Frjáls verslun - 01.11.2013, Page 42
42 FRJÁLS VERSLUN 11. 2013
Ingibjörg Þórðardóttir segir að fasteignasalar séu almennt bjartsýnir á komandi ár og telur að fyrirhugaðar skulda
leiðréttingar verði almennt til
góðs fyrir fasteignamarkaðinn og
hjálpi til við að færa markaðinn
að því að verða eðlilegri en hann
hefur verið undanfarin ár. Engin
teikn séu á lofti um að leiðrétt
ingarn ar muni valda straum
hvörfum á íbúðaverði og því varni
fyrirhugaðar fjárhæðir leiðrétting
anna og ýmis önnur ytri skilyrði.
„Búast má við að mun líflegra
verði í sölu nýbygginga enda
ýmsir komnir nokkuð á leið
með byggingu íbúðarhúsnæðis
sem kemur til sölumeðferðar á
árinu og eins er umtalsvert af
nýbyggingum sem koma inn á
markaðinn á næstu misserum.
Markaður með nýbyggingar
hefur verið í algjöru lágmarki
á undanförnum árum. Það er
mikilsvert að staðinn sé vörður
um þá húsnæðisstefnu sem
hefur þróast hér á undanförnum
áratugum; að mönnum sé það
í sjálfsvald sett hvort þeir kaupi
eða leigi. Það þarf að liðka fyrir
fyrstu kaupendum enda er staða
þeirra býsna þröng að komast
inn á markaðinn en undanfarin ár
hefur þessi hópur farið stöðugt
stækkandi og ekki komið inn á
fasteignamarkaðinn. Það mætti
hugsa sér að lífeyrissjóðir eða
Íbúðalánasjóður myndu vera
með hagstæð viðbótarlán fyrir
þennan hóp sem er í vanda með
útborgun.“ Bjartsýnir á komandi ár
iNGiBjöRG ÞÓRðaRdÓTTiR
– formaður Félags fasteignasala
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Það virðist litlu breyta hversu oft mikilvægi skóla kerfisins er hafið til skýj anna, allir
verða jafnhissa þegar niðurstöður
PISAkann ana birtast. Árangur
íslenskra grunn skólanema dalar
frá einni mæl ingu til þeirrar
næstu. Hvar liggur vandinn? Af
hverjum getum við lært?
Ögrandi spurningar, þegar
haft er í huga langt háskólanám
kenn ara, margir afburðakennarar
eru í skólunum, og fjármagn á
hvern nemanda er hátt saman
borið við viðmiðunarlönd okkar.
Það má því spyrja hvort hæfileik
ar og tími kennara sé rétt nýttur.
„The Smartest Kids in the
World“ heitir bók eftir Amöndu
Ripley. Hún leitaði orsaka fyrir
slælegum námsárangri banda
rískra skólabarna samanborið við
toppframmistöðu nemenda í Finn
landi, Póllandi og SuðurKóreu.
Rauði þráðurinn í velgengninni
er mikil sjálfshvöt nemenda. Þeir
sjá skýran tilgang með náminu,
þeir vinna vel – of mikið, eins og
í SuðurKóreu –, og þeir tengja
sam an námsárangur og síðar
vel gengni í hátæknidrifnum
heimi. En þetta er ekki nóg. Finnar
hafa t.d. hert mjög inngangskröf
ur til kennaranáms. Þeir telja sig
fá enn betri kennara, mótíveraðri
og sjálfstæðari, sem njóti síðan
meiri umbunar í formi samfélags
virðingar og launa.
Samspil nemenda og kennara
í skólastofunni er mikilvægt.
En það verður líka að fylgjast
með árangri og draga lærdóm
af þeim skólum og einstökum
kennurum þar sem vel gengur, í
anda gæðaþróunar. Ekki einblína
á vandamálin. Þetta gerist ekki
nema til komi sterkari tengsl
selj enda þjónustu (skóla), greið
enda (ráðuneytis) og kaupenda
(foreldra). Grundvallaratriðið er
eftir sem áður ábyrgð foreldra;
að örva börnin og hvetja til
árang urs, frá fyrstu tíð.“
HöGNi ÓSKaRSSoN
– geðlæknir og stjórnendaþjálfari
SKIpULAGIÐ Í
VINNUNNI
skoðun
Nema hvað
iNGRid KuHLMaN
– framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar
HOLLRÁÐ Í
STJÓRNUN
Ingrid Kuhlman segir að á gamlárskvöld eða í upphafi nýs árs taki fjölmargir ákvörðun um að breyta ein hverju og setji sér metnaðarfull mark mið. Hún kemur með tíu hug myndir að áramótaheitum stjórn enda:
Líkamleg hreysti: Það að
hreyfa sig meira eða sleppa
neikvæðum siðum auðveldar
manni að takast á við streitu og
álag og eykur afköst.
Hlustaðu meira: Talar þú
meira en þú hlustar? Kom fram
í starfsmannakönnun að starfs
mönnum finnist ekki nógu mikið
hlustað á sig? Leggðu þig þá
fram um að hlusta meira.
Styrktu samskiptin: Taktu
þér meiri tíma í að kynnast
starfs mönnum þínum og styrkja
tengsl in.
Hrósaðu meira: Taktu eftir því
jákvæða og góða hjá starfs
mönnum og veittu meiri endur
gjöf. Hvettu starfsmenn þína til
góðra verka.
Bættu upplýsingaflæðið:
Notaðu mismunandi leiðir til að
koma upplýsingum á framfæri
(fundi, tölvupóst, innranetið,
frétta bréf) og prófaðu einnig
nýja miðla eins og t.d. stutt
mynd skeið.
Stöðugar umbætur: Komdu
með hugmyndir að því sem
mætti bæta og breyta og virkj
aðu starfsmenn í því.
Fagnaðu sigrum: Gerðu meira
af því að halda upp á árang
urinn af því sem búið er að
áorka.
Betri tímastjórnun: Nýttu tíma
þinn betur með því að for
gangs raða, skipuleggja þig,
setja þér markmið og takast á
við truflanir.
Stöðugur lærdómur: Þekking
og hæfni ræður úrslitum í dag.
Taktu ábyrgð á eigin starfs
hæfni og lærðu eitthvað nýtt á
hverjum degi.
Sýndu fordæmi: Gerðu miklar
kröfur til sjálfs þín um frammi
stöðu og vertu fordæmi fyrir
þá sem undir þér vinna með
hegðun þinni.
Áramótaheit fyrir
stjórnendur
ENDURMENNTUN
FYRIR SÉRFRÆÐINGA OG STJÓRNENDUR
Námskeiðsframboð Opna háskólans í HR byggir á traustum fræðilegum
grunni og hagnýtri þekkingu úr atvinnulífinu. Leiðbeinendur eru sérfræðingar
Háskólans í Reykjavík, aðrir fulltrúar atvinnulífsins eða erlendir gestafyrirlesarar.
NÆSTU NÁMSKEIÐ: ÖNNUR NÁMSKEIÐ:
Áætlanagerð í
verkefnum
Hefst 11. janúar.
Verkefnastjórnun
með Morten Fangel
13 - 19. febrúar.
Regluverk ESB um
endurnýjanlega
orkugjafa
með Birgitte Andersen
28. janúar.
Hringborðsumræður
markaðsstjóra - NÝTT
Hefst 28. janúar.
Samninga- og
samskiptatækni
Hefst 28. janúar.
CAF-líkanið: Aðferðir við
sjálfsmat og framkvæmd
5. og 6. febrúar.
Fyrstu skref fjárfestinga
með VÍB
6. febrúar.
Power Pivot - Excel
11. og 14. febrúar.
R - tölfræðiúrvinnsla
11., 18. og 25. febrúar.
Ábyrgð og árangur
stjórnarmanna
Hefst 12. febrúar.
Mælaborð
mannauðsstjórans
13. og 20. febrúar.
Viðbragðs- og
samskiptaáætlun
fyrirtækja - NÝTT
Crisis Management
17. og 19. febrúar.
Forysta og samskipti -
leiðtogafræði
Hefst 18. febrúar.
SQL- gagnagrunnar
Hefst 18. febrúar.
MBA vinnustofa
Corporate Finance
David Griswold
20. febrúar.
Straumlínustjórnun:
Þróun viðskiptaferla með
stöðugum umbótum
Lean Management
Programme
Hefst 24. febrúar.
Verkefnastjórnun
27. febrúar, 4. og 6. mars.
Sala til fagfjárfesta
3. og 4. mars.
Viðburðastjórnun
Hefst 3. mars.
Almennir bókarar
Hefst 4. mars.
Stofnun og rekstur
fyrirtækja
11., 13., og 18. mars.
Innri endurskoðun
27. og 28. febrúar.
Áttu stund?
Tímastjórnun og
skipulag
11. mars.
Fjármál fyrir stjórnendur
19. og 20. mars.
Að breyta gögnum í
verðmætar upplýsingar
18. og 25. mars og 1. apríl.
Framkoma og
ræðumennska
17. og 19. mars.
Breytingastjórnun
17. og 24. mars.
Aðferðir við
ákvörðunartöku
Hefst 1. apríl.
Skattskil rekstraraðila
2. og 3. apríl.
Leiðir til úrlausna
krefjandi
starfsmannamála
8. og 9. apríl.
Excel í starfi bókarans
Hefst 28. apríl.
Jafningjastjórnun
28. apríl.
Greining ársreikninga
Hefst 29. apríl.
Tækni-, tölvunar-
og verkfræði
Líkanagerð fyrir
rekstraráætlanir,
arðsemismat og verðmat
Reiknitækni í rekstri
fyrirtækja
Merking vinnusvæða
Samhliða forritun - NÝTT
Þarfagreining
hugbúnaðarlausna
með Advania
Tölvuöryggi
Excel 2
Samhliða forritun - NÝTT
Þarfagreining
hugbúnaðarlausna
með Advania
Tölvuöryggi
Pl/SQL
Fjármál og rekstur
Beyond budgeting
Reiknitækni í rekstri
fyrirtækja
Arðsemisgreining í
fyrirtækjum - NÝTT
Virðisgreining - NÝTT
Value Stream Mapping
Meðhöndlun
gjaldeyrishafta
Atferlisfjármál
Tæknigreining
Stjórnun
Markþjálfun
The Neuroscience
of Leadership and
Organizational Coaching
með Steven Poelman
Case vinnustofa í
samningatækni
Stjórnun 2.0 - NÝTT
Frammistöðustjórnun
Á vefnum opnihaskolinn.is eru ítarlegri upplýsingar um öll
námskeið, leiðbeinendur, verð og skráningu.