Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.10.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 11.10.2012, Blaðsíða 16
fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR16 Fré ttir Frosinn fiskur olli uppnámi Lögreglan á Suðurnesjum fékk fyrir helgi tilkynn- ingu frá öryggisgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þess efnis að svartur pakki væri utan dyra við brott- farardyr Flugstöðvarinnar. Lögregla fór þegar á vettvang og opnaði pakkann. Í honum reyndist vera frosinn fiskur, sem hafnaði ásamt umbúð- unum í næsta ruslagámi. Slasaðar með kornabarn á HSS Lögreglunni á Suður-nesjum barst fyrir helgi tilkynning þess efnis að á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja væru staddar þrjár ungar konur með kornabarn og að þær væru slasaðar eftir umferðarslys. Í ljós kom að tvær kvennanna höfðu verið farþegar í bíl, ásamt korna- barninu, en sú þriðja keyrt. Þegar bifreiðin var stöðvuð á rauðu ljósi var annarri bifreið ekið aftan á hana með þeim afleiðingum að farþegarnir tveir kenndu eymsla. Konurnar fóru rakleiðis á Heilbrigðis- stofnun til að leita sér aðhlynn- ingar og var önnur þeirra flutt til Reykjavíkur til frekari skoðunar. Ungabarnið var í barnastól og slapp það ómeitt. 140 ÁRA AFMÆLI STÓRU-VOGASKÓLA Fimmtudaginn 18. október höldum við í Stóru-Vogaskóla upp á merkisatburð. Í haust eru 140 ár síðan skólahald hófst við Vatnsleysuströndina! Í tilefni af því bjóðum við fyrrverandi nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans til veislu kl. 12:00. Á dagskrá verður m.a.: hefur sögu skólans Verið velkomin Nemendur og starfsfólk Stóru-Vogaskóla Einn af elstu skólum landsins Haustið 1872 tóku tveir skólar til starfa í ný- byggðu húsnæði. Þeir voru báðir á Suðurnesjum; Gerðaskóli í Garði og skólinn okkar hér í Sveitar- félaginu Vogum sem þá hét Vatnsleysustrandar- hreppur og náði einnig yfir Njarðvík. Í upphafi hét skólinn okkar því langa nafni: “Thorchillii Barnaskólinn í Vatnsleysustrandarhreppi”. Það nafn festist þó ekki við hann, heldur var hann kallaður Suðurkotsskóli, enda byggður á jörðinni Suðurkoti í Brunnastaðahverfi. Seinna breyttist nafnið í Brunnastaðaskóli og þegar hann var síðan fluttur í Voga árið 1979 fékk hann núver- andi nafn, Stóru-Vogaskóli, enda byggður í túni höfuðbýlisins Stóru-Voga. Rústir tveggja síðustu íbúðarhúsanna að Stóru-Vogum, sem reist voru 1871 og 1912, eru nú hluti af leikvelli skólans. Allan tímann er þetta sama stofnunin þó hús væru byggð og rifin og nöfnum breytt. Grunnur elsta skólahússins er enn heillegur og aðalbygging skólans frá 1944 – 1979 er nú íbúðarhúsið Skóla- tún í Brunnastaðahverfi. Byggð voru tvö minni hús, annað í Kálfatjarnarhverfi og hitt á Vatns- leysubæjum og kennt þar um tíma þegar hverfin voru barnmörg. Síðan kom skólabíll til sögunnar 1942 – með þeim fyrstu á landinu – og eftir það var ekki lengur þörf á kennslu í einstökum hverfum. Minjafélag Vatnsleysustrandar hefur nú endurbyggt annað þessara húsa að Kálfatjörn og stendur til að koma þar upp skólasafni. Thorchilliisjóður fyrir fátæk börn Hver var þessi Thorchillii sem skólinn var kenndur við? Hann hét Jón Þorkelsson (1697- 1759), barn efnaðra foreldra í Innri-Njarðvík. Hann varð mikill lærdómsmaður og rektor Skál- holtsskóla um tíma og kallaði sig Thorchilliius upp á Latínu. Hann eignaðist ekki börn en efnað- ist vel og gaf eftir sinn dag eigur sínar í sjóð til að “allra aumustu og fátækustu börn í Kjalarnes- þingi skyldu fá kristilegt uppeldi, þ.m.t. húsnæði, fæði og klæði”. Árið 1870 hóf Stefán Thorarensen, prestur og sálmaskáld á Kálfatjörn, undirbúning stofnunar barnaskóla í Vatnsleysustrandarhreppi. Efnt var til samskota, keyptur jarðarpartur og reist skólahús sem var vígt 13. september 1872 með því að halda þar stofnfund skólans sem hóf starfsemi skömmu síðar og hefur starfað óslitið síðan, stundum á fleiri en einum stað samtímis. Með leyfi kóngsins og Alþingis fékkst 1200 ríkis- dala vaxtalaust lán til skólans úr Thorchillii-sjóði sem ekki þarf að greiða meðan skólinn sinnir vel börnum sem minna mega sín. Thorchilllii-sjóðurinn greiddi um áratuga skeið skólagjöld fátækustu barnanna í þessum skóla og síðar í fleiri skólum sem stofnaðir voru á Reykja- nesskaga. Mörg “Thorchillii-barnanna” bjuggu á skólatíma í risi skólahússins og ráðið var fólk til að ala önn fyrir þeim. Þannig var skólinn bæði heimavistarskóli og heimangönguskóli og einnig var börnum komið fyrir á nálægum bæjum, m.a. börnum úr Njarðvík, en fyrstu árin var þessi skóli líka fyrir Njarðvíkinga uns þeir komu sér upp eiginn skóla rúmum áratug síðar. Einnig var frá upphafi vísir að unglingaskóla (fyrir fermd börn) og handavinnukennsla fyrir stálpaðar stúlkur. Fyrsta veturinn voru 30 börn í skólanum, þar af 8 fermdir unglingar, og bjuggu 10 af börnunum í skólahúsinu. Í húsinu, sem var 56 m2 að grunn- fleti, hæð og ris, var einnig íbúð fyrir kennarann svo það hefur verið búið þröngt. Kannski hefur það komið sér vel því timburhús á þessum tíma voru mjög köld. Vatnsleysustrandarhreppu í fremstu röð á 19. öld Hvers vegna voru stofnaðir skólar svo snemma í Vatnsleysustrandarhreppi og Garði? Þá voru komnir barnaskólar á verslunarstöðunum Eyrar- bakka (frá 1852) og Reykjavík (frá 1862). Það fiskaðist vel á grunnslóð á þessum tíma áður en togveiðar komu til. Hér var þéttbýlla en víða annars staðar, enda fór fjöldi íbúa í Vatnsleysu- strandarhreppi yfir 1000 áður en hreppnum var skipt og Njarðvík klofin frá 1890. En það þarf meira en peninga til að stofna og reka skóla. Það þarf ekki síður menningarlegt atgervi og fram- sýni. Ég læt Árna Daníel Júlíussyni, sagnfræðingi, eftir að svara þeirri spurningu ásamt mörgu öðru sem á hugann leitar, en hann flytur erindi og situr fyrir svörum á afmælishátíðinni 18. október nk. Sjálfur þakka ég Hauki Aðalsteinssyni, skipasmið og áhugasagnfræðingi, fyrir að afla mikilvægra gagna um þetta mál á Þjóðskjalasafni og víðar, sem ég byggi grein þessa á. Hvar stöndum við nú? Stóru-Vogaskóli er í dag 180 barna grunnskóli með 1. – 10. bekk í 2700 m2 húsnæði, en íbúar í sveitarfélaginu eru rúmlega 1100, ívið fleiri en þegar skólinn var stofnaður. Skólinn hefur á að skipa metnaðarfullu starfsliði sem rækir starf sitt af alúð. Eins og í upphafi er vel hugsað um börn sem minna mega sín eða hafa ýmis konar sérþarfir og er skipulega unnið gegn einelti. Að einu leyti hefur skólinn sérstöðu á landsvísu: Hér fá börnin hádegismat í boði sveitarfélagsins. Hér sitja allir við sama borð og fá einstaklega góðan og hollan mat sem eldaður er í skólanum af snilldarkokki. Hér er leitast við að sinna vel bæði líkamlegum og andlegum þörfum barna, óháð efnahag foreldra. Þorvaldur Örn Árnason, kennari við Stóru-Vogaskóla. Stóru-VogaSkóli 140 ára S tóru-Vogaskóli er 140 ára í haust. Afmælisveislan hefst kl. 12 á hádegi fimmudaginn 18. október nk. Dagana áður munu nemendur og starfslið skólans sökkva sér í þessa löngu sögu og árangur þess mun væntanlega sjást uppi um alla veggi skólahússins. Einnig verður bakað baki brotnu, kræsingar lagðar á borð og hellt upp á. Flutt verða ávörp og erindi og ýmislegt til gamans gert. Hér er mynd af elsta skólahúsinu sem byggt var 1872 og stækkað 1886. En það þarf meira en peninga til að stofna og reka skóla. Það þarf ekki síður menn- ingarlegt atgervi og framsýni. Súpufundur um Evrópumálin á reykjanesi Evrópustofa, upplýsingamið-stöð ESB á Íslandi, efnir til hádegisfundar um Evrópumálin í matsal Keilis á Ásbrú á flug- vallarsvæðinu, þriðjudaginn 16. október kl. 12:15-13:00. Á fundinum fjallar Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, um gang aðildarviðræðnanna við Ísland og stöðu mála innan Evrópusam- bandsins og svarar spurningum. Sendiherrann talar á ensku en boðið verður upp á endursögn á íslensku. Jafnframt kynnir framkvæmdastýra Evrópustofu, Birna Þórarinsdóttir, starfsemi upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi. Fundurinn er opinn öllum, og boðið upp á súpu og brauð. Hvað viltu vita? Fundurinn á Ísafirði er liður í áformum Evrópustofu að stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi ESB. Í því skyni er m.a. efnt til opinna kynningar- og umræðufunda víðs- vegar um landið með sendiherra ESB. Fundir hafa nú þegar verið haldnir á Akureyri, Egilsstöðum, í Neskaupstað, Reykjavík og á Ísa- firði.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.