Víkurfréttir - 11.10.2012, Page 16
fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR16
Fré
ttir
Frosinn fiskur
olli uppnámi
Lögreglan á Suðurnesjum fékk fyrir helgi tilkynn-
ingu frá öryggisgæslunni í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
þess efnis að svartur pakki
væri utan dyra við brott-
farardyr Flugstöðvarinnar.
Lögregla fór þegar á vettvang
og opnaði pakkann. Í honum
reyndist vera frosinn fiskur,
sem hafnaði ásamt umbúð-
unum í næsta ruslagámi.
Slasaðar með
kornabarn á HSS
Lögreglunni á Suður-nesjum barst fyrir helgi
tilkynning þess efnis að á
Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja væru staddar þrjár
ungar konur með kornabarn
og að þær væru slasaðar eftir
umferðarslys. Í ljós kom að
tvær kvennanna höfðu verið
farþegar í bíl, ásamt korna-
barninu, en sú þriðja keyrt.
Þegar bifreiðin var stöðvuð á
rauðu ljósi var annarri bifreið
ekið aftan á hana með þeim
afleiðingum að farþegarnir
tveir kenndu eymsla. Konurnar
fóru rakleiðis á Heilbrigðis-
stofnun til að leita sér aðhlynn-
ingar og var önnur þeirra
flutt til Reykjavíkur til frekari
skoðunar. Ungabarnið var í
barnastól og slapp það ómeitt.
140 ÁRA AFMÆLI
STÓRU-VOGASKÓLA
Fimmtudaginn 18. október höldum við í Stóru-Vogaskóla upp á merkisatburð.
Í haust eru 140 ár síðan skólahald hófst við Vatnsleysuströndina!
Í tilefni af því bjóðum við fyrrverandi nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans til
veislu kl. 12:00.
Á dagskrá verður m.a.:
hefur sögu skólans
Verið velkomin
Nemendur og starfsfólk Stóru-Vogaskóla
Einn af elstu skólum landsins
Haustið 1872 tóku tveir skólar til starfa í ný-
byggðu húsnæði. Þeir voru báðir á Suðurnesjum;
Gerðaskóli í Garði og skólinn okkar hér í Sveitar-
félaginu Vogum sem þá hét Vatnsleysustrandar-
hreppur og náði einnig yfir Njarðvík. Í upphafi
hét skólinn okkar því langa nafni: “Thorchillii
Barnaskólinn í Vatnsleysustrandarhreppi”. Það
nafn festist þó ekki við hann, heldur var hann
kallaður Suðurkotsskóli, enda byggður á jörðinni
Suðurkoti í Brunnastaðahverfi. Seinna breyttist
nafnið í Brunnastaðaskóli og þegar hann var
síðan fluttur í Voga árið 1979 fékk hann núver-
andi nafn, Stóru-Vogaskóli, enda byggður í túni
höfuðbýlisins Stóru-Voga. Rústir tveggja síðustu
íbúðarhúsanna að Stóru-Vogum, sem reist voru
1871 og 1912, eru nú hluti af leikvelli skólans.
Allan tímann er þetta sama stofnunin þó hús
væru byggð og rifin og nöfnum breytt. Grunnur
elsta skólahússins er enn heillegur og aðalbygging
skólans frá 1944 – 1979 er nú íbúðarhúsið Skóla-
tún í Brunnastaðahverfi. Byggð voru tvö minni
hús, annað í Kálfatjarnarhverfi og hitt á Vatns-
leysubæjum og kennt þar um tíma þegar hverfin
voru barnmörg. Síðan kom skólabíll til sögunnar
1942 – með þeim fyrstu á landinu – og eftir
það var ekki lengur þörf á kennslu í einstökum
hverfum. Minjafélag Vatnsleysustrandar hefur nú
endurbyggt annað þessara húsa að Kálfatjörn og
stendur til að koma þar upp skólasafni.
Thorchilliisjóður fyrir fátæk börn
Hver var þessi Thorchillii sem skólinn var
kenndur við? Hann hét Jón Þorkelsson (1697-
1759), barn efnaðra foreldra í Innri-Njarðvík.
Hann varð mikill lærdómsmaður og rektor Skál-
holtsskóla um tíma og kallaði sig Thorchilliius
upp á Latínu. Hann eignaðist ekki börn en efnað-
ist vel og gaf eftir sinn dag eigur sínar í sjóð til
að “allra aumustu og fátækustu börn í Kjalarnes-
þingi skyldu fá kristilegt uppeldi, þ.m.t. húsnæði,
fæði og klæði”. Árið 1870 hóf Stefán Thorarensen,
prestur og sálmaskáld á Kálfatjörn, undirbúning
stofnunar barnaskóla í Vatnsleysustrandarhreppi.
Efnt var til samskota, keyptur jarðarpartur og
reist skólahús sem var vígt 13. september 1872
með því að halda þar stofnfund skólans sem hóf
starfsemi skömmu síðar og hefur starfað óslitið
síðan, stundum á fleiri en einum stað samtímis.
Með leyfi kóngsins og Alþingis fékkst 1200 ríkis-
dala vaxtalaust lán til skólans úr Thorchillii-sjóði
sem ekki þarf að greiða meðan skólinn sinnir vel
börnum sem minna mega sín.
Thorchilllii-sjóðurinn greiddi um áratuga skeið
skólagjöld fátækustu barnanna í þessum skóla og
síðar í fleiri skólum sem stofnaðir voru á Reykja-
nesskaga. Mörg “Thorchillii-barnanna” bjuggu á
skólatíma í risi skólahússins og ráðið var fólk til
að ala önn fyrir þeim. Þannig var skólinn bæði
heimavistarskóli og heimangönguskóli og einnig
var börnum komið fyrir á nálægum bæjum, m.a.
börnum úr Njarðvík, en fyrstu árin var þessi skóli
líka fyrir Njarðvíkinga uns þeir komu sér upp
eiginn skóla rúmum áratug síðar. Einnig var frá
upphafi vísir að unglingaskóla (fyrir fermd börn)
og handavinnukennsla fyrir stálpaðar stúlkur.
Fyrsta veturinn voru 30 börn í skólanum, þar af
8 fermdir unglingar, og bjuggu 10 af börnunum í
skólahúsinu. Í húsinu, sem var 56 m2 að grunn-
fleti, hæð og ris, var einnig íbúð fyrir kennarann
svo það hefur verið búið þröngt. Kannski hefur
það komið sér vel því timburhús á þessum tíma
voru mjög köld.
Vatnsleysustrandarhreppu
í fremstu röð á 19. öld
Hvers vegna voru stofnaðir skólar svo snemma
í Vatnsleysustrandarhreppi og Garði? Þá voru
komnir barnaskólar á verslunarstöðunum Eyrar-
bakka (frá 1852) og Reykjavík (frá 1862). Það
fiskaðist vel á grunnslóð á þessum tíma áður
en togveiðar komu til. Hér var þéttbýlla en víða
annars staðar, enda fór fjöldi íbúa í Vatnsleysu-
strandarhreppi yfir 1000 áður en hreppnum var
skipt og Njarðvík klofin frá 1890. En það þarf
meira en peninga til að stofna og reka skóla. Það
þarf ekki síður menningarlegt atgervi og fram-
sýni. Ég læt Árna Daníel Júlíussyni, sagnfræðingi,
eftir að svara þeirri spurningu ásamt mörgu öðru
sem á hugann leitar, en hann flytur erindi og situr
fyrir svörum á afmælishátíðinni 18. október nk.
Sjálfur þakka ég Hauki Aðalsteinssyni, skipasmið
og áhugasagnfræðingi, fyrir að afla mikilvægra
gagna um þetta mál á Þjóðskjalasafni og víðar,
sem ég byggi grein þessa á.
Hvar stöndum við nú?
Stóru-Vogaskóli er í dag 180 barna grunnskóli
með 1. – 10. bekk í 2700 m2 húsnæði, en íbúar
í sveitarfélaginu eru rúmlega 1100, ívið fleiri en
þegar skólinn var stofnaður. Skólinn hefur á að
skipa metnaðarfullu starfsliði sem rækir starf
sitt af alúð. Eins og í upphafi er vel hugsað um
börn sem minna mega sín eða hafa ýmis konar
sérþarfir og er skipulega unnið gegn einelti. Að
einu leyti hefur skólinn sérstöðu á landsvísu:
Hér fá börnin hádegismat í boði sveitarfélagsins.
Hér sitja allir við sama borð og fá einstaklega
góðan og hollan mat sem eldaður er í skólanum
af snilldarkokki. Hér er leitast við að sinna vel
bæði líkamlegum og andlegum þörfum barna,
óháð efnahag foreldra.
Þorvaldur Örn Árnason,
kennari við Stóru-Vogaskóla.
Stóru-VogaSkóli 140 ára
S tóru-Vogaskóli er 140 ára í haust. Afmælisveislan hefst kl. 12 á hádegi fimmudaginn 18. október nk. Dagana áður munu nemendur og starfslið skólans sökkva sér í þessa löngu sögu og árangur þess mun væntanlega sjást uppi um alla veggi skólahússins. Einnig verður
bakað baki brotnu, kræsingar lagðar á borð og hellt upp á. Flutt verða ávörp og erindi og ýmislegt til gamans gert.
Hér er mynd af elsta skólahúsinu
sem byggt var 1872 og stækkað 1886.
En það þarf meira
en peninga til að
stofna og reka
skóla. Það þarf
ekki síður menn-
ingarlegt atgervi
og framsýni.
Súpufundur um
Evrópumálin á
reykjanesi
Evrópustofa, upplýsingamið-stöð ESB á Íslandi, efnir til
hádegisfundar um Evrópumálin
í matsal Keilis á Ásbrú á flug-
vallarsvæðinu, þriðjudaginn 16.
október kl. 12:15-13:00.
Á fundinum fjallar Timo Summa,
sendiherra ESB á Íslandi, um gang
aðildarviðræðnanna við Ísland
og stöðu mála innan Evrópusam-
bandsins og svarar spurningum.
Sendiherrann talar á ensku en
boðið verður upp á endursögn á
íslensku.
Jafnframt kynnir framkvæmdastýra
Evrópustofu, Birna Þórarinsdóttir,
starfsemi upplýsingamiðstöðvar
ESB á Íslandi.
Fundurinn er opinn öllum, og
boðið upp á súpu og brauð.
Hvað viltu vita?
Fundurinn á Ísafirði er liður í
áformum Evrópustofu að stuðla
að aukinni umræðu, þekkingu og
skilningi á eðli og starfsemi ESB.
Í því skyni er m.a. efnt til opinna
kynningar- og umræðufunda víðs-
vegar um landið með sendiherra
ESB. Fundir hafa nú þegar verið
haldnir á Akureyri, Egilsstöðum,
í Neskaupstað, Reykjavík og á Ísa-
firði.