
Þó að mismunandi veðurfar
geti skýrt þennan mun, geta
menn sér þess til að hátíðahöld
og gleðistundir jólanna dragi
þann dilk á eftir sér sem lítur
dagsins ljós þremur ársfjórð-
ungum síðar.
Ekki fer hjá því að glöggir
menn sjái nú í hendi sér skýr-
ingu á því að fæðingartala á
íslandi er hærri í öllum mán-
uðum en víðast hvar annars
staðar. Þegar sumarið lætur
vart sjá sig skal engan undra að
fólk noti þær aðferðir sem það
kann til að halda á sér hita,
jafnvel þó að almanakið sýni
sumarmánuð. Tölfræðileg
gögn sýna þó, þrátt fyrir allt,
að fæðingar hér dreifast ekki
jafnt yfir árið, fremur en ann-
ars staðar. Fæðingar eru flest-
ar í maí-júlí, voru t.d. árið
1988 frá 417-445 í þessum
mánuðum en fæstar voru þær
sama ár í nóvember og desem-
ber, 354 og 338. Þessar tölur
eru í samræmi við meðaltal
margra ára.
Á einu ári leggur bavíani að
baki um 2500 kílómetra,
allt á um 32 ferkílómetra
svæði. Ferðirnar eru farnar
til að leita að fæðu, vatni og
hentugum náttstað.
★
Svartklæddur knatt-
spyrnumaður hlýtur oftar
dóm fyrir brot en sá sem er
í búningi í öðrum lit.
Heimsins hæsta einhjóls-
reiðhjóli var einungis hjól-
að 114,6 m. Þess skal getið
til skýringar að það var
31,01 m á hæð. Hjólreiða-
túrinn fór fram í Las Vegas
í Bandaríkjunum.
Á hverri mínútu minnka
regnskógar heimsins svo
nemur um fjörutíu fót-
boltavöllum.
★
Verðandi foreldrar bindast
fóstrinu fastari böndum ef
þeir vita ekki kyn þess.
Áhuginn virðist minnka
þegar sú vitneskja er feng-
Leghitun í stað legnáms
Hópur lækna og annarra vís-
indamanna hefur þróað ein-
falda aðferð til að ráða bót á
asatíðum og þannig forðað
þúsundum kvenna frá því að
þurfa að gangast undir leg-
nám, þ.e. að legið sé fjarlægt.
Aðferðin er fólgin í því að
hita slímhúð legsins.
Asatíðir eru alltíður kvilli og
eins og nafnið gefur til kynna
felst hann í því að tíðablæðing-
ar verða óeðlilega miklar í
hverjum mánuði. Helsta ráð til
úrbóta fram til þessa hefur
verið að fjarlægja legið. Leg-
nám er mikil aðgerð og krefst
langrar sjúkrahússlegu og það
tekur margar vikur að ná full-
um bata. Nokkurra hliðar-
verkana gætir einnig. Á Bret-
landi voru gerðar rúmlega
65.000 legnámsaðgerðir 1985
og kostnaðurinn er umtals-
verður, svo ekki sé minnst á
þjáningar kvennanna.
Hópurinn sem stóð að þró-
un hinnar nýju læknisaðferðar
beitti henni til lækninga á 44
sjálfboðaliðum á aldrinum 35
til 50 ára og 87% þeirra náðu
nokkrum eða algerum bata.
Leghitunin er gerð þannig að
leghálsinn er víkkaður og hit-
ari úr ryðfríðu stáli er færður
gegnum hálsinn og upp í legið.
Hitarinn gefur frá sér hita-
geisla sem hita slímhúð legsins
í um 60°C í um 20 mínútur.
Meðferðin skaðar ekki ná-
læga vefi eða líffæri þar eð hit-
unin nær ekki út fyrir legið.
Auk þess getur sjúklingurinn
farið heim að lokinni meðferð
en þarf ekki að leggjast inn á
sjúkrahús.
Leghitunin virðist ekki hafa
miklar aukaverkanir í för með
sér. Nokkrar konur kvörtuðu
þó undan kviðarholsverkjum
og þær sem verst voru haldnar
þurftu reyndar á sjúkrahúsvist
að halda, en aðeins í eina nótt.
Ekki verður unnt að nota
þessa aðferð almennt fyrr en
frekar hefur verið fylgst með
þeim konum sem undir hana
gengust og tryggt þykir að
henni fylgi ekki óheppilegar
afleiðingar og að hún sé varan-
leg lækning kvillans.
ÞJÓÐLÍF 55