Víkurfréttir - 11.10.2012, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
Vinnumálastofnun býður upp á ýmis
úrræði fyrir atvinnuleitendur og má
þar nefna ÞOR (Þekking og reynsla) og
UFTA (Ungt fólk til athafna) sem bæði
miða að því að virkja atvinnuleitendur og
auðvelda þeim að fá vinnu á ný. Síðast-
liðið haust var ýtt úr vör átakinu
Nám er vinnandi vegur en það
gaf atvinnuleitendum kost á að
fara í nám eina önn án þess að
atvinnuleysisbætur myndu
skerðast. Eftir önnina gafst
þeim sem voru í ólánshæfu
námi kostur á framfærsluað-
stoð næstu þrjár annir.
Þeir sem voru í lánshæfu
námi sneru sér til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
voru 35 einstaklingar sem hófu
nám í skólanum á haustönn 2011 á
vegum Vinnumálastofnunar sem munu
halda áfram námi. Framhald verður á
þessu úrræði Vinnumálastofnunar haustið
2012 en einungis verður hægt að skrá sig í
iðn- og starfsnám í framhaldsskólum og í
frumgreinadeildir Háskólans í Reykjavík,
Háskólans á Bifröst og Keilis á Ásbrú.
Í febrúar síðastliðnum fór af stað verkefnið
Vinnandi vegur. Með þátttöku í Vinnandi
vegi eiga atvinnurekendur kost á styrk
með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi
atvinnuleitenda í allt að eitt ár. Átakið
beinir sjónum sérstaklega
að einstaklingum
sem hafa verið án
vinnu lengur en
12 mánuði.
Í mars síð-
astliðnum
var ýtt úr
vör nýju
úrræði
fyrir ungt
fólk sem
nefnist
Atvinnutorg
en það er sam-
starfsverkefni
velferðarráðu-
neytisins, Vinnumála-
stofnunar og Reykjanesbæjar. Atvinnu-
torgið á að veita ungu fólki á aldrinum
16-25 ára sem hvorki er á vinnumarkaði
né í námi, náms- eða atvinnutengda ráð-
gjöf og stuðning við að finna úrræði
við hæfi. Markmiðið er að bjóða öllum
þessum ungmennum úrræði sem geta
falist í starfsþjálfun eða atvinnu, námi
eða námstengdum úrræðum eða starfs-
endurhæfingu. Atvinnutorgið hefur farið
vel af stað en um það bil 15 einstaklingar
eru nú komnir með störf á almennum
vinnumarkaði, eru í vinnustaðarnámi
eða öðrum virkniúrræðum. Fyrirtæki á
Suðurnesjum hafa brugðist vel við þessu
úrræði og vilja leggja sitt af mörkum til
þess að bæta atvinnustöðuna á svæðinu.
Í maí 2012 voru að meðaltali um 477
einstaklingar í vinnumarkaðsúrræðum.
Langflestir í þessum hópi voru í náms-
tengdum úrræðum eða um 387 ein-
staklingar en 90 voru í starfstengdum
úrræðum, þ.e. á reynsluráðningar-
eða starfsþjálfunarsamningum.
Menntunarstig
einstaklinga í atvinnuleit
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun er menntunarstig þeirra sem eru á
atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum lægra en
meðal atvinnuleitenda á landinu öllu, en
rúm 69% þeirra eru einungis með grunn-
skólamenntun. Á landsvísu er hlutfall
einstaklinga á atvinnuleysisskrá sem eru
aðeins með grunnskólamenntun rúmlega
49%. Háskólamenntaðir einstaklingar
á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum eru
5,3% en yfir landið er hlutfallið 16,1%.
Atvinnuþróunarfélagið Heklan
Atvinnuþróunarfélagið Heklan var
formlega sett á laggirnar í apríl 2011 en
iðnaðarráðuneytið og Byggðastofnun
leggja því til 20 milljónir króna á ári. Sam-
band sveitarfélaga á Suðurnesjum aflar
mótframlaga og sér að öðru leyti um fjár-
mögnun starfseminnar eins og tíðkast í at-
vinnuþróunarfélögum annarra landshluta.
Verkefni Heklunnar eru fjölbreytt og eru
flest á sviði atvinnu- og byggðaþróunar auk
nýsköpunarverkefna. Heklan sér einnig
um rekstur vaxtarsamnings Suðurnesja
og menningarsamnings Suðurnesja.
Óhætt er að segja að Heklan sé ein af
jákvæðu afleiðingum efnahagshrunsins.
Í Eldey frumvöðlasetri, þar sem Heklan
hefur aðsetur, blómstrar frumkvöðla-
starfsemi og eru þar nú starfandi 18
sprotafyrirtæki og yfir 30 starfsmenn.
Heklan aðstoðar frumkvöðla við að stíga
sín fyrstu skref, þróa viðskiptahugmyndir
sínar og koma sprotafyrirtækjum á legg.
Hægt er að fá leigt smiðjurými, skrif-
stofurými og aðstöðu í opnu vinnurými.
Haldin eru námskeið fyrir frumkvöðla
og eins hafa leigjendur haldið nám-
skeið í húsinu en þeir hafa aðgang að
fundarrýmum og kennslustofu.
Sýslumaðurinn í Keflavík
Nauðungarsölum heimila á Suður-
nesjum hefur farið fjölgandi undan-
farin ár. Þróun í nauðungarsölum
síðastliðin tíu ár gefur til kynna
að erfiðleikar íbúa á svæðinu hafi í
raun hafist fyrir hrun, en strax árið
2008 verður mikil aukning í nauð-
ungarsölum íbúðarhúsnæðis hjá
sýslumanninum á Suðurnesjum.
Árið 2010 náðu nauðungarsölurnar
hámarki en þá var fjöldi nauðungar-
sölumála alls 279 og er átt við bæði
íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Samanburður á fyrstu fjórum mán-
uðum áranna 2011 og 2012 sýnir
fækkun í sölu íbúðarhúsnæðis úr
164 íbúðum árið 2011 í 93 íbúðir
2012. Staðan er önnur varðandi
atvinnuhúsnæði en á fyrstu fjórum
mánuðum ársins 2012 hafa verið
seldar þrefalt fleiri eignir í atvinnu-
rekstri en allt árið 2011.
Meirihluti eignanna sem seldar hafa
verið nauðungarsölu eru í Reykja-
nesbæ. Á árabilinu 2008 - 2011
námu þær eignir tæpum 70% af
seldum eignum í heild. Hámarkinu
í aukningu nauðungarsölu virðist
hafa verið náð ári fyrr í fámennari
sveitarfélögunum eða árið 2010.
Í maí 2011 hófst rannsókn hjá
sýslumanninum í Keflavík á or-
sökum nauðungarsölu heimila á
Suðurnesjum og er búist við að
henni verði lokið í byrjun sumars
2012 en gert er ráð fyrir að skýrslan
dragi fram gagnlegar upplýsingar
sem nýta má meðal annars við for-
varnarstarf.
Umboðsmaður skuldara
Umboðsmaður skuldara hefur
verið starfað Suðurnesjum frá
desember 2010 og verður áfram
meðan þörf krefur. Samkvæmt
upplýsingum frá Umboðsmanni
skuldara á Suðurnesjum er staðan
á svæðinu ekki góð og hefur aukist
að einstaklingar taki þá ákvörðun
að fara í gjaldþrot þar sem þeir
sjá ekki fram á að geta staðið við
skuldbindingar sínar. Samkvæmt
upplýsingum frá dómstólaráði voru
44 einstaklingar á Suðurnesjum
úrskurðaðir gjaldþrota árið 2011
en þeir voru 83 á höfuðborgar-
svæðinu. Fram til 31. mars á þessu
ári hafa 27 einstaklingar á Suður-
nesjum verið úrskurðaðir gjald-
þrota sem er tæplega helmingur
af öllum gjaldþrotum á landinu.
Á sama tíma hafa 16 einstaklingar
verið úrskurðaðir gjaldþrota á
höfuðborgarsvæðinu.
Hlutfall íbúa, sem hafa farið í ráð-
gjöf og greiðsluaðlögun frá því
Umboðsmaður skuldara tók til
starfa í ágúst 2011, er mjög hátt á
Suðurnesjum samanborið við aðra
landshluta en 3,3% íbúa á Suður-
nesjum fengu ráðgjöf eða fóru
í greiðsluaðlögun. Í Reykjavík er
hlutfallið 1,9% og á Suðurlandi er
það 1,8%. Sennilega hefur gott að-
gengi að Umboðsmanni skuldara
á Suðurnesjum þau áhrif að fólk
fer fyrr af stað og fær ráðgjöf varð-
andi sín mál. Af þeim sem eru í
greiðsluaðlögum hjá Umboðs-
manni skuldara á Suðurnesjum eru
34% á aldrinum 31-40 ára. Suður-
nes eru álíka stödd miðað við aðra
landshluta hvað varðar meðalskuld
á hverja umsókn, meðaltekjur
og meðalgreiðslugetu eftir fram-
færslukostnað en eins og áður sagði
er fjöldinn mun meiri.
Gjaldþrot fyrirtækja
2009-2011
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofu Íslands urði alls 1.578 fyrir-
tæki á landinu gjaldþrota árið 2011.
Af þeim voru 1206 á höfuðborgar-
svæðinu, þar á eftir var Suðurland
með 118 gjaldþrot og svo Suður-
nes með 107 gjaldþrot. Af gjald-
þrota fyrirtækjum á Suðurnesjum
voru 31,8% í byggingastarfsemi og
mannvirkjagerð. Frá árinu 2009
hafa 232 fyrirtæki á Suðurnesjum
orðið gjaldþrota sem er sambæri-
legur fjöldi og á Suðurlandi.
Hvaða úrræði eru fyrir atvinnuleitendur?
n Í nýlegri skýrslu frá Creditinfo kemur fram að rúmlega 16% íbúa á Suður-
nesjum yfir 18 ára aldri eiga í alvarlegum vanskilum. Næst á eftir Suður-
nesjum kemur Suðurland með 9,7% og höfuðborgarsvæðið með 9,5%.
„Strax í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 stóð Reykjanesbær
fyrir því að kalla saman alla þá aðila á Suðurnesjum sem vinna að vel-
ferð með það að markmiði að fylgjast sameiginlega með þróuninni
og bregðast við eftir því sem þörf er á. Suðurnesjavaktin kemur í
kjölfar þess, en það hafði sýnt sig að til að halda
málinu vakandi þyrfti starfsmann sem héldi
utan um þetta samstarf. Velferðarráðuneytið
lagði hann til, til tveggja ára,“ segir Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Starfsmenn Reykjanesbæjar frá fjölskyldu-
og félagssviði og fræðslusviði hafa tekið
virkan þátt í þessu starfi frá upphafi. Starfið
hefur fyrst og fremst skilað því að stofnanir
og starfsmenn velferðarmála á svæðinu eru
meðvitaðri um verkefni og aðstæður hver hjá
öðrum og boðleiðir ættu því að vera styttri. Hvað
framhaldið varðar, þá munum við áfram taka þátt í verkefninu ef Vel-
ferðarráðuneytið heldur áfram að leggja því lið, segir Árni Sigfússon.
„Mér finnst þessi skýrsla sýna að okkur hefur
miðað í rétta átt hér á Suðurnesjum og það
hefur margt jákvætt verið að gerast. Ég get þó
ekki sagt að ástandið sé orðið ásættanlegt
og enn eru ótal atriði sem þarf að vinna
í. Mikilvægasta verkefnið er að tryggja
áframhaldandi uppbyggingu atvinnutæki-
færa og þar skiptir miklu máli að fram-
kvæmdir við álverið í Helguvík komist í
gang sem fyrst. Mér finnst líka mikilvægt að
við höldum áfram að huga með markvissum
hætti að atvinnuþróun eins og gert hefur verið í
gegnum Hekluna,“ segir Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar
Sandgerðis um áfangaskýrslu Suðurnesjavaktarinnar.
„Það er áhyggjuefni hversu hlutfall háskólamenntaðra er langt fyrir
neðan landsmeðaltal. Því verður að breyta m.a. með því að efla enn
frekar menntastofnanir á Suðurnesjum og styrkja samvinnu og sam-
starf þeirra á milli.
Þá er sá fjöldi eigna á Suðurnesjum sem er í höndum Íbúðalánsjóðs
sláandi. Það þarf örugglega að greina þær tölur betur en þó er klárt
að þetta getur ekki talist eðlilegt ástand og hlýtur að vera sameiginlegt
verkefni ríkis og sveitarfélaga að skoða það nánar.
Það væri auðveldlega hægt að nefna fleiri atriði úr þessari ágætu
skýrslu sem er fín samantekt og gott verkfæri í höndum okkar allra
sem vilja hag Suðurnesjanna sem mestan. Hún er gagnleg til að skil-
greina þau verkefni sem þarf að takast á við og hjálpar til við að sjá þær
leiðir sem eru færar. Ég hef óbilandi trú á Suðurnesjunum og Suður-
nesjamönnum og þegar maður skoðar þau tækifæri sem við höfum hér
á svæðinu þá er ekki annað hægt en að vera bjartsýnn á framtíð okkar
sem eitt af sterkustu landsvæðum Íslands,“ segir Ólafur Þór í samtali
við blaðið.
VIÐBRÖGÐ VIÐ SKÝRSLUNNI
Tryggja verður áframhaldandi
uppbygginu atvinnutækifæra
Starfsmenn velferðarmála
á svæðinu meðvitaðri
SUÐURNESJAVAKTIN
Rúmlega 16% íbúa
í alvarlegum vanskilum