Víkurfréttir - 16.04.2009, Side 10
10 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Helgu Sifjar Jónsdóttur
Skagabraut 28
Garði
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Land-
spítalans við Hringbraut, og starfsfólks D-deildar og
heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Guðmundur Örn Ólafsson
Halldór Kr. Guðmundsson,
Magni Freyr Guðmundsson, Kristjana Vilborg Þorvaldsdóttir,
Linda Guðmundsdóttir, Martin King,
Ólafur Örn Guðmundsson, Íris Birgitta Hilmarsdóttir,
Guðmundur Jökull Guðmundsson,
Jón H. Jónsson, Soffía Karlsdóttir,
barnabörn og systkini.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra
er auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
dóttur, ömmu og systur,
Fyrirtækið hefur á að skipa
drífandi og hæfu starfsfólki
sem hefur gaman af því að
takast á við krefjandi og fjöl-
breytt verkefni, segir Pétur í
samtali við Víkurfréttir. Hjá
fyrirtækinu starfa þrír menn
í fullu starfi, auk tveggja í
hlutastarfi. Viðskiptavina-
hópurinn er stór en stærstu
viðskiptavinir Verkmáttar
eru skól ar, ÍAV þjón usta,
Grindin í Grindavík og Bragi
Guðmundsson í Garði. Pétur
segir að fyrirtækið sé mikið
í að reikna tilboð fyrir við-
skiptavini sína og hjálpa þeim
að standa við þau tilboð. Þá
hanni Verkmáttur einnig raf-
lagnir, pípulagnir og burðar-
virki.
Pétur segir að fyrirtæki sínu
hafi gengið vel að vera lægstur
í tilboðum og hafi verið að
ná um 70% þeirra verka sem
tilboð hafi verið gerð í. Pétur
segir að það skipti miklu máli
að starfsmenn Verkmáttar séu
- hafa náð 70% verka fyrir viðskiptavini sína
VERKMÁTTUR er um ársgömul verkfræðistofa sem hefur
hreiðrað vel um sig á þriðju hæð Íslandsbanka við Hafnar-
götu 91 í Reykjanesbæ. Eigandi verkfræðistofunnar er Pétur
Bragason, 34 ára gamall verkfræðingur úr Garðinum. Verk-
efnastjórnun er stærsti þátturinn í starfsemi Verkmáttar.
Einnig framkvæmdaeftirlit, verkfræðileg hönnun húsbygginga
og rekstrarráðgjöf.
allir iðnaðarmenn og í góðri
tengingu við atvinnulífið. Verk-
máttur starfar aðallega í bygg-
ingariðnaði, en hafi þó um
fimmtung af tekjum sínum úr
öðru en byggingarstarfsemi.
Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi að-
eins starfað í um eitt ár, hefur
því verið vel tekið á markaði
og hafi úr nægum verkefnum
að moða fram á sumarið og
sumum lengur. Það sé þó ljóst
að það verði lítið að gera í bygg-
ingahönnun næstu 2-3 árin,
en þeim mun mikilvægara sé
fyrir alla að hafa menn í verk-
efnastjórnun, sem í öllum til-
vikum marg borgar sig þegar
vandað er vel til verka.
Pétur segir það ástand sem
ríkir þessi misserin vera mik-
inn skóla og lærdóm hægt að
draga af því ástandi sem nú sé.
Þetta sé góður tími til að læra
rekstur og þá séu einnig góð
tækifæri nú til að fá gott starfs-
fólk til starfa.
Pétur segir framtíðarsýn Verk-
máttar einnig skýra. Hún sé
að vera framsækið og vandað
þekkingarfyrirtæki sem gaman
er að vinna hjá, skilar arði og
sýnir samfélagslega ábyrgð
við lausn og sköpun þverfag-
legra verkefna. Þá er stefna
Verkmáttar að skapa viðskipta-
vinum fyrirtækisins aukið
virði með kjark, virðingu og
ábyrgð að leiðarljósi.
Viðskipti og atvinnulíf á Suðurnesjum
Starfsmenn Verkmáttar, þeir Guðni Sigurbjörn Sigurðsson, Pétur Bragason og Guðni Lárusson.
Einnig starfa þeir Árni Reynir Alfreðsson og Guðmundur Unnarsson hjá fyrirtækinu í hluta-
störfum. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi
Verkfræðistofan Verkmáttur opnar höfuðstöðvar
að Hafnargötu 91 í Reykjanesbæ:
Í góðri tengingu
við atvinnulífið
Daglegar fréttir á vf.is
- rjóminn af tíðindum dagsins, fréttir, mannlíf og íþróttir