Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Side 9

Bæjarins besta - 18.10.2007, Side 9
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 9 MANNAUÐSSTJÓRI Ísafjarðarbær óskar eftir að ráða metn- aðarfullan einstakling til að takast á við nýtt starf mannauðsstjóra hjá bæj- arfélaginu. Starfssvið: Þróun mannauðsstefnu og almenn framkvæmd hennar. Starfsþróun, þ.m.t. mat á frammi- stöðu. Starfslýsingar og skipurit. Fræðslu- og símenntunarmál starfs- manna. Starfsráðningar og móttaka nýliða. Önnur verkefni sem tengjast mann- auðsmálum. Hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfinu. Framhaldsmenntun á sviði mannauðs- mála æskileg. Starfsreynsla á sviði stjórnunar- og mannauðsmála æskileg. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Frumkvæði og leiðtogahæfni. Umsóknir sendist til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði. Umsókn- arfrestur er til 1. nóvember nk. Upplýsingar um starfið gefur Þorleif- ur Pálsson, bæjarritari í síma 450 8000 og á netfangi: thorleifur@isafjordur.is Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Gert ráð fyrir mikilli fjölgun nemenda Gert er ráð fyrir að nemendum við Háskólasetur Vestfjarða fjölgi í 545 árið 2011 og að þeir verða 410 á næsta ári. Miðað við áætlaðan fjölda nemenda þarf starfsemi Háskólaseturs mun stærra húsnæði. Þörf er á 10-12 kennslu- stofum, stórum fyrirlestrarsal, skrifstofuaðstöðu fyrir 40 manns, aðstöðu fyrir hópavinnu, lesaðstöðu, og aðstöðu fyrir doktorsnema. Þá er ónefnd mötu- neytisaðstaða, móttökuaðstaða og fleira. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi þar sem framtíðarsýn Háskólasetursins var kynnt. Bubbi heimsótti Menntaskólann Bubbi Morthens kom til Ísafjarðar í síðustu viku í þeirri von að finna næstu söngstjörnu Íslands í ,,Bandið hans Bubba” sem hefur göngu sína á Stöð 2 í vor. Bubbi byrjaði heim- sókn sína vestur á því að fara í Menntaskólann á Ísafirði þar sem hann kom ungri stúlku, sem jafnframt er nemandi við skólann, á óvart með því að mæta í miðjan tíma hjá henni og söng svo Stál og hnífur með henni. Umhverfisnefnd Ísafjarðar- bæjar hefur samþykkt að pakkhúsið á Flateyri verði fært af athafnarsvæði á Flateyrar- odda yfir á lóð Hafnarstrætis 2 á Flateyri. Svarta pakkhúsið, eins og það er oft nefnt, er líklega elsta húsið á Flateyri, en það ku vera byggt um miðja 19. öld. Upphaflega tilheyrði húsið verslun Hjálmars Jóns- sonar og Torfa Halldórssonar. „Brýnt er að húsið verði flutt því það er á miðju athafna- svæði á Flateyrarodda. Þarna væri e.t.v. hægt að koma upp sögusýningu frá tíma Torfa og Hjálmars (hákarlaútgerðin og verslun) eða harðfisksölu og upplýsingum um sögu af- urðarinnar, verkun o.fl“, segir Jóhann Bæring Gunnarsson, verkefnastjóri tæknideildar Ísafjarðarbæjar. Í nýju aðalskipulagi hefur húsinu verið afmarkaður stað- ur neðarlega við Hafnarstræti en þar gæti það orðið hluti af umhverfi sem hugmynd er um að þróa í samræmi við menn- ingartengda ferðaþjónustu. Við Hafnarstrætið má finna gömlu bókabúð þorpsins, en þar er nú safn. Einnig er al- þjóðlegt brúðusafn til húsa við Hafnarstrætið, nánar tiltekið í Félagsbæ. Vonast er til að pakkhúsið og umhverfi þess geti nýst sem safnhús og stað- ur þar sem menningartengd starfsemi fer fram að sumar- lagi. Pakkhúsið var notað fram á síðari hluta 20. aldar. Tillögur um samvinnu við Ísafjarðarbæ og Minjasjóðs Önundarfjarðar um flutning hússins voru sendar til bæjarstjórnar í febr- úar en málinu vísað til Bygg- ðasafns Vestfjarða. Í stjórn Byggðasafns var málið á dag- skrá 27. mars og er þar bókað að tekið væri undir hugmyndir um að flytja húsið, finna því nýjan stað við Hafnarstræti gegnt húsi nr. 1 og pakkhúsinu fundið hlutverk í tengslum við menningartengda ferðaþjón- ustu. Húsið er um 45 fermetr- ar. – thelma@bb.is Elsta húsið á Flateyri fært Stefnumót DV við almenning DV ætlar að eiga stefnu- mót við Vestfirðinga á morgun þar sem ritstjórar blaðsins, Reynir Traustason og Sigurjón Magnús Egils- son, ræða um stefnu blaðs- ins í nútíð og framtíð og hlýða á sjónarmið fólks. Hér er um að ræða fyrsta fundinn af fimm í hringferð DV um landið. DV mun skemmta Vestfirðingum með tónlist, spurningarkeppni og skemmti- legu spjalli. Forseti bæjar- stjórnar og bæjarstjóri Bol- ungarvíkur takast á við for- seta bæjarstjórnar og bæjar- stjóra Ísafjarðarbæjar í spurn- ingarkeppni þar sem sigur- vegarinn velur sér baráttu gegn fíkniefnum sem verð- launaféð, 100.000 krónur, rennur til. Við lok hringferðarinnar verður valið eitt sigurlið sem fær að auki milljón krónur til að berjast gegn fíkniefnavandanum. Elín Ragnarsdóttir, framkvæmda- stjóri Birtíngs og DV, verð- ur dómari í keppninni og afhendir verðlaunafé. Tónlistarmaðurinn Einar Ágúst mun koma fram og væntanlega Grjóthrunið úr Bolungarvík. Lýður Árna- son, kvikmyndaleikstjóri, tónlistarmaður og læknir, hefur tekið að sér að vera atburðarstjóri á fundum DV um allt land. Fundurinn verður á Kaffi Edinborg á Ísafirði og stendur yfir frá kl. 20-22. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginmanns míns og föður Óskars Rúnars Samúelssonar Dagný Viggósdóttir og börn. Vegaframkvæmdir eru hafn- ar í Hnífsdal vegna undirbún- ings jarðgangagerðar til Bol- ungarvíkur. Að sögn Gísla Ei- ríkssonar, umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Ísafirði, eru framkvæmdirnar ætlaðar til þess að auðvelda aðkomuna þegar jarðgangagerðin hefst í vetur eða vor. Verið er að vinna að útboðslýsingu og gert er ráð fyrir að útboð fari fram á næstu vikum. Um er að ræða langþráð jarðgöng milli Hnífsdals og Bolungar- víkur, ásamt byggingu for- skála og vega. Göngin eiga að vera 8,7 metra breið og 5,1 kílómetri að lengd. Einnig á að byggja um 310 metra langa steinsteypta vegskála, og 3 kílómetra langa vegi og tvær 15 metra langar steinsteyptar brýr. Með þingsályktun árið 1999 var samþykkt að vinna skyldi langtímaáætlun um gerð jarð- ganga á Íslandi þar sem sér- staklega yrði horft til fram- kvæmda sem rjúfa vetrarein- angrun, koma í stað annarrar kostnaðarsamrar vegagerðar, stytta vegalengdir og stækka atvinnusvæði. Það var þó ekki fyrr en í byrjun árs er ný sam- gönguáætlun var kynnt að far- ið yrði í gerð jarðganga frá Bolungarvík sem koma út á Skarfaskeri við Hnífsdal. Samkvæmt samgönguáætlun- inni er gert ráð fyrir að Bol- ungarvíkurgöngum verði lok- ið árið 2010. – thelma@bb.is Undirbúningur fyrir jarð- gangagerð hafinn í Hnífsdal Hafist hefur verið handa við að undirbúa jarðgangagerð frá Hnífsdal til Bolungarvíkur.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.