Frjáls verslun - 01.11.2013, Page 111
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 111
Hver er stefnumótun Nmí?
Í stefnumótun okkar hefur
verið lögð áhersla á að við
Íslendingar lærum af hrun
inu og komum sterkari út úr
því. Við höfum sett á odd inn
samspil vistfræði og siðfræði
við iðnvæðingu lands
ins – köllum það SiðVist og
hún tengist aftur áherslu á
sam félagslega nýsköpun og
samfélagsleg gildi. Við höfum
undanfarin ár gert nánast
kraftaverk í samvinnu við
Vinnumálastofnun og leitt
marga einstaklinga til virkrar
þátttöku í atvinnulífinu.
Hefur Nmí komið sér upp
ákveðnu gildismati til að
starfa eftir?
Gildismat okkar snýst um
mannauðinn, snerpu og
árvekni og við sýndum það
í verki þegar við stofnuðum
næstum tug frumkvöðlasetra
strax í upphafi kreppunnar.
Starfsmannamál okkar snúast
um jafnrétti í aðstöðu og
launum og vinnustað sem er
uppbyggjandi og laðar fram
það besta í okkar góða fólki.
Núna eru fimm ár liðin frá
hruninu, hvaða væntingar hefur
þú til næstu tveggja ára?
Við sjáum um vísitölu Al
þjóðaefnahagsráðsins um
sam keppnishæfni sem er
einn virtasti mælikvarði á
efna hagslíf þjóða víða um
heim. Vísitalan er víðtæk og
endurspeglar þá þætti sem
segja til um framleiðni þjóða
og vaxtar möguleika. Sam
keppnis hæfnivísitalan byggist
á opinberum upplýsingum og
könnun sem framkvæmd er
meðal stjórnenda í atvinnu
lífinu. Rannsóknin er fram
kvæmd á tímabilinu febrúar
– maí ár hvert og liggja niður
stöður rannsóknar fyrir í byrjun
september sama ár. Það að
vera svona tengd púlsinum er
gagnlegt og gerir okkur kleift
að skynja breytingar. Almennt
er erfitt ár framundan í íslensku
efnahags og atvinnuífi sem
einkennist af of litlu fé til rann
sókna og þróunar og algjörum
dróma á sviði gengis mála.
Af öllum þeim skemmtilegu
verkefnum sem við komum
að vil ég nefna nú að eitt mest
spennandi framtíðarmálið á
sviði efnisframleiðslu hér á
landi gæti falist í framleiðslu
blá grýtistrefja með hreinni
orku. Þarna erum við að vinna
með Háskólanum í Reykjavík,
ISOR og Jarðefnaiðnaði í
Þorlákshöfn. Markmiðið er að
geta sett upp viðskiptaáætlun
fyrir verksmiðju sem framleiðir
mengunarlaus efni úr meng
unarlausri orku til þess að
treysta steypuefni og trefjaplast.
Verksmiðja á þessu sviði tekur
valið grjót, bræðir það með
raforku og sprautusteypir út
um „sturtuhaus úr platínu“ og
endar með „spunaverksmiðju“.
Þræðirnir eru notaðir víða um
heim og ég nefni að Volks
wagen styrkir stuðara sína með
blá trefjum.
Í myndinni sem birtist með
þessu viðtali sjáið þið hluta af
mannauði okkar sem þarna
er saman kominn í þróunar
aðstöðu fyrir ljósvörpu.
Ljós varpa er algjör nýjung í
veiðitækni þar sem ljós er notað
til að smala fiski í togveiðum
með algjörlega nýrri aðferð.
Slík tækni veldur því að olía
sparast; trollið er fólgið í ljósi,
ekki neti sem sjórinn veitir
viðnám. Botninn er ekki skafinn
af kúlum eða þvíumlíku – olíu
notkun á hvert veitt tonn af
fiski fellur væntanlega mikið.
Þarna eru samstarfsaðilar
Hafró, Gunnvör á Ísafirði o.fl.
Svo horfir maður til næstu
ára og væntir þess að rofi til
í íslensku atvinnulífi og hag
kerfi. Nýsköpunarmiðstöð þarf
alltaf að vera reiðubúin að taka
hugmyndir og beita í atvinnu
lífinu, bæta tækni og aðferðir
hjá fyrirtækjum og búa okkur
Íslendinga undir samstarf og
samkeppni meðal þjóðanna.
Þjóð sem nýtir þekkingu sína til
þess að efla hag og lífsgæði.
„Við höfum sett á odd
inn samspil vistfræði og
siðfræði við iðnvæðingu
lands ins – köllum það
SiðVist og hún tengist
aftur áherslu á sam
félagslega nýsköpun og
samfélagsleg gildi.“
NýSKöPuNaRMiðSTöð ÍSLaNdS
velta: 1.3 milljarðar, þar af 800 milljónir sjálfsaflafé.
Stofnendur: Fjöldi starfsmanna: 88
Stefna: fjölbreytt starfsemi í þágu atvinnulífsins. nýsköpunar
miðstöð íslands hvetur til nýsköpunar og eflir framgang nýrra
hugmynda í íslensku atvinnulífi með virkri þátttöku í rann sókn
arverkefnum og stuðningi við frumkvöðla og fyrirtæki. við lítum
á nýsköpun sem forsendu fyrir fjölbreytni í íslensku atvinnulífi
og undirstöðu sterkrar samkeppnisstöðu þess.
Þorsteinn Ingi Sigfússon, lengst til hægri, með hluta af starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Keldnaholti.