Frjáls verslun - 01.11.2013, Qupperneq 116
116 FRJÁLS VERSLUN 11. 2013
„Hvað myndir þú gera ef þú
værir óhrædd“ er grundvall
arspurningin sem Sheryl
spyr konur til að hvetja þær
til að að opna augun fyrir
því hvers þær eru megnugar
ef óttanum er ýtt til hliðar.
Forskot
Hvert skal
haldið?
Undanfarin ár hefur gróska í út
gáfu íslenskra viðskipta tengdra
bóka verið mikil. Í bók inni
Forskot fjallar ráðgjafinn Þórður
Sverris son um heildstætt líkan
sem auðveldar fyrirtækjum að
ná enn meiri árangri í sínum
störfum. Stefnumótun og mörkun
leiðarinnar er þar ein grunnstoð
anna. Bókin er yfirgripsmikið rit
um „markaðshringinn“ sem er
vandað ferli fyrirtækjum til stuðn
ings við að móta eða skerpa á
áherslum og ná samkeppnis
forskoti. Hún er fyrsta bók sinnar
tegundar á Íslandi og ber að
fagna sérstaklega útgáfu á
íslensku eins yfirgripsmikils og
vandaðs verks um lykilárangurs
þætti í rekstri. Í bókinni kemur
höfundur inn á alla þá þætti sem
huga þarf að í rekstri fyrirtækja,
hvort sem það selur vöru eða
þjónustu. Ferlið sem Þórður
setur fram er yfirgripsmikið
og vel útfært og allir liðir þess
tengj ast því að koma vöru eða
þjónustu fyrirtækisins á framfæri
á markaði á árangursríkan hátt.
Markaðs hringurinn gæti allt eins
heitið Rekstrarhringurinn eða
jafnvel Árangurshringurinn því
það er næsta víst að ef farið er
eftir þeirri leið sem höfundur
varðar í bókinni mun fyrirtækið
ná meiri árangri. Ferlið er yfir
gripsmikið og tekur á öllum
megin þáttum rekstrar sem
tengjast með rökréttum hætti.
Bókin er ómissandi yfirlitsrit fyrir
stjórn endur.
Forskot eftir Þórð Sverris
son er fyrsta bók sinnar
tegundar á Íslandi og ber að
fagna útgáfu á íslensku eins
yfirgripsmikils og vandaðs
verks um lykilárangursþætti
í rekstri.
The Lean Startup:
Straum
línulagaða ný
sköpunar
fyrirtækið
Í bókinni The Lean Startup
tengir höfundurinn Eric Ries
sam an nýsköpun og hugmynda
fræði straumlínustjórnunar
(Lean) sem í huga margra eru
tveir aðskildir pólar. Frum kvöðlar
og sprota fyrirtæki hafa almennt
ímynd óreiðu, sveigjanleika og
krafts sem gerir það að verkum
að oft komast ótrúlegir hlutir í
verk. Sömu orsakir gera hins
vegar oft að verkum að frábærar
hugmyndir ná ekki flugi og þeim
árangri sem spáð hafði verið.
Höfundur vill með kenningum
sínum um að blanda saman hug
myndafræði straumlínustjórn unar
og frumkvöðlakraftinum auka
líkur á því að nýjar hugmyndir
fái brautargengi og nái flugi,
gjarnan með minni sóun en
alla jafna. Bókin fékk strax við
útgáfu mikla athygli og stökk
hratt upp metsölulista. Skýringar
vinsældanna má m.a. finna í því
að höfundurinn hafði um árabil
haldið úti vinsælu bloggi þar
sem hann fjallaði um kenn ing ar
sínar og hafði jafnframt unnið
með mörgum stærstu fyrir tækj
um og opinberum stofnunum í
Bandaríkjunum. Í bókinni dregur
hann saman lærdóm sinn af
þeirri vinnu ásamt eigin reynslu
sem frumkvöðull á tæknisviðinu.
Markmið hans er einfaldlega
að draga úr þeirri sóun sem
gjarnan fylgir nýsköpun og
frum kvöðlastarfi til að auka megi
líkur á árangri nýrra vara og
verk efna. Með sóun á hann við
þann tíma, þá peninga og þær
auðlindir sem fara í vinnu við
verkefnin. Bókin hefur átt fastan
sess á metsölulistum og var í
hópi bestu viðskiptabókanna á
Amazon árið 2013.
The Lean Startup hefur átt
fastan sess á metsölulistum
og var í hópi bestu viðskipta
bókanna á Amazon árið
2013.
Tómur tankur á
æðsta degi
Síðasta bók ársins var jafnframt
sú óvenjulegasta. Die Empty –
Unleash Your Best Work Every
Day eftir Todd Henry. Höfundur
fjallar um það hvernig við getum
nýtt alla okkar möguleika, á
hverj um degi, í okkar störfum
svo við getum á æðsta degi,
hvenær sem hann verður nú,
sagt að við séum búin að gera
allt sem við gátum til að leggja
okkar af mörkum.
Eins og í flest um bókum af
þessum toga setur höfundur
fram lögmál fyrir lesandann að
ganga út frá. Lögmálin eru t.d.
að forðast það að hafa það of
„þægilegt“; of mikil þægindi geti
verið hættuleg, hið þægilega
geti verið óvinur þess stórfeng
lega. Lögmálin eru fleiri, t.d.
mikilvægi þess að taka stöðu í
takt við sín persónulegu gildi,
mikilvægi sjálfsþekkingar til að
þekkja styrkleikana og tæki færi
til vaxtar. Einnig leggur höfundur
áherslu á mikilvægi þess að
vera sífellt að sá fræjum til að
uppskeran verði góð. Þótt bókin
fjalli um árangur almennt má
auðveldlega yfirfæra allt það
sem höfundur setur fram yfir á
fyrirtæki og lífsferil þeirra. Hér
er á ferðinni afar áhugaverð bók
fyrir þá sem vilja meira og eru
tilbúnir til að stíga út fyrir þæg
inda rammann til að ná í það.
Eitt lögmála í bókinni er
t.d. að forðast að hafa það
of „þægilegt“ því of mikil
þægindi geti verið hættuleg
og komið í veg fyrir að fólk
nýti kosti sína.
todd Henry.
englar
alheimsins
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Brandenburg
„Atli leikur snilldarlega og sýnir gríðarlegan kraft og
sjarma… frábært nýtt leikverk."
Mbl. S.G.V.
„Leikhús á öðru plani… Fullkomin útfærsla á
skáldsögunni."
Fbl. S.Á.S.
LEIKRIT ÁRSINS 2013
Ekki missa af einstökum leikhúsviðburði.
Aukasýningar komnar í sölu.
Viðskiptabók ársins