Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Side 31

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Side 31
XIX ÞING LYFLÆKNA FYLGIRIT 65 var meðallengd eftirfylgdar 23,13 ± 12,8 ár. Hurfu 61 þeirra (13,1%) úr eftirliti að meðaltali 17,5 ± 11,8 árum frá greiningu. Eftirfylgd var a.m.k. 20 ár hjá 247 sjúklingum og a.m.k. 40 ár hjá 48. Sjötíu og fjórir sjúklingar greindust með SNM. Safngengi SNM. eftir 20 ár með sykursýki var 15,0% og 31,6% eftir 40 ár. Ekki var marktækur munur á 20 ára safngengi SNM eftir því á hvaða árabili sykursýki greindist. Atján sjúklingar fengu LSNB að meðaltali 10,5 ± 9,6 árum (spönn 0,31-29,3 ár) eftir greiningu SNM. Safngengi LSNB eftir 40 ár með sykursýki var 13,2%. Meðaleftirfylgd eftir greiningu SNM hjá þeim sem ekki fengu LSNB var 11,8 ± 9,1 ár. Ályktanir: Safngengi SNM hefur ekki lækkað að sama marki og í Danmörku og Svíþjóð en er þrátt fyrir það mun fátíðari orsök LSNB hérlendis. Fremur hátt hlutfall sjúklinga með staðfest SNM virðist ekki fá nýrnabilun. Það bendir til að framrás SNM sé hægari hér á landi. V056 Tengsl þunglyndis og sykursýki af tegund 2 meðal aldraðra á íslandi Benedikt Bragi Sigurðsson’, Thor Aspelund2-3, Ama Guðmundsdóttir4, Brynja Björk Magnúsdóttir5, Þórður Sigmundsson5-6, Tamara Harris7, Lenore Launer7, Vilmundur Guðnason2-6, Eiríkur Öm Amarson5-6 'Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, 2Hjartavemd, 3raunvísindadeild Háskóla íslands, 4lyflækningasviði, 5sálfræðiþjónustu geðsviðs Landspítala, 6læknadeild Háskóla íslands, 7Óldmnarstofnun Bandaríkjanna Inngangur: Tilgangur rannsóknar var að kanna algengi þunglyndis meðal aldraðra með sykursýki af tegund 2 (SS2); hvort munur væri á algengi meðal þekktrar (áður greind) og óþekktrar (nýgreind) SS2; hvort samband væri milli árafjölda frá greiningu SS2 og þunglyndis; hvernig þunglyndir og sykursjúkir mátu eigin heilsu. Efniviður og aðferðir: Gögn voru fengin úr Öldrunarrannsókn Hjartavemdar; handahófsúrtak (n = 5.764) var dregið úr eftirlifandi þýði (N = 30.795) íslendinga sem bjuggu á Stór-Reykjavíkur svæðinu árið 1967 og vom hluti af Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar. Þátttakendur sem uppfylltu viðmið fyrir úrvinnslu gagna voru 4.605 (42,7% karlar og 57,3% konur). Mini-International Neuropsychiatric Interview (M.I.N.I.) geðgreiningarviðtal (lagt fyrir 1.030 þátttakendur, 22%) var notað til að meta þunglyndi eftir skimun með Geriatric Depression Scale (GDS), en SS2 var ákvörðuð með spurningum og mælingu á fastandi blóðsykurgildi. Þátttakendur mátu heilsu sfna á fimm stiga kvarða. Notuð var aðfallsgreining hlutfalla og kí-kvaðrat. Niðurstöður: 214 (4,6%) greindust með alvarlega geðlægð og 533 (11,6%) með SS2. Tölfræðilega marktækt samband var milli þunglyndis og SS2. Eftir því sem lengra var liðið frá greiningu SS2 jukust líkur á þunglyndi: SS2 sem varað hafði lengur en 10 ár Odds Ratio (OR) = 2,47 (95% öryggisbil: 1,35-4,51); SS2 sem varað hafði skemur en í 10 ár OR = 1,50 (95% öryggisbil: 0,79-2,88); nýgreind SS2 OR = 1,17 (95% öryggisbil: 0,50-2,76). Marktækt samband var milli þunglyndis og þess að vera á insulínmeðferð vegna SS2 OR = 4,28 (95% öryggisbil 1,56-11,70). Stjórnað var fyrir 14 lýðfræðilegum og heilsufarstengdum breytum, m.a. blóðsykurstjórnun (HbAlc); breyturnar skýrðu ekki sambandið. Þunglyndir og sykursjúkir meta heilsu sína marktækt verr en samanburðarhópur. Ályktanir: Fylgni er á milli þunglyndis og SS2. Algengi þunglyndis eykst hjá sykursjúkum því lengra sem liðið hefur frá greiningu. Niðurstöður benda til þess að sálfélagslegir þættir tengdir SS2 auki líkur á þunglyndi. V057 Vanstarfsemi heiladinguls í bráðafasa höfuðáverka og innanskúmsblæðinga - framsýn rannsókn Pétur Sigurjónsson', Ásta Dögg Jónasdóttir1, Ingvar Hákon Ólafsson2, Sigurbergur Kárason3, Guðrún Karlsdóttir4, Guðmundur Sigþórsson5, Rafn Benediktsson6, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir6 'Lyflækningasviði, 2heila- og taugaskurðlækningadeild, 3svæfinga- og gjörgæsludeild, 4endurhæfingardeild, 5klínískri lífefnafræðideild, 6innkirtla- og efnaskiptalækningadeild, Landspítala Inngangur: Höfuðáverkar (TBI) eru algengasta orsök fötlunar og dauða ungs fólks. Innanskúmsblæðingar (SAH) valda einnig fötlun og dauða. Rannsóknir sýna að TBI og SAH geti fylgt tímabundin eða varanleg vanstarfsemi heiladinguls (HP), allt að 50% í bráðafasa TBI. Efniviður og aðferðir: Meta algengi HP í bráðafasa eftir alvarlega TBI (A-TBI) og miðlungsalvarlega TBI (M-TBI) (Glasgow coma score s8 eða 9-12) og SAH á LSH. Efniviður og aðferðir: Á einu ári voru framsýnt valdir 21 TBI sjkl., 6 M-TBI og 15 A-TBI, 17 karlar og 4 konur, meðalaldur 34±13 ár (aldursbil 18-65 ára). Nítján SAH sjkl., 12 karlar og 7 konur, meðalaldur 54±14 ár (aldursbil 30-85 ára). Hormónagildi voru mæld við innlögn og 6 dögum síðar, kortisól að morgni dags 1-6 og synacthen próf á degi 6. Niðurstöður: Á degi 6 höfðu, 3 af 6 M-TBI, 6 af 15 A-TBI og 3 af 19 SAH sjkl. miðlægan kynhormónaskort, einn A-TBI mið- lægan skjaldkirtilshormónaskort, þrír SAH sjkl. mögulegan vaxtar- hormónaskort, einn A-TBI sykursteraskort sem hafði lagast á degi 19. Tveir A-TBI og einn SAH sjkl. höfðu vanstarfsemi á tveimur hormónaöxlum. Sjö voru ekki athugaðir á degi 6, fjórir höfðu látist, þrír mættu ekki. Algengi HP við M-TBI og A-TBI til samans var 42,9% og SAH 26,3%. Ályktanir: Algengi HP við TBI er sambærilegt við erlendar rannsóknir. Miðlægur kynhormónaskortur finnst í bráðafasa SAH eins og TBI. Vanstarfsemi annarra hormónaöxla er líklegri við A-TBI og SAH en M-TBI. Rannsóknin sýnir að HP getur fylgt SAH í bráðafasa líkt og TBI, því hefur ekki verið lýst áður. V058 Lyfjameðferð á lítinn þátt í lækkun heildarkólesteróls hjá íslendingum Bolli Þórsson', Thor Aspelund1, Gunnar Sigurðsson1-2, Karl Andersen1-2, Vilmundur Guðnasonu 'Hjartavemd, 2læknadeild Háskóla íslands Inngangur: Heildarkólesteról í blóði hefur farið lækkandi á Vesturöndum undanfarna áratugi. Lækkunin hefur orðið hvað mest eftir 1990 samtímis því sem ný fitulækkandi lyf komu á markað. I mörgum rannsóknum hefur verið ályktað að lækkunin kunni að stafa af aukinni notkun blóðfitulækkandi lyfja. Hins vegar hafa fyrri rannsóknir ekki getað kannað slíkt samhengi þar sem upplýsingar um lyfjanotkun og blóðgildi kólesteróls hafa ekki legið fyrir hjá sömu einstaklingum. Efniviður og aðferðir: Heildarkólesteról hefur verið mælt í blóði í Reykjavíkurrannsókn Hjartavemdar á umliðnum 40 árum. Upplýsingar um kólesteról liggja því fyrir hjá um 20 þúsund einstaklinga á aldursbilinu 45-64 ára. Spurt hefur verið um blóðfitulækkandi lyfjanotkun frá 1988. Niðurstöður: Notkun statinlyfja hefur aukist hratt frá því um 1990. Núna eru um 15% karla og 7% kvenna á Islandi á statin lyfja meðferð. Ef borin er saman sú lækkun sem orðið hefur í heildarkólesteróli meðal allra karla annars vegar og hjá þeim 88% karla sem ekki eru á statin lyfjum hins vegar kemur í ljós að lækkunin er að meðaltali sú sama. Það sama á við um konur. Ályktanir: Sú lækkun sem orðið hefur í heildarkólesteróli íslendinga á LÆKNAblaðið 2010/96 31

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.