Bæjarins besta - 18.10.2007, Page 13
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 13
Ísfirskir gullsmiðir opna gallerý
Ísfirsku gullsmiðirnir og skargripahönnuðirnir, Dýrfinna Torfadóttir og Finnur
Guðni Þórðarson, hafa opnað sameiginlega vinnustofu og gallerý á Akranesi.
Um 200 manns heimsóttu þau og þáðu veitingar í tilefni dagsins og mátti sjá
mörg kunnugleg andlit svonefndra brottfluttra Ísfirðinga. Um kvöldið buðu
Finnur og Dýrfinna gestum og iðnaðarmönnum til hófs á vinnustofunni. Dýr-
finna er sem kunnugt er orðin mjög þekkt í faginu. Finnur er hins vegar hefja
sjálfstæðan feril eftir að hafa lokið námi hjá henni og unnið hjá henni síðastliðin ár.
Flutningsgjöld munu lækka...
150 milljónum króna verður veitt til jöfnunar á kostnaði við vöruflutninga til Vestfjarða
samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2008 sem kynnt var fyrir stuttu.
Jörundur Jörundsson, framkvæmdastjóri hjá Landflutningum Samskip, segir það ljóst að
flutningsgjöld til og frá Vestfjörðum muni lækka ef allir aðrir kostnaðarliðir standi í stað.
„Menn voru auðvitað bara að fá þetta í hendurnar en það segir sig alveg sjálft að ef þetta
gengur eftir og allur annar kostnaður stendur í stað þá munu vörugjöldin lækka. Ef kostn-
aður hækkar þá hækka gjöldin en þau lækka aftur á móti ef kostnaðurinn lækkar.“
Afmæli BG fagn-
að á Veturnóttum
Undirbúningur fyrir lista-
og menningarhátíðina Vet-
urnætur gengur vel og viða-
mikil dagskrá er að líta
dagsins ljós en hátíðin fer
fram í Ísafjarðarbæ dagana
25.-28. október. „Laugar-
dagurinn er orðinn þéttskip-
aður og hann er í raun stærsti
dagur hátíðarinnar“, segir
Anna Sigríður Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri hátíðar-
innar. Þá verður svokallaður
Langur laugardagur á Ísa-
firði þar sem verður sam-
ræmdur opnunartími í versl-
unum og einnig verður boð-
ið upp á lifandi tónlistar-
flutning og uppboð í mið-
bænum, svo eitthvað sé
nefnt. Seinnipartinn verða
trúbadorarnir Mysterious
Marta og Svavar Knútur
með tónleika fyrir alla fjöl-
skylduna í hlöðunni á Heima-
bæ í Arnardal.
Konukvöld verður á veit-
ingastaðnum Við Pollinn og
haldið verður upp á afmæli
tónlistarmannsins góðkunna
Baldurs Geirmundssonar í
Edinborgarhúsinu. „Baldur
fagnar stórafmæli í október
og ákvað menningarmála-
nefnd Ísafjarðarbæjar að
heiðra hann með því að
bjóða öllum bæjarbúum til
veislu“, segir Anna Sigríð-
ur. Í afmælinu munu hinir
ýmsu tónlistarmenn stíga á
stokk. Í beinu framhaldi af
afmælisfögnuðinum verður
haldin flugeldasýning við
Pollinn.
Margt fleira er að finna á
dagskránni og má þar nefna
sögusöngleikinn Svona eru
menn með Einar Kárasyni
og KK, sýningu á heimild-
armyndinni um óhefðbund-
nu fegurðarsamkeppnina
Óbeisluð fegurð, myndlist-
arsýningu listakonunnar
Huldu Hákon og myndlist-
arsamkeppni barna.
Hátíðin var fyrst haldin
árið 1997 og fagnar því tíu
ára afmæli í ár. Veturnætur
voru endurvaktar fyrir fjór-
um árum og hafa síðan verið
fastur liður í mannlífinu á
svæðinu í kringum vetrar-
daginn fyrsta. „Við viljum
að þessi hátíð sé árviss
viðburður og erum bjartsýn
á að það takist þar sem
vegur Veturnátta fer vax-
andi“, segir Anna Sigríður
Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri. – thelma@bb.is
Vilja að Vegagerð-
in sjái um veginn
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
hyggst óska eftir því við
samgönguráðuneytið að
vegurinn frá Botni og út í
Selárdal í Súgandafirði
verði færður til Vegagerð-
arinnar, sem héraðs- eða
landsvegur. Á fundi bæjar-
ráðs fyrir stuttu var tekið
fyrir erindi frístundaeig-
enda í Selárdal þar sem þeir
segjast vera orðnir lang-
eygir eftir marglofuðum
endurbótum á veginum.
Um er að ræða 6-7 km
vegarkafla sem ekkert hefur
verið gert fyrir í fjölda ára
annað en að hreinsa grjót af
veginum á vorin svo hann
sé „fær“ yfir sumarið. Ræsi
hafa lagst saman og stíflast,
ofaníburður er farinn veg
allrar veraldar og í fjörunni
hverfur vegurinn í sjóinn á
köflum á veturna. „Nú er
svo komið að vegurinn get-
ur varla talist fær nema jepp-
um“, segir í bréfi til sveitar-
félagsins.
„Þetta gerist þrátt fyrir
ítrekuð loforð bæjarfulltrúa,
kosningar eftir kosningar,
um að bæta þetta ástand.
Viljum við fara þess á leit
við yður að nú verði brugð-
ist við og verkin látin tala.
Gerð verði framkvæmda-
áætlun, verkinu komið á
fjárhagsáætlun og hafist
handa við endurbætur hið
fyrsta.“
Bæjarráð vísaði erindinu
til tæknideildar vegna vinnu
við fjárhagsáætlun ársins
2008 og fól jafnframt bæjar-
stjóra að ræða við sam-
gönguráðuneytið um að
vegurinn verði færður til
Vegagerðarinnar.
– thelma@bb.is
Suðureyri.
Verkalýðsfélag Vestfirð-
inga segir að ef Vestfirðingar
ætli sér að vera samkeppnis-
hæfir um fólk á vinnumarkaði
verða vinnuveitendur að bjóða
upp á mannsæmandi laun á
öllum sviðum atvinnulífsins.
Finnbogi Sveinbjörnsson, for-
maður félagsins, segir í pistli
á vef Verk-Vest að Vestfirð-
ingar verði að gera þá kröfu í
komandi kjarasamningum að
laun á atvinnusvæði þeirra
verði samkeppnishæf við það
sem gerist á suðvesturhorninu.
„Ekki er hægt að búast við
því að fólk flykkist hingað til
starfa þegar stöðugt er klifað
á því að hér séu meðallaun
með því lægsta sem gerist á
landinu. Það er af sem áður
var þegar meðaltekjur á Vest-
fjörðum voru með því hæsta á
landsvísu og fólk flutti al-
mennt í velmegunina hér fyrir
vestan.“
Í pistlinum segir Finnbogi:
„Vestfirskir vinnuveitendur
verða að gera sér grein fyrir
því að með því að viðhalda
láglaunastefnunni er sú hætta
fyrir hendi að launafólk flytjist
einfaldlega burt frá Vestfjörð-
um í leit að mannsæmandi
launum. Á meðan þessi staða
er nánast viðvarandi í launa-
þróun hér í fjórðungnum get-
um við varla gert ráð fyrir því
að manna þau störf sem okkur
eru nauðsynlegt til að halda
hjólum atvinnulífsins á Vest-
fjörðum gangandi.
Á almennum launamarkaði
býr fólk við strýpuð taxta laun
og nánast ekkert umfram það.
Þetta á ekki síður við um þá
sem hafa langskólamenntun
að baki, þeir skila sér í æ
minna mæli aftur í heima-
byggð ekki síst vegna þeirra
launaþróunar sem þar er í
gangi. Hvernig ætlumst við
til að fólk setjist hér að ef ekki
eru í boði laun sem duga til
mannsæmandi framfærslu?
Hér verður að koma til al-
gjör hugarfarsbreyting við að
koma launum í næstu kjara-
samningum í það horf að reisn
verði af. Með sameiginlegu
átaki ber okkur öllum samfé-
lagsleg skylda til að koma
launaþróun á Vestfjörðum
aftur í það horf að kjör á vinnu-
markaði verði með því besta
sem gerist á landsbyggðinni.
Vestfirðingar, komum fjórð-
ungnum aftur í fremstu röð
hvað launaþróun varðar, og
tryggjum með því grunninn
að traustari velferð okkar allra.“
– thelma@bb.is
Vestfirðingar eiga að gera
kröfu um samkeppnishæf laun
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, klippti á borða ásamt Fríðu Dögg Ragnars-
dóttur formanni nemendaráðs GÞ við vígslu nýju skólalóðanna. Myndir: Ellert Örn Erlingsson.
„Flottustu skólalóðir norðan alpafjalla“
Nýjar og endurbættar lóðir
leikskólans Laufáss og Grunn-
skólans á Þingeyri voru teknar
í notkun við formlega athöfn í
síðustu viku. „Þetta er liður í
stefnu sveitarfélagsins að end-
urnýja leikskóla- og skólalóðir
bæjarins. Lóðirnar eru stór-
kostlegar og ég held svei mér
þá að þær séu þær flottustu
norðan alpafjalla“, segir Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, sem við at-
höfnina flutti stutt ávarp og
klippti á borða ásamt Fríðu
Dögg Ragnarsdóttur formanni
nemendaráðs GÞ.
Unnið hefur verið að end-
urbótum á báðum skólalóð-
unum og uppsetningu nýrra
leiktækja í sumar og haust.
Sett hefur verið fallvörn við
leiktækin sem felst í mjúku
undirlagi sem hleypir þó vatni
í gegnum sig. Áætlaður kostn-
aður við endurbæturnar eru
10 milljónir, fjórar milljónir
við grunnskólalóðina og sex
við leikskólann. Unnið var við
nokkuð erfiðar veðuraðstæður
í haust og var því tjaldað yfir
framkvæmdasvæðið.
Heimamenn eru vitaskuld
hæstánægðir með endurbæt-
urnar. „Þetta eru einu leik-
svæðin á Þingeyri og því mikil
lyftistöng fyrir alla eyrina að
fá svona aðstöðu sem stenst
nútímakröfur og er eins og
best verður á kosið, þetta eru
ekkert nema aukin gæði við
nemendur og aðra íbúa og eru
til þess fallnar að laða að held-
ur en hitt. Að því ósögðu að
eflaust eru vandfundnar flott-
ari skólalóðir á Vestfjörðum
en hjá grunn- og leikskólanum
á Þingeyri“, segir Ellert Örn
Erlingsson, skólastjóri GÞ.
Skólalóðin er hin glæsilegasta.