Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2002, Síða 5

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2002, Síða 5
ÁVARP FORMANNS / XV. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKN A XV. þing Félags íslenskra lyflækna á ísafirði Enn á ný er komið að þingi Félags íslenskra lyf- lækna sem er hið fimmtánda í röðinni og er að þessu sinni haldið í höfuðstað Vestfjarða, ísafirði. Þing félagsins hafa jafnan verið mikilvægur vett- vangur fyrir lyflækna til að kynna vísindarann- sóknir sínar eða fá innsýn í það sem er ofarlega á baugi á sviði lyflækninga. Margir eiga góðar minningar frá fyrri þingum þar sem oftast hefur tekist vel að sameina fræðaiðkun og skemmtileg- ar samverustundir með starfsfélögum. Staðsetn- ing þinganna utan höfuðborgarsvæðisins, í kyrr- látu og heillandi umhverfi, á vafalítið sinn þátt í þeim sessi sem þessi þing hafa öðlast. Þetta er í annað sinn sem lyflæknaþing er haldið á ísafirði en það var einnig haldið þar 1988. Líkt og áður verður kynning vísindarann- sókna uppistaða þingsins. Að þessu sinni verður sú breyting að frjáls erindi verða færri en verið hefur en veggspjöld þeim mun fleiri. Jafnframt verður boðið upp á fleiri gestafyrirlestra og mál- þing, auk þess sem bryddað verður upp á nýjung- um eins og klímskum perlum og umfjöllun um klímskar leiðbeiningar. Að venju verða veitt verðlaun fyrir framúrskarandi erindi ungs læknis og fyrir besta framlag læknanema. Þá verður sú nýbreytni að veitt verða verðlaun fyrir besta veggspjaldið. Meðal þess sem hæst ber er málþing um nýleg- ar uppgötvanir í khmskri ónæmisfræði sem helgað er minningu Ásbjörns Sigfússonar læknis. Ás- björn lést langt fýrir aldur fram þann 8. september á síðasta ári og skildi hann eftir sig vandfyllt skarð. Hann gegndi um árabil mikilvægu hlutverki á lyflæknaþingum, þar sem hann jafnan glæddi um- ræðuna lífi með gagnlegum ábendingum. Ás- björns verður sárt saknað á þingi því sem nú fer í hönd. Það er því við hæfi að tveir framúrskarandi vísindamenn á því sviði sem Ásbjörn tileinkaði sér, klínískri ónæmisfræði, munu flytja erindi á þessu málþingi. Þá verður málþing um stöðu almennra lyf- lækninga á íslandi. Á undanförnum árum hafa al- mennar lyflækningar átt undir högg að sækja hér á landi og meðal nágrannaþjóða, vegna framþró- unar í undirgreinum lyflækninga sem leitt hefur til aukinnar sérhæfingar í þjónustu við sjúklinga, jafnt innan sem utan sjúkrahúsa. Hefur jafnvel verið uppi orðrómur um að almennar lyflækning- ar sem sérgrein heyri sögunni til. Þessu sjónar- miði eru þó ýmsir ósammála og liggja því til grundvallar tvær meginástæður. í fyrsta lagi hefur sjaldan verið meiri þörf en nú fyrir almenna lyf- lækna til að annast ört stækkandi hóp aldurhnig- inna sjúklinga er haldnir eru fjölþættum heilsu- bresti. í öðru lagi gegna almennar lyflækningar lykilhlutverki í kennslu í lyflæknisfræði, bæði í grunnnámi í læknisfræði og í framhaldsnámi í lyf- lækningum, heimilislækningum og fleiri sérgrein- um. Vænta má að á málþinginu verði hlutverk almennra lyflækninga brotið til mergjar. A undanförnum árum hefur neysla margvís- legra náttúrulyfja og fæðubótarefna færst mjög í vöxt. Ljóst er að umtalsverður hluti þeirra sjúk- linga sem lyflæknar annast, taka náttúrulyf sam- hliða hefðbundnum lyfjum. Lítið er þó vitað um gagnsemi náttúrulyfja. Þrátt fyrir mikla umræðu um þetta viðfangsefni á undanförnum misserum hefur skort á vandaða umfjöllun sem byggir á niðurstöðum vísindarannsókna. Félagi íslenskra lyflækna þykir tímabært að blanda sér í þessa umræðu og efnir til málþings þar sem fjallað verður um stöðu þekkingar varðandi náttúrulyf og fæðubótarefni. Fulltrúar lyfjafyrirtækja munu að venju standa fyrir sýningu á lyfjum og öðrum vörum sem þau hafa að bjóða og er þeim hér með þakkað fyrir þeirra framlag. Jafnframt er hinum mörgu stuðn- ingsaðilum þakkað fyrir veittan stuðning. Að venju verður reynt að auðga anda þing- gesta með vandaðri skemmtidagskrá. Vonandi ntunu þátttakendur í þessu XV. þingi Félags ís- lenskra lyflækna eiga ógleymanlega daga í tignar- legri náttúru Vestfjarða. Runólfur Pálsson, formaður Félags íslenskra lyflækna Runólfur Pálsson Læknablaðið/Fylgirit 44 2002/88 5

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.