Víkurfréttir - 23.02.2012, Síða 9
9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012
Sjónmælingar
eru
okkar
fag
Pantaðu þér fría
sjónmælingu hjá okkur
í síma 421 3811
Jóna Ragnarsdóttir sjónfræðingur
við störf í Optical Studio
Afgreiðslustarf
Verslunin Leonard í Flugstöð Leifs Eiríkssonar óskar eftir að ráða
starfsmann í almenna afgreiðslu vegna sumarafleysinga.
Um hlutastarf er að ræða.
Við erum að leita að glaðlegu, samviskusömu og jákvæðu fólki.
Skilyrði er góð enskukunnátta, snyrtileg og kurteis framkoma og að
viðkomandi sé reyklaus.
Umsókn ásamt mynd óskast send verslunarstjóra Leonard DF,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða netpóst df@leonard.is.
Umsóknarfrestur er til 8. mars 2012.
Leonard ehf. Var stofnað árið 1991 og rekur fjórar verslanir sem eru leiðandi í sölu á úrum, skartgripum og fylgi-
hlutum. Leoanard ehf, er framsækið fyrirtæki sem leggur mikið upp úr því að hafa á að skipa metnaðarfullu starfsfólki.
Ofnasmiðja Suðurnesja fagn-aði 40 ára afmæli í síðustu
viku. Í tilefni tímamótanna var
starfsmönnum fyrirtækisins
boðið upp á rjómatertu.
Það var Þórólfur Þorsteinsson,
Dói, sem skar fyrstu sneiðina af af-
mælistertunni en hann hefur hvað
lengstan starfsaldur hjá fyrirtæk-
inu. Það er reyndar eftirtektarvert
hversu lítil starfsmannavelta er hjá
Ofnasmiðju Suðurnesja en þar hafa
flestir starfað áratugum saman og
sá sem hefur stysta starfsaldurinn
hefur verið hjá fyrirtækinu í 12 ár.
Stofnandi Ofnasmiðju Suðurnesja,
Jón William Magnússon, mætti
að sjálfsögðu í afmælið og rifjaðar
voru upp margar góðar sögur frá
fyrstu árum smiðjunnar. Jón sagði
m.a. frá því að fyrsta daginn sem
ofnasmiðjan var í rekstri hafi hann
smíðað nýjan ofn handa eiginkonu
sinni, Unni Ingunni Steinþórs-
dóttur heitinni, en Ofnasmiðja
Suðurnesja var stofnuð á þrítugsaf-
mælisdegi hennar árið 1972.
Feðgarnir Jón William Magnússon
og Steinþór Jónsson ráku Ofna-
smiðju Suðurnesja til ársins 2005
en 2. nóvember það ár keypti
BYKO af þeim fyrirtækið og rekur
það í dag.
Ofnasmiðja Suðurnesja framleiðir
VOR-YL ofna, RÚNT-YL ofna og
VEHA handklæðaofna.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar í afmælisveislunni í Ofna-
smiðju Suðurnesja fyrir helgi.
Sama starfsfólkið
í áratugi hjá OSS
›› Ofnasmiðja Suðurnesja 40 ára:
Það var Þórólfur Þor-
steinsson, Dói, sem
skar fyrstu sneiðina
af afmælistertunni
en hann hefur hvað
lengstan starfsaldur
hjá fyrirtækinu.