Víkurfréttir - 16.04.2009, Page 17
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 16. APRÍL 2009 17STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Tækifærin búa hér
MENNTUN | NÝSKÖPUN | HEILSA | ORKA | LÍFSGÆÐI | LOGISTICS
www.asbru.is
Ásbrú er heilt samfélag sem rís á gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ. Ásbrú
snýst um hreina orku, þekkingu og nýsköpun, alþjóðlega samkeppnishæfni,
nálægð við alþjóðasamgöngur, mannauð, húsnæðiskost, æðri menntun,
rannsóknir og heilsu. Ásbrú er nýsköpun – þar býr framtíðin.
„Það er mjög erfitt að synda
Ermasundið fram og til baka.
Sundið tekur langan tíma en
vega lengdin er um 40 km
aðra leiðina. Síðan þarf að
reikna með sjávarföllum og
straumum þannig að vega-
lengdin getur í raun talist 60
km.“ Að sögn Hálfdáns er það
ekki nýtt að fólk syndi fram
og til baka þó það sé ekki eins
algengt. Til eru þeir sem hafa
synt fram og til baka tvisvar
sinnum í röð, þ.e. fjórar ferðir.
Eldey kitlar
Strangar reglur gilda um sund-
ferðir yfir Ermasundið. Til
dæmis þarf að skila inn papp-
írum um heilsufar og fólk þarf
að hafa uppfyllt kröfur um
sundtíma, líkt og flugnemar
þurfa að safna flugtímum.
Síðan þarf að fá til liðs við sig
þá sem bjóða fram þjónustu
sína með báta, útbúnað og
þekkingu á staðháttum. Hálf-
dán segir þá þætti skipta miklu
máli hvernig til takist.
Í undirbúningnum leggja þeir
félagar megináherslu á að auka
kuldaþolið. „Flest okkar eru
góðir sundmenn þannig að
tæknilega erum við vel undir
þetta búin.“
En eru einhver æðri mark-
mið en Ermasundið?
„Persónulega getur hver og
einn verið með sín markmið.
Mig langar t.d. mikið að synda
frá Vestamannaeyjum til lands.
Drangeyjarsund er á stefnu-
skránni í sumar sem liður í und-
irbúningi fyrir Ermasundið. Ég
horfi stundum út í Eldey og
gæli við þá hugsun að þangað
væri væri gaman að synda. Af
því er ég best veit hefur eng-
inn gert það, þetta er því mikil
áskorun,“ segir Hálfdán.
Fyrstur til að synda milli
Skrúðs og lands
Hálfdán er ekki óvanur því að
takast á við spennandi áskor-
anir. Hann synti fyrir þremur
árum ásamt félaga sínum til
lands úr Skrúð við Fáskrúðs-
fjörð. Það var talið ógerlegt
vegna mikilla strauma. Þetta
hefur ekki verið leikið eftir. Hálf-
dán segir að vegna þekkingar
þeirra félaga og trillusjómanna á
staðháttum hafi þeir fundið leið
til að synda þetta sund. „Þetta
var mjög sérstök 80 mínútna
lífsreynsla. Straumarnir þarna
eru gríðarlega sterkir, sjórinn
kraumaði eins og grautarpottur
og gat rifið óþyrmilega í mann.
Ef við hefðum farið 20 mínútum
seinna hefðum við ekki kom-
ist þetta vegna sjávarfallanna
þannig að við fórum á hárréttu
augnabliki.“
Þeir hörðustu synda á
veturna
Hálfdán segir mjög áríðandi
að fólk kynni sér aðstæður á
hverjum stað áður en lagst er
til sunds og gæti fyllsta öryggis
vegna strauma. Útsogið geti
verið mjög sterkt og hamlað
því að sund mað ur inn nái
landi. „Þegar fólk er búið að
stunda þetta í einhvern tíma
lærir það vel inn á þetta og
hvaða staðir henta betur en
aðrir. Reglan er sú að þú ferð
aldrei í sjóinn einsamall. Við
förum aldrei öðruvísi en hóp.“
Hálfdán og félagar undirbúa sund
yfir Ermasundið í sumar.
Myndir: Ellert Grétarsson.
En er eitthvað hægt að stunda
þetta á veturna?
„Já, já, þessir alhörðustu synda
á veturna líka. Síðan í haust
hefur verið verið mikil aukn-
ing í Nauthólsvíkinni. Menn
eru að skella sér ofan í en
að vísu ekki lengi í einu. Ég
nenni ekki að aka til Reykja-
víkur til að fara í sjóinn í hálfa
mínútu þannig að ég fer þá
bara hérna suðurfrá“, segir
Hálfdán sem langar að kynna
þetta tómstundagaman fyrir
fleirum Suðurnesjamönnum í
því skyni að stofna sundhóp.
Hann segir marga staði hér á
Suðurnesjum heppilega fyrir
sjósund og þá sérstaklega Garð-
skaga. Þeir sem hafa áhuga
geta sent Hálfdáni Frey línu á
foringinn@simnet.is.