Víkurfréttir - 16.04.2009, Page 31
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 16. APRÍL 2009 31STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Petrína Baldursdóttir, odd-
viti Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn Grindavíkur og
formaður bæjarráðs, segir
að ráðning skólastjóra nýs
grunnskóla í Grindavík hafi
valdið því hiki sem kom á
meirihlutasamstarf Fram-
sóknarflokks og Samfylk-
ingar fyrir páskana.
Bæjarstjórnarfundi sem hald-
inn var á miðvikudag í síð-
ustu viku lauk snögglega eftir
að ráðning nýs skólastjóra
var tekin til afgreiðslu. Sam-
fylkingin vildi ráða Garðar
Pál Vignisson, forseta bæjar-
stjórnar, til starfsins. Það gat
Framsóknarflokkurinn ekki
sætt sig við. Afgreiðslu máls-
ins var frestað sem og öllum
dagskrárliðum í framhaldinu
og fundi slitið. Yfir páskana
leit því út fyrir að meirihluti
bæjarstjórnar Grindavíkur
væri sprunginn og ekki var
annað að heyra en að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri aftur
að koma til valda í Grindavík
en sjálfstæðismenn voru við
völd ásamt Samfylkingu þar
til á síðasta sumri að það meiri-
hlutasamstarf sprakk með
látum og allir þekkja. Óvænt
barst síðan tilkynning á þriðju-
dag þar sem tilkynnt var að
náðst höfðu sættir og að Sam-
fylking og Framsóknarflokkur
myndu halda stjórnarsamstarf-
inu áfram fram að kosningum
vorið 2010.
Víkurfréttir tóku Petrínu tali
í gær og spurðu hana út í at-
burðarás síðustu daga í Grinda-
vík.
Hver var upphaflega ástæða
þess að hik kom á samstarf
Framsóknarflokks og Samfylk-
ingar í bæjarstjórn Grinda-
víkur?
„Hik kom á samstarfið vegna
ráðningar í skólastjórastarf
nýs grunnskóla. Það var frá
upphafi ljóst að við framsókn-
armenn myndum ekki fara í
pólitíska ráðningu og fannst
okkur mjög vandasamt fyrir
bæjarfulltrúa úr meirihluta að
sækja um svona starf. Eðlileg-
ast hefði verið að viðkomandi
myndi stíga til hliðar úr pólitík-
inni á meðan umsóknarferlið
væri í gangi og farið eftir um-
sögn ráðningarfyrirtækis um
hæfi. Það leit þannig út fyrir
okkur að ráðningin ætti að
fara fram á bæjarstjórnarfund-
inum með atkvæði minnihluta-
manns og var það eitthvað sem
við gátum ekki sætt okkur við
sem liðsmenn meirihlutans“.
Heimildir okkar innan Fram-
sóknarflokksins herma að ráðn-
ing skólastjóra Hópsskóla hafi
í raun verið kornið sem fyllti
mælinn. Hvað fleira voruð þið
óánægð með í samstarfinu?
„Þetta var það at riði sem
braut á. Varðandi aðra hluti
í samstarfi er það nú þannig
að menn geta verið ólíkir í
áherslum í orði og verki og þar
af leiðir ekki alltaf ánægðir. Í
heildina höfum við verið sátt í
samstarfinu og ræðum okkur
fram úr mál um sem upp
kunna að koma hverju sinni“.
Það var ekki annað að heyra á
Sigmari Eðvarðssyni í fréttum
á þriðjudag en að myndun nýs
meirihluta Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks hafi verið
langt kom in. Hversu langt
voruð þið komin í myndun nýs
meirihluta?
„Við vor um bara bú in að
skrifa undir vilja yfirlýsingu
um myndun nýs meirihluta ef
til kæmi. Engar umræður um
málefni og annað höfðu farið
fram. Við vorum ekki komin
svona langt eins og oddviti
sjálfstæðismanna vill vera láta.
Hann verður að eiga það við
sig það sem hann lætur frá sér
fara“.
Var farið að ræða um nýjan
bæjarstjóra?
„Eng in um ræða um bæj-
arstjórastöðuna var farin í
gang“.
Hver er ástæða þess að þið
bakkið út úr nýrri meirihluta-
myndun og takið upp þráðinn
að nýju með Samfylkingu?
„Við erum ekki að bakka út
úr neinum viðræðum við sjálf-
stæðimenn – þær voru aldrei
byrjaðar“.
Hvaða samkomulag gerðuð þið
við Samfylkinguna?
„Samstarfið við Samfylking-
una hefur eins og ég sagði
gengið vel að flestu leyti. Við
höf um ver ið að stuðla að
mörgum jákvæðum og góðum
hlutum í meirihlutanum hér
í Grindavík. Það hefði verið
synd að láta þetta mál eyði-
leggja fyrir okkur öll þau verk
sem við eigum eftir að ganga
í. Við gerðum bara það sam-
komulag sem kynnt hefur
Framsóknarmenn settu meirihlutasamstarfið í Grindavík í uppnám:
Viljayfirlýsing um samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn var undirrituð
- sættir náðust áður en myndun nýs meirihluta hófst
verið á heimasíðu Grinda-
víkurbæjar og fleiri stöðum
– í fréttatilkynnningu sem frá
okkur fór um miðjan daginn á
þriðjudag“.
Óttist þið ekki að uppákoman á
síðasta bæjarstjórnarfundi hafi
grafið undan trausti í samstarfi
flokkanna?
„Nei ég óttast ekkert að þetta
muni veikja samstarfið. Við
ætlum að vera fullorðin – ábyrg
og erum staðráðin í að þétta
raðir okkar enn frekar. Það hefði
verið ábyrgðarleysi af okkur að
sprengja meirihlutann og fara
í kostnað vegna breytinga og
um það hljóta sjálfstæðismenn
að vera sammála okkur. En þeir
eru mjög iðnir við að benda
á kostnaðarauka vegna hinna
ýmsu mála. Þannig skulum við
álykta að þeir í sjálfu sér fagni
niðurtöðu okkar um áframhald-
andi samstarf “.