Víkurfréttir - 11.10.2012, Side 11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012 11
Velferðarvaktin var sett á lagg-
irnar í kjölfar efnahagshrunsins
en hlutverk hennar er að fylgjast
með félagslegum jafnt sem
fjárhagslegum afleiðingum
bankahrunsins fyrir fjölskyldur
og einstaklinga í landinu með
markvissum hætti og gera til-
lögur um aðgerðir í þágu heimil-
anna. Velferðarvaktin er óháður
álitsgjafi sem leggur fram tillögur
til stjórnvalda og hagsmunaaðila.
Suðurnesjavaktin hefur verið
starfandi frá því í byrjun janúar
á síðasta ári. Nýverið var gefin út
áfangaskýrsla Suðurnesjavaktar-
innar þar sem ítarlega er farið
yfir stöðu mála á Suðurnesjum.
Suðurnesjavaktina skipar sam-
starfshópur, sem er fjölbreyttur
hópur lykilfólks á Suðurnesjum
þar á meðal allir félagsmála-
stjórar svæðisins, fulltrúar frá
verkalýðshreyfingunni og Rauða
krossinum og fulltrúar sex ríkis-
stofnana, fulltrúi kirkjunnar og
skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Suðurnesjavaktin
er óháður greiningar- og álits-
gjafi sem leggur fram tillögur til
stjórnvalda og hagsmunasamtaka
og fylgir þeim eftir. Verkefnis-
stjóri Suðurnesjavaktarinnar
er Lovísa Lilliendahl.
Meginverkefni samstarfshópsins
er að styrkja samstarf ekki
einungis milli sveitarfélaganna
heldur einnig milli ríkisstofnana,
sveitarfélaga og félagasamtaka
með það að markmiði að styrkja
svæðið í heild. Meðal verkefna
framundan er kortlagning með
tilliti til styrkleika og helstu
þarfa svæðisins, stefnumótun
og gerð framkvæmdaáætlunar.
Í áfangaskýrslunni, sem nýverið
hefur verið kynnt, hafa verið
dregnar saman á einn stað upp-
lýsingar um stöðu Suðurnesja
miðað við júní í sumar. Áfanga-
skýrsla Suðurnesjavaktarinnar
kemur nú út öðru sinni en hún
greinir frá stöðunni á Suður-
nesjum rúmum fjórum árum eftir
efnahagshrunið haustið 2008.
Dregið hefur meira úr atvinnuleysi á Suður-
nesjum en á öðrum landsvæðum en er sem fyrr
langmest á Suðurnesjum. Í maí 2012 mældist
atvinnuleysi á svæðinu 9,4% en var 12,1% á
sama tíma árið 2011. Á landinu öllu mælist
atvinnuleysi 5,6% en var 7,4% á sama tíma árið
2011. Einstaklingar á Suðurnesjum yngri en 30
ára eru 39% af þeim sem eru á atvinnuleysis-
skrá.
Hlutfall heimila í vanskilum er hæst á Suður-
nesjum en rúmlega 16% íbúa á Suðurnesjum
yfir 18 ára aldri eiga í alvarlegum vanskilum.
Næst á eftir Suðurnesjum kemur Suðurland
með 9,7% og höfuðborgarsvæðið með 9,5%.
Hlutfall íbúa sem fá ráðgjöf eða fara í greiðsluað-
lögun hjá Umboðsmanni skuldara er hæst á
Suðurnesjum samanborið við landið allt.
Eignir Íbúðalánasjóðs í júní 2012 eru flestar
á Suðurnesjum eða samtals 579. Næstflestar
eignir sjóðsins eru á höfuðborgarsvæðinu eða
352 talsins.
Þá segir í áfangaskýslunni að hlutfall íbúa á
Suðurnesjum með háskólamenntun er 17,7% en
landsmeðaltal er 33%.
Mikil aukning hefur orðið á málum í forvarnar-
og meðferðarteymi Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja.
Hlutfall öryrkja er hæst á Suðurnesjum eða 9,8%
á meðan landsmeðaltal er 7,4%.
Þá segir að mikil fjölgun hefur orðið á sprota-
fyrirtækjum á Ásbrú en í frumkvöðlasetrinu
Eldey eru nú starfrækt 18 sprotafyrirtæki.
Áfangaskýrsla
Suðurnesjavakt-
arinnar komin út
Í aðdraganda efnahagshrunsins stóðu Suðurnesin nokkuð verr að
vígi samanborið við aðra landshluta en segja má að í framhaldi af
brotthvarfi varnarliðsins árið 2006 hafi byrjað að halla undan fæti á
svæðinu. Efnahagshrunið hefur þó ekki eingöngu haft slæm áhrif á
samfélagið á Suðurnesjum eins og margir kunna að telja. Aðgerðir á
vegum ríkisins hafa leitt til þess að samstarf milli aðila í velferðar-
þjónustu á svæðinu öllu hefur styrkst verulega með tilkomu Suður-
nesjavaktarinnar. Með tilkomu atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar
blómstrar frumkvöðlastarfsemi á Ásbrúarsvæðinu en Heklan styður
við atvinnuþróun á Suðurnesjum með fjölbreyttum hætti og eru í
dag um 18 sprotafyrirtæki starfandi á svæðinu. Svæðisbundið verk-
efni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem miðar
að því að efla menntun á Suðurnesjum hefur einnig gengið vel. Síðast
en ekki síst er vert að minna á öll þau öflugu virkni- og starfsendur-
hæfingarúrræði sem standa einstaklingum til boða á svæðinu. Þetta
eru styrkleikar sem vilja því miður oft gleymast í umræðunni um
afleiðingar efnahagshrunsins.
Svona er Staðan
Á SUðUrneSJUM
Byrjaði að halla undan fæti þegar varnarliðið fór
n Í skýrslu Suðurnesjavaktarinnar kemur fram að staðan á svæðinu er ekki eins og best verður á kosið, sérstaklega
þegar kemur að fjármálum heimilanna. Mörg heimili eiga í fjárhagserfiðleikum og vanskil eru töluvert hærri meðal
íbúa á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta.
vf.is
BLAÐAUKI UM SUÐURNESJAVAKTINA • fimmtudagurinn 11. október 2012