Bæjarins besta - 06.09.2007, Blaðsíða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 6. september 2007 · 36. tbl. · 24. árg.
Áföll í atvinnulífi á norðanverðum Vestfjörðum hafa verið mikil og tíð síðasta árið og er öllum ljóst að bregðast þarf við.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, er einn þeirra sem mæðir á í þessum málum, en sumum hefur þótt aðgerðar-
leysi bæjaryfirvalda vera áberandi. Þá vilja margir meina að viðvera hans á skrifstofu hafi minnkað til muna eftir að hann
tók að sér formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Bæjarins besta fór á fund bæjarstjóra til að spyrja hann út
þessa gagnrýni, atvinnuástand á svæðinu, olíuhreinsunarstöð og fleira. Sjá nánar viðtal við Halldór í miðopnu.
Margt jákvætt
að gerast
Ísfirski fótboltakapp-
inn Matthías Vilhjálms-
son er undir smásjánni hjá
norska úrvalsdeildarlið-
inu Odd Grenland. Liðið
er einungis eitt af mörg-
um á Norðurlöndunum
sem hafa áhuga á að fá
hann í sínar raðir. Matt-
hías hefur farið mikinn
með FH í Landsbanka-
deildinni í sumar.
Útsendari á vegum Odd
Grenland fylgdist með
Matthíasi skora tvö mörk
í sigri FH á Fylki fyrir
stuttu. Er áhugi hjá norska
liðinu að fá leikmanninn
til reynslu í haust. Matt-
hías hefur vakið mikla og
verðskuldaða athygli í
sumar og sparspekingar
segja það einungis tíma-
spursmál hvenær hann
heldur í atvinnumennsk-
una. Hann var valinn
maður fjórtaándu umferð-
ar í Landsbankadeildinni
eftir frammistöðu sína
með FH. Hann hefur alls
skorað níu mörk í sumar.
Matthías er fæddur og
uppalinn á Ísafirði og hóf
að æfa fótbolta með BÍ.
Hann fluttist til Reykja-
víkur 16 ára gamall og
gekk þá til liðs við FH.
Vekur áhuga
erlendra liða
Þurfa útgerðir að sækja
um byggðakvótann aftur?
Samkvæmt breytingu sem
bæjarráð Ísafjarðarbæjar sam-
þykkti verður fellt út ákvæði
um að byggðakvóta skuli skipt
samkvæmt lönduðum afla til
vinnslu í viðkomandi byggð-
arlagi á tímabilinu 1. júlí 2006
til 30. júní 2007. Ekki er vitað
hvort þurfi að auglýsa byggða-
kvótann aftur lausan til um-
sóknar. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar,
segir að þetta hafi verið gert
að ábendingu Fiskistofu. Ástæð-
an er sú að samkvæmt úthlut-
unarreglunum sem unnið var
eftir í fyrra þurfti að landa
afla í viðkomandi byggðar-
lagi. Einhverjar útgerðir áttu í
vandræðum með að fá aflann
keyptan til vinnslu.
Úthlutunarreglum fyrir
byggðakvótann var breytt og
fyrir fiskveiðiárið sem er að
ljúka nægir að aflinn sé unninn
í viðkomandi sveitarfélagi.
Halldór segir að bærinn hafi
ekki viljað útiloka fyrirtæki
frá því að fá úthlutað byggða-
kvóta vegna þessa og segir
jafnframt að það gæti farið
svo að það þurfi að auglýsa
hann aftur og útgerðir þurfi
að sækja aftur um. Mjög erfið-
lega hefur gengið að úthluta
byggðakvóta yfirstandandi
fiskveiðiárs en kvótaáramót
voru 1. september. Einungis
örfá sveitarfélög á landinu
hafa úthlutað sínum kvóta.