Frjáls verslun - 01.05.2013, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 5. 2013
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
Hollur og
heilsusamlegur
matur fyrir alla.
Mesta úrval lífrænna
vara á landinu.
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Verslanir
Lifandi
markaðar
Veitingastaður
Lifandi
markaðar
Fyrir þá sem vilja lifa vel
Lifandi markaður
Græna þrumansem slegið hefur í gegn
Kynntu þ
ér
fyrirtækj
aþjónustu
Lifandi m
arkaðar
Þar fljúga stjörnur
um héruð
rekstur kvikmyndaþjónustufyrirtækisins Truenorth er með
þeim óvenjulegri hér á landi:
Það eru ekki margar íslenskar skrifstofur sem státa af myndspjöldum úr alþjóðlegum stórmyndum og
árituðum skjöldum frá stórstjörnum kvikmyndanna. Eina slíka má þó finna í Vesturbænum, á efstu hæð
þess húss sem einu sinni hýsti leikhússtarfsemi Loftkastalans en er nú eitt helsta afdrep kvikmyndagerðar
manna. Fyrirtækið Truenorth selur Ísland eða að minnsta kosti útlit landsins til erlendra kvikmyndagerðar
manna og það með góðum árangri. Félagið var stofnað 2003 og styðst við þríþætta starfsemi; þjónustu við
alþjóðleg kvikmynda verkefni, auglýsingagerð og atburðastjórnun. Að því leyti má segja að það selji í senn
varanlega upplifun en þó einnig stundarsýn af landinu.
O
g Ísland er sannarlega
í forgrunni Truenorth
eins og þau Helga
Margrét Reykdal og
Leifur Dagfinnsson
draga ekki dul á
þar sem þau sitja
í fundarherbergi félagsins. Á tússtöflunni
uppi á vegg má sjá atburðarás sem gæti
vel verið af herfræðilegum uppruna; kunn
kennileiti tengd við þyrluferðir og nákvæmar
tímasetningar. Helga verður leyndar dóms
full þegar hún er spurð út í merkingu þess,
sú alþjóðlega forvitni sem umleikur marga
viðskiptavini þeirra gerir það að verkum að
trúnaður verður að ríkja, jafnvel gagnvart
spurningum blaðamanna. Sá er þetta ritar
hefur áður setið í þessu herbergi með þeim
Helgu Margréti og Leifi og undrast sem áður
þau fjölbreyttu verkefni sem þau fást við
dags daglega, jafnvel leyft sér að öfundast
pínulítið og spyr nýgræðingslega hvort ekki
sé alltaf verið að spyrja þau um stjörnurnar
sem þau umgangast. Þau horfa hvort á
annað, augljóst að spurningin er ekki mjög
frumleg. „Þetta er kannski ekki venjulegt
skrifstofustarf og enginn dagur er eins og
sá síðasti,“ segir Leifur varfærnislega en
bætir við að margt verði nokkuð rútínusamt.
Jafnvel það að sinna kvikmyndastjörnum.
Leifur Dagfinnsson og Helga margrét Reykdal.
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
Hollur og
heilsusamlegur
matur fyrir alla.
Mesta úrval lífrænna
vara á landinu.
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Versl nir
Lifandi
m rkaðar
Veitingastaður
Lifandi
mark ðar
Fyrir þá sem vilja lifa vel
Lifandi markaður
Græna þrumansem slegið hefur í gegn
Kynntu þ
ér
fyrirtækj
aþjónustu
Lifandi m
arkaðar
FoRSÍðUEFNi