Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2009, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 16.04.2009, Blaðsíða 31
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 16. APRÍL 2009 31STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Petrína Baldursdóttir, odd- viti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Grindavíkur og formaður bæjarráðs, segir að ráðning skólastjóra nýs grunnskóla í Grindavík hafi valdið því hiki sem kom á meirihlutasamstarf Fram- sóknarflokks og Samfylk- ingar fyrir páskana. Bæjarstjórnarfundi sem hald- inn var á miðvikudag í síð- ustu viku lauk snögglega eftir að ráðning nýs skólastjóra var tekin til afgreiðslu. Sam- fylkingin vildi ráða Garðar Pál Vignisson, forseta bæjar- stjórnar, til starfsins. Það gat Framsóknarflokkurinn ekki sætt sig við. Afgreiðslu máls- ins var frestað sem og öllum dagskrárliðum í framhaldinu og fundi slitið. Yfir páskana leit því út fyrir að meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur væri sprunginn og ekki var annað að heyra en að Sjálf- stæðisflokkurinn væri aftur að koma til valda í Grindavík en sjálfstæðismenn voru við völd ásamt Samfylkingu þar til á síðasta sumri að það meiri- hlutasamstarf sprakk með látum og allir þekkja. Óvænt barst síðan tilkynning á þriðju- dag þar sem tilkynnt var að náðst höfðu sættir og að Sam- fylking og Framsóknarflokkur myndu halda stjórnarsamstarf- inu áfram fram að kosningum vorið 2010. Víkurfréttir tóku Petrínu tali í gær og spurðu hana út í at- burðarás síðustu daga í Grinda- vík. Hver var upphaflega ástæða þess að hik kom á samstarf Framsóknarflokks og Samfylk- ingar í bæjarstjórn Grinda- víkur? „Hik kom á samstarfið vegna ráðningar í skólastjórastarf nýs grunnskóla. Það var frá upphafi ljóst að við framsókn- armenn myndum ekki fara í pólitíska ráðningu og fannst okkur mjög vandasamt fyrir bæjarfulltrúa úr meirihluta að sækja um svona starf. Eðlileg- ast hefði verið að viðkomandi myndi stíga til hliðar úr pólitík- inni á meðan umsóknarferlið væri í gangi og farið eftir um- sögn ráðningarfyrirtækis um hæfi. Það leit þannig út fyrir okkur að ráðningin ætti að fara fram á bæjarstjórnarfund- inum með atkvæði minnihluta- manns og var það eitthvað sem við gátum ekki sætt okkur við sem liðsmenn meirihlutans“. Heimildir okkar innan Fram- sóknarflokksins herma að ráðn- ing skólastjóra Hópsskóla hafi í raun verið kornið sem fyllti mælinn. Hvað fleira voruð þið óánægð með í samstarfinu? „Þetta var það at riði sem braut á. Varðandi aðra hluti í samstarfi er það nú þannig að menn geta verið ólíkir í áherslum í orði og verki og þar af leiðir ekki alltaf ánægðir. Í heildina höfum við verið sátt í samstarfinu og ræðum okkur fram úr mál um sem upp kunna að koma hverju sinni“. Það var ekki annað að heyra á Sigmari Eðvarðssyni í fréttum á þriðjudag en að myndun nýs meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafi verið langt kom in. Hversu langt voruð þið komin í myndun nýs meirihluta? „Við vor um bara bú in að skrifa undir vilja yfirlýsingu um myndun nýs meirihluta ef til kæmi. Engar umræður um málefni og annað höfðu farið fram. Við vorum ekki komin svona langt eins og oddviti sjálfstæðismanna vill vera láta. Hann verður að eiga það við sig það sem hann lætur frá sér fara“. Var farið að ræða um nýjan bæjarstjóra? „Eng in um ræða um bæj- arstjórastöðuna var farin í gang“. Hver er ástæða þess að þið bakkið út úr nýrri meirihluta- myndun og takið upp þráðinn að nýju með Samfylkingu? „Við erum ekki að bakka út úr neinum viðræðum við sjálf- stæðimenn – þær voru aldrei byrjaðar“. Hvaða samkomulag gerðuð þið við Samfylkinguna? „Samstarfið við Samfylking- una hefur eins og ég sagði gengið vel að flestu leyti. Við höf um ver ið að stuðla að mörgum jákvæðum og góðum hlutum í meirihlutanum hér í Grindavík. Það hefði verið synd að láta þetta mál eyði- leggja fyrir okkur öll þau verk sem við eigum eftir að ganga í. Við gerðum bara það sam- komulag sem kynnt hefur Framsóknarmenn settu meirihlutasamstarfið í Grindavík í uppnám: Viljayfirlýsing um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn var undirrituð - sættir náðust áður en myndun nýs meirihluta hófst verið á heimasíðu Grinda- víkurbæjar og fleiri stöðum – í fréttatilkynnningu sem frá okkur fór um miðjan daginn á þriðjudag“. Óttist þið ekki að uppákoman á síðasta bæjarstjórnarfundi hafi grafið undan trausti í samstarfi flokkanna? „Nei ég óttast ekkert að þetta muni veikja samstarfið. Við ætlum að vera fullorðin – ábyrg og erum staðráðin í að þétta raðir okkar enn frekar. Það hefði verið ábyrgðarleysi af okkur að sprengja meirihlutann og fara í kostnað vegna breytinga og um það hljóta sjálfstæðismenn að vera sammála okkur. En þeir eru mjög iðnir við að benda á kostnaðarauka vegna hinna ýmsu mála. Þannig skulum við álykta að þeir í sjálfu sér fagni niðurtöðu okkar um áframhald- andi samstarf “.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.