Víkurfréttir - 11.10.2012, Blaðsíða 2
fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Danskt Big-band og Léttsveit TR
Sunnudaginn 14. október n.k. mun Sct. Mariæ Skoles
Bigband frá Álaborg í Danmörku halda tónleika í
Stapa, Hljómahöllinni ásamt Léttsveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar.
Stjórnendur eru Gert Norgaard og
Karen J. Sturlaugsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 16:00.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir
Skólastjóri
HEILSU- OG FORVARNARVIKA
KÆRAR ÞAKKIR
Reykjanesbær vill koma á framfæri kærum þökkum til
allra þeirra sem tóku virkan þátt í Heilsu- og
forvarnarviku bæjarins nú í október.
Fjölmargar stofnanir og fyrirtæki tóku þátt í vikunni
með einum eða öðrum hætti og ekki skorti
fjölbreytnina. Ábendingar um hvað mætti betur fara
eða bæta á næsta ári eru vel þegnar.
Vinsamlega sendið upplýsingar eða ábendingar til
Hafþórs B. Birgissonar, tómstunda- og forvarnarfull-
trúa á netfangið hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is
SÍÐUSTU SÝNINGAR-
DAGAR Á HELGA S
Sýningunni um Helga S í Bíósal Duushúsa lýkur
miðvikudaginn 17. október n.k. Eigendur verka eru
beðnir um að koma dagana 18. og 19. og sækja verk
sín. Byggðasafnið og Listasafnið þakka kærlega
öllum þeim sem lánuðu verk eða tóku á annan hátt
þátt í undirbúningi sýningarinnar.
FRÉTTIR VIKUNNAR
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum ályktaði um nýliðna
helgi að ríkisvaldið verði að
leiðrétta það misrétti sem á sér
stað í úthlutun opinberra fjár-
muna. Það er nánast sama hvaða
málaflokkar eru skoðaðir, alls
staðar eru Suðurnesin hornrekur,
og þá sérstaklega í velferðar- og
menntamálum. Svæðinu er
gert að veita sömu þjónustu og
aðrir landshlutar þrátt fyrir
minna fjármagn á íbúa.
Fjármagni til málefna fatlaðra er
ekki deilt niður á sanngjarnan
hátt um landið og sá mismunur
sem var til staðar fyrir flutning
málaflokksins til sveitarfélaganna
er enn til staðar. Úthlutun til
heilbrigðismála er mun lægri á
íbúa til Suðurnesja en annarra
svæða og er slíkt ólíðandi.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja fær
um 90 milljónir króna minna
fjárframlag á ári en sambærilegir
skólar, sama á við um Keili.
Tryggja ber fjármagn til að sá
vaxtarsproti sem Keilir, miðstöð
vísinda, fræða og atvinnulífs er, fái
vaxið og dafnað. Að auki styður
ríkið ekki eins vel við Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum í
samanburði við sambærilegar
stofnanir í öðrum landshlutum
og Fisktækniskóli Suðurnesja er
eingöngu kominn á fjárlög fyrir
árið 2013 og er framtíð hans því
óviss. Eins er mikilvægt að styðja
við Þekkingarsetur Suðurnesja.
Mjög mikilvægt er að þegar kemur
að úthlutun fjármuna í tengslum
við Sóknaráætlun landshluta að
þeim sé skipt jafnt milli landshluta.
Suðurnesjamenn eru ekki að biðja
um aukafjármuni fram yfir önnur
landsvæði – aðeins að fjármunum
sé úthlutað á réttlátan hátt þar
sem allir landsmenn sitja við sama
borð, segir í ályktun aðalfundarins.
Atvinnuleysi er hæst á land-inu á Suðurnesjum og því
mikilvægt að taka atvinnumálin
föstum tökum. Á Suðurnesjum
eru ógrynni tækifæra bæði fyrir
stór sem lítil fyrirtæki. Mikilvægt
er að stjórnvöld skapi hvetjandi
umgjörð fyrir atvinnuupp-
byggingu og styðji þannig við
atvinnusköpun í landinu, meðal
annars með því að skatta- og
lagaumhverfi sé stöðugt og
hvetjandi. Þetta kemur fram í
ályktun Sambands sveitarfélaga
á Suðurnesjum um atvinnu- og
samgöngumál. Fundurinn var
haldinn um sl. helgi í Sandgerði.
Hluti af stuðningi við atvinnulífið
er áframhaldandi uppbygging á
samgöngum á svæðinu. Brýnt
er að ljúka tvöföldun Reykjanes-
brautar og uppbyggingu Suður-
strandarvegar sem og tryggja
vetrarþjónustu á þeim vegi.
Ferðamannaiðnaður er vaxandi
atvinnugrein og fjöldi ferðamanna
eykst með hverju ári. Samhliða
því er mikilvægt að tryggja öryggi
þeirra sem og annarra með því að
byggja upp göngu- og hjólreiða-
stíga meðfram Reykjanesbrautinni
enda mun umferð bifreiða og
hjólreiðamanna aukast næstu árin.
Aðalfundur S.S.S. telur mikilvægt
að fiskihafnir komist aftur inn á
samgönguáætlun enda eru þær
hluti af samgöngukerfi landsins
og styðja við atvinnuuppbyggingu
á svæðinu. Auk þess er mikilvægt
að tryggja að hluti af veiðileyfa-
gjaldinu skili sér til sveitarfélaga
landsins, sérstaklega þeirra sem
sjá um að þjónusta sjávarútveginn
enda standa fæstar fiskihafnir
landsins undir sínum rekstri.
Veiðileyfagjaldið af Suðurnesj-
unum er um 2,2 – 2,5 milljarðar
króna og því eðlilegt að hluti af
því skili sér aftur til svæðisins.
Ekki hefur tekist að bregðast við
því áfalli er Suðurnesin urðu fyrir
er varnarliðið fór árið 2006 en þar
með hurfu 1100 störf af svæðinu.
Því er vandi Suðurnesjamanna
dýpri og langvinnari en annarra
landsvæða og krefst því kröftugri
aðgerða í formi stuðnings við
atvinnuuppbyggingu, nýsköpun
og menntun á svæðinu.
Aðalfundur SSS lýsir yfir miklum
áhyggjum yfir þeim fjölda atvinnu-
lausra sem falla munu út af at-
vinnuleysisskrá á næstu misserum
og munu fara á framfæri sveitar-
félaga ef engin önnur úrræði bjóð-
ast. Mikilvægt er að ríkisvaldið
bregðist við þessum vanda og velti
honum ekki yfir á sveitarfélögin.
Eina varanlega lausnin er að
skapa fleiri störf. Aðalfundur
S.S.S. lýsir yfir fullum stuðningi
við og hefur miklar væntingar
til uppbyggingar álvers og
annars iðnaðar í Helguvík.
Safnaði fé til rann-
sókna á arfgengri
heilablæðingu
María Ósk Kjartansdóttir af-henti á dögunum Tilrauna-
stöð Háskóla Íslands í meina-
fræðum að Keldum 80.000 kr. sem
söfnuðust í kringum Ljósanótt í
Reykjanesbæ.
María Ósk stóð að söfnuninni
ásamt Anítu Margréti frænku sinni
en söfnunin var til að styrkja rann-
sóknir á arfgengri heilablæðingu.
María er með þann sjúkdóm en hún
hefur fengið þrjár heilablæðingar.
Söfnunarféð verður notað til að
halda áfram rannsóknum á sjúk-
dómnum.
Styður uppbyggingu álvers
og iðnaðar í Helguvík
- samband sveitarfélaga á suðurnesjum ályktar á aðalfundi:
Suðurnesin horn-
rekur hjá ríkinu
J maría Ósk afhendir söfnunarféð.
Úthlutun til
heilbrigðismála
er mun lægri á
íbúa til Suður-
nesja en annarra
svæða og er slíkt
ólíðandi.
Fimmtán ára og ölv-
aður í skilríkjasvindli
Lögreglunni á Suður-nesjum var tilkynnt um
að ungur piltur væri að reyna
að komast inn á skemmtistað
í umdæminu á ökuskírteini
annars manns. Pilturinn sem
um ræðir reyndist vera fimm-
tán ára. Hann kvaðst hafa
fengið ökuskírteinið lánað
hjá manni sem hann þekkti.
Pilturinn, sem var ölvaður,
var færður á lögreglustöð og
látinn bíða þar uns hann var
sóttur. Lögregla tjáði honum
að ef hann reyndi aftur að
nota skilríki annars manns
til að reyna að villa á sér
heimildir yrði hann kærður.
Fréttir