Víkurfréttir - 11.10.2012, Side 24
Karlmaður á þrítugsaldri reyndist vera algjörlega út úr heiminum af völdum sveppaáts þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti
af honum. Maðurinn var staddur við hafnarvogina í Keflavík þegar lög-
regla varð hans vör. Hann reyndist vera í alvarlegu
vímuástandi og óviðræðuhæfur.
Lögreglumönnum tókst þó að greina af því sem hann
reyndi að segja að hann væri búinn að borða mikið
af sveppum. Maðurinn var færður á lögreglustöð og
látinn sofa úr sér. Síðan var tekin af honum skýrsla, þar
sem hann viðurkenndi sveppaátið, og var frjáls ferða
sinna að því búnu.
vf.is
Fimmtudagurinn 11. október 2012 • 40. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
Meira í leiðinni
GERÐU BÍLINN KLÁRAN
FYRIR VETURINN
FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA
WWW.DEKK.IS
Á DEKKJAHÓTELI N1
BÝÐST ÞÉR AÐ
GEYMA DEKKIN
GEGN VÆGUGJALDI
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1
REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT
SÍMI 440 1372
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
Stigið í vænginn
Hann vaknaði við kunnuglegt lag á Bylgjunni. Á ókunnum stað. Raggi Bjarna og Jón Jónsson
sungu Geira Sæm lagið „Froðan“
af einstakri hljómþýðu. Við hlið
hans lá kona sem hann hafði
hitt fyrr um kvöldið. Naktir lík-
amar þeirra lágu saman umvafðir
röndóttum sængurverum. Ekki
beint ósýnilega gyðjan eins og
laglínan úr viðtækinu. Þau höfðu
hist í Stapanum og látið vel að
hvort öðru. Dansað saman inn
í nóttina. Í hópi kunningja og vina. Allir voru að
skemmta sér. Þau stigu í vænginn hjá hvoru öðru
Hún var fráskilin fjögurra barna móðir. Eigin-maðurinn fyrrverandi hafði flust búferlum í leit
að ævintýrum. Atvinnutækifærin í Noregi toguðu í
hann eins og svo marga aðra iðnaðarmenn. Henni
leiddist einveran og ákvað að fara með vinkonunum
á ballið. Þráði að vera ein af stelpunum, jafnvel þó
henni hafi gengið illa að koma því fyrir á undan-
förnum árum. Átti erfitt með að fá barnapíu sem
hægt var að treysta á. Oftar en ekki hafði hún þurft að
fara fyrr heim, þar sem heimilið hafði verið undirlagt
af unglingum sem hópast höfðu í partíið hjá heima-
sætunni. Óvarin fyrir undirheimum og óþjóðalýð.
Skeyttu engu um börnin, sem voru henni allt. Lífs-
ins ljós. Afi og amma fóru blessunarlega með þau í
sveitina að þessu sinni. Henni létti að vita af þeim í
öruggum höndum.
Hafði séð hann endrum og eins í samkvæmum og fannst nærvera hans góð. Þekkti hann af
góðu einu. Þau ræddu heima og geima og áhugamál
hvors annars. Börnin komu oftar en ekki við sögu í
samræðunum. Ræddu skólann og íþróttirnar. Henni
fannst gott að fá athyglina frá honum enda engir
aðrir litið við henni frá skilnaðinum. Hún hafði gefið
sig alla að uppeldi barnanna og tileinkað lífið fjöl-
skyldunni. Henni leið þó ekki vel innra með sér og
depurðin ruglaði hana í ríminu. Hún bauð honum
heim. Eitt glas.
Það hvarflaði ekki að henni að þetta færi svona. Hún vaknaði óróleg um morguninn og sá að
hann var farinn. Það síðasta sem hún mundi, var að
hún lá í örmum hans og fékk koss á ennið. Umvafin
hlýju og mýkt. Anganin hans lagði enn um her-
bergið. Þá rann það upp fyrir henni hvað hafði gerst.
Engu að síður nagaði samviskan hana og hún grúfði
sig í koddann. Hét því að láta slíkt ekki henda sig
aftur. Aldrei.
FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA Í SÍMA 898 2222
vaktsími allan sÓlarHringinn
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um að barn
sem var sofandi úti í barnavagni
hefði verið tekið úr vagninum.
Atvikið átti sér stað í Reykjanesbæ
á milli kl. 13 og 14 á föstudaginn
fyrir rúmri viku.
Barnið, 14 mánaða gömul stúlka,
hafði verið sofandi úti í barnavagni
við íbúðarhús í Reykjanesbæ.
Þegar huga átti að barninu reyndist
það ekki vera í vagninum og eftir
skamma leit heyrðist í barninu sem
reyndist vera í húsagarði við næsta
hús en milli húsanna er 80-90 cm
há girðing. Ekkert virtist ama að
barninu.
Allt bendir til þess að óviðkomandi
hafi tekið barnið úr barnavagninum
og farið með það yfir í garðinn við
næsta hús.
Málið er til rannsóknar hjá lögregl-
unni á Suðurnesjum sem lítur það
mjög alvarlegum augum og hvetur
til sérstakrar aðgæslu með börnum
við þessar aðstæður í ljósi málsins.
Óviðræðuhæfur eftir sveppaát
Barn tekið
úr Barnavagni
n Fannst í næsta húsgarði