Þjóðlíf - 01.04.1990, Síða 56

Þjóðlíf - 01.04.1990, Síða 56
FIMMTUGT FÉLAG SJÚKRAÞJÁLFARA Félag íslenskra nuddkvenna er orðið að Félagi íslenskra sjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfarar vinna mikið fyrirbyggjandi starfog taka þátt íþví að skapa heilbrigðan lífstíl hjá fólki, segir Guðrún Sigurjónsdóttir formaður félagsins Það tók að fjölga verulega í félaginu þegar námsbraut í sjúkraþjálfun var stofnuð við Háskóla íslands 1976. í dag eru félagsmenn um 220 talsins, en þegar félagið var stofnað fyrir fimmtíu árum voru stofnfélagar átta konur sem lært höfðu sjúkraleikfimi. Nafn á félagið vafðist nokkuð fyrir brautryðjendunum, að lokum völdu þær nafnið Félag ís- lenskra nuddkvenna, sagði Guðrún Sig- urjónsdóttir formaður Félags íslenskra sjúkraþjálfara, sem nú í vor heldur upp á fimmtíu ára starfsafmæli. — Viðhorfið gagnvart sjúkraþjálfun hefur breyst mikið frá því þessar átta kon- ur komu saman á heimili Torfhildar Helgadóttur í Bankastræti og stofnuðu fé- lagið. í þá daga unnu þær hjá nuddlækn- um sem þá voru nokkir starfandi í Reykja- vík. í dag miðast starf sjúkraþjálfarans ekki lengur eingöngu við að nudda eymsli úr sjúklingum heldur miklu frekar að fá hann til að vinna með sjálfan sig. Sjúkra- SÆVAR GUÐBJÖRNSSON þjálfarar vinna mikið fyrirbyggjandi starf og taka þátt í því að skapa heilbrigðan lífstíl hjá fólki, sagði Guðrún. Að sögn Guðrúnar hafa kjaramálin verið helsta verkefnifélagsins frá byrjun. í upphafi var félagið stofnað til þess að reyna að ná samningum við nuddlækna en það var ekki fyrr en eftir sextán ára baráttu að það tókst. í seinni tíð hefur kjarabarátt- an aðallega verið háð við Tryggingarstofn- un ríkisins um það eftir hvaða töxtum sjúkraþjálfarar eiga að fá greitt. Eins og fyrr segir stofnuðu konur félag- ið en þær hafa alla tíð verið í miklum meirihluta þeirra sem hafa stundað sjúkraþjálfun og þannig er það norðan Alpa, í Suður- Evrópu stunda aðallega karlmenn þetta starf en þeim hefur farið jafnt og þétt fjölgandi hin síðari ár hér á landi sem og annars staðar í Norður Evrópu, sagði Guðrún. Fram að því að námsbraut í sjúkraþjálfun var stofnuð við Háskóla íslands sóttu íslenskir sjúkra- þjálfarar nám sitt til Norðurlanda og Bret- lands. Guðrún sagði að enn væri nokkuð í land með að þörfinni fyrir sjúkraþjálfara væri fullnægt. Ástandið væri sæmilegt á Stór- Reykjavíkursvæðinu en víða væri tilfinn- anlegur skortur á þeim úti á landi. Með hvað hætti ætlið þið að minnast þess að 50 ár eru liðin frá því þessar átta konur söfnuðust saman í Bankastræt- inu? — Við göngumst fyrir ráðstefnu 20. — 21.apríl sem ber yfirskriftina „Heilbrigði frá gemaði til grafar“. Þar verður fjallað um ýmis málefni eins og neysluvenjur og mataræði, heilbrigði á vinnustað, reyking- ar, nýfædda barnið, svo fáeinir af þeim fyrirlestrum sem fluttir verða séu nefndir, sagði Guðrún sem verið hefur formaður Félags íslenskra sjúkraþjálfara frá 1988. Félagið er nú í BHMR en hefur bæði átt aðild að BSRB og Alþýðusambandi ís- lands. () 56 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.