Víkurfréttir - 11.10.2012, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012 23
Tekur Milan Stefán
við Grindavík?
Hávær orðrómur er uppi um að Milan Stefán
Jankovic muni taka við knatt-
spyrnuliði Grindavíkur sem
féll úr Pepsi-deild karla í
haust. Stjórn Grindavíkur
nýtti sér ákvæði í samningi
við Guðjón Þórðarson að af-
stöðnu tímabili og sagði upp
launaliði samningsins. Báðir
aðilar þurfa því að setjast aftur
að samningaborðinu en afar
ólíklegt er að Guðjón haldi
áfram störfum sem þjálfari
liðsins enda var árangur liðsins
í sumar afleitur og sá versti
í sögu liðsins í efstu deild.
Jónas Þórhallsson, formaður
knattspyrnudeildar Grindavíkur,
vildi ekkert tjá sig um þjálfara-
mál í samtali við Víkurfréttir
en sagði að tíðinda væri að
vænta í lok mánaðarins. Milan
Stefán var aðstoðarþjálfari
Guðjóns í sumar og hefur
þjálfað yngri flokka félagsins.
Hann er reyndur þjálfari og
gerði Keflavík meðal annars að
bikarmeisturum árið 2004.
Heil umferð hjá
körlunum í kvöld
Heil umferð verður í Dominos-deild karla
í kvöld og verða Suður-
nesjaliðin í eldlínunni.
Keflvíkingar fara í heimsókn
til Stjörnunnar í Garðabænum
og Grindvíkingar taka á móti
Snæfelli á heimavelli sínum.
Njarðvíkingar gera sér svo
ferð í Borgarnes og leika á
móti Skallagrími. Allir leikir
hefjast kl. 19:15. Grindavík
og Njarðvík unnu góða sigra
í 1. umferð. Grindvíkingar
lögðu granna sína í Keflavík
í Toyota-höllinni, 80-95, og
á sama tíma gerði Njarðvík
sérdeilis góða ferð í Þorláks-
höfn og lagði heimamenn í Þór
í framlengdum leik, 82-84.
Ennþá sveifla
í kylfingum
Þrátt fyrir að komið sé fram í október er ennþá
líf í kylfingum hér á Suður-
nesjum. Allir golfvellir Suður-
nesja eru ennþá opnir fyrir
umferð og nýta margir sér
það til að leika á blíðveðurs-
dögum sem þó fer fækkandi.
Golfklúbbur Grindavíkur,
Golfklúbbur Sandgerðis og
Golfklúbbur Suðurnesja
munu hafa velli sína opna
eins lengi og veður leyfir í
haust og eru opin mót hjá
klúbbunum um helgar. Áhuga-
sömum kylfingum er bent á
heimasíður golfklúbbanna.
SPORTIÐ
Þessi 16 ára gamli leikmaður á ekki
langt að sækja hæfileikana því hann
er sonur Guðmundar Bragasonar,
fyrrum Íslandsmeistara, landsliðs-
manns og fyrirliða Grindavíkur.
Jón Axel þykir mikið efni og hefur
verið í yngri landsliðum Íslands, nú
síðast í U-16 ára liði. Hann hefur
æft af kappi á undirbúningstíma-
bilinu og unnið sér inn spilatíma
hjá Íslandsmeisturunum. Jón Axel
lék í um 10 mínútur í leik gegn
Keflavík í 1. umferð
Dominos-deildar-
innar síðastliðinn
mánudag þar sem
G r i n d v í k i n g a r
höfðu betur 80-95.
Jón Axel viðurkennir
að það sé smá pressa
á sér að standa
sig vel enda sonur
k ö r f u b o l t a g o ð -
sagnar í Grindavík.
„Jú, það er örugg-
lega smá pressa á
mér. Ég reyni samt
að hugsa ekkert um
þetta. Pabbi er líka
búinn að hjálpa mér
talsvert og segir mér að spila ákveð-
ið. Það er mjög gaman að vera núna
farinn að spila á móti þekktum leik-
mönnum í deildinni.“
Jón Axel fékk hæðina í arf frá föður
sínum og er í dag 192 cm að hæð.
Hann vonast til að ná pabba gamla í
hæð, sem er yfir tveir metrar á hæð,
áður en langt um líður. „Vonandi
gengur það eftir. Við pabbi erum
samt mjög ólíkir leikmenn. Ég spila
sem bakvörður og er mun meira
fyrir utan teig. Það er ekki spurning
að ég er mun fjölhæfari og miklu
betri leikmaður en pabbi,“ segir Jón
Axel og hlær. „Pabbi segir að hann
sé ennþá betri og við tökum oft
1-á-1 heima. Það er mjög gaman að
spila á móti honum.“
Eftir frábæran vetur í fyrra þá eru
miklar væntingar hjá Grindvík-
ingum um að fylgja Íslandmeist-
aratitlinum eftir með fleiri titlum á
nýhöfnu tímabili. Íslandsmeistar-
arnir byrja vel og unnu nýverið
Meistarakeppni KKÍ. Breytingar
hafa orðið á liðinu fyrir tímabilið í
ár og er ætlast til að ungir og upp-
aldir leikmenn komi sterkir inn af
bekknum.
„Sverrir hefur trú á okkur ungu
strákunum og ætlar að gefa okkur
tækifæri í vetur. Við þurfum að
skila inn framlagi þegar við fáum
sénsinn. Tímabilið byrjar vel og
það er frábært að byrja á útisigri
gegn Keflavík. Við unnum þar í
fyrra og urðum að lokum Íslands-
meistarar. Vonandi endurtökum
við leikinn.“
Keflavíkur-
stúlkur fóru illa
með granna sína
Keppnistímabilið í körfu-knattleik er komið í fullan
gang eftir langt undirbúnings-
tímabil. Heil umferð var hjá
konunum í gærkvöldi þar sem
Grindavík og Njarðvík mættust í
Röstinni og Keflavík fór í heim-
sókn í Vesturbæinn og lék gegn
KR. Blaðið var farið í prentun
áður en úrslit í leikjunum lágu
fyrir en finna má úrslit á vf.is.
Síðastliðinn laugardag mættust
Keflavík og Grindavík í Toyota-
höllinni og fóru heimastúlkur illa
með granna sína úr Grindavík.
Lokaúrslit urðu 87-47 fyrir
Keflavíkurstúlkum sem byrja
keppnistímabilið af krafti.
„Ég er miklu
betri en pabbi“
Stu
tta
r
n Jón Axel Guðmundsson er ungur og efnilegur
körfuboltakappi í Grindavík og ætlar að feta
í fótspor Guðmundar Bragasonar, föður síns:
Þ að er hrikalega gaman að vera kominn í meistaraflokk og að fá að spila. Sverrir
Þór (Sverrisson, þjálfari Grindavíkur) sagði
við okkur ungu leikmennina fyrir tímabilið
að við ættum tækifæri á að spila okkur
inn í liðið og ég var staðráðinn í að gera
það,“ segir Jón Axel Guðmundsson, ungur
körfuknattleiksmaður í liði Grindvíkinga
sem skoraði 4 stig í leiknum gegn Keflavík í
Dominos-deildinni á mánudag.
Sportið