Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 15

Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 15 Lögfræðiþjónusta Alhliða lögfræðiþjónusta við einstaklinga og fyrirtæki á Vestfjörðum. Upplýsingar og tímapantanir í síma 551 7280 og 696 0646. Þuríður Halldórsdóttir hdl., thuridurkh@islandia.is Mikill áhugi fyrir þjóðbúningum Mjög mikill áhugi er meðal kvenna á norðanverðum Vestfjörðum að sauma eigin þjóðbúning. Í fyrra sóttu átta konur námskeið sem haldið var á Ísafirði og að því er fram kemur á ruv.is hafa 18 skráð sig til þátttöku á næsta námskeið. Margrét Skúladóttir formaður, Þjóðbúningafélags Vestfjarða, segir mikla vakningu vera í félaginu, aðsóknin sýni það. Þjóðbúningafélag Vestfjarða var formlega stofnað í mars í kjölfar þjóðbúningasaumsnámskeiðs sem haldið var á Ísafirði í fyrravetur. Fyrsta verk félagsins var að setja upp veglega sýningu í sýningarsal Safnahússins á Eyrartúni á gömlum búningum í eigu safnsins auk búninga frá þjóðbúningastofu. Pabbinn í Edinborgarhúsinu Einleikurinn Pabbinn verður settur upp í sal Edinborgarhússins á Ísafirði í kvöld. Höfundur og leikari er Bjarni Haukur Þórsson, en leikstjóri er Sigurður Sigurjónsson. Pabbinn er einleikur sem fjallar á gamansaman hátt um hvað það er að vera pabbi í nútímasamfélagi. „Pabbinn fjallar um aðdraganda þess að hann og konan hans ákváðu að eignast barn. Hvað gerist á meðgöngunni og við undirbúning fæðingarinnar. Fæðingunni og fyrstu skrefunum eru gerð góð skil þegar heim er komið. Allt er séð frá sjónarhóli karlmannsins.“ Enn er óvíst hvernig skóla- akstri í Dýrafirði verði háttað en styr hefur staðið um akstur- inn frá því í sumar. Skóla- aksturinn var boðinn út tvisvar í sumar en í fyrra skiptið týnd- ist eitt tilboðanna, sem var það lægsta, frá Jóni Reyni Sig- urðssyni. Tilboð hans var opn- að skömmu síðar og tekið gilt. Í kjölfar vandræðagangs sem þessu fylgdi var þó talið réttast að bjóða verkið út aftur. Stuttu eftir seinna útboðið féll lægst- bjóðandi, sem þá var Sigríður Helgadóttir, frá tilboði sínu en sviðstjóri umhverfissviðs sveitarfélagsins hafði mælt með að gengið yrði til samn- inga við hana og var öðrum tilboðsgjöfum í kjölfarið sent bréf að þeirra tilboðum væri hafnað. Á síðasta bæjarráðsfundi var tekið fyrir bréf sem lög- fræðingur Jóns sendi Ísafjarð- arbæ þar sem forvitnast er um hvort verkið verði boðið út í þriðja sinn eða hvort samið verði við annan tilboðsgjafa eftir að tilkynnt hafi verið að öðrum tilboðum hafi verið hafnað. Tilboðin sem bárust í fyrra útboðinu: Jón Reynir Sigurðsson - 8.550 krónur fyrir hverja fer. F&S hópferðabílar ehf. - 9.164 krónur fyrir hverja ferð. Svanberg R. Gunnlaugsson - 9.450 krónur fyrir hverja ferð. Tilboðin sem bárust í seinna skiptið sem boðið var út eru eftirfarandi: Jón Reynir Sigurðsson - 8.550 krónur fyrir hverja ferð. F&S hópferðabílar ehf. - 7.950 krónur fyrir hverja ferð. Sigríður Helgadóttir - 7.350 krónur fyrir hverja ferð. Sem fyrr segir hefur Sigríð- ur fallið frá tilboði sínu og hefur bæjarstjóri þegar falið bæjartæknifræðingi að ræða við F&S hópferðabíla. Enn stendur styr um skólaakstur Óska eftir 60 milljónum til uppbyggingar á skíðasvæði Ísafjarðarbær hefur óskað eftir 60 milljón króna framlagi frá ríkinu til frekari uppbygg- ingar á skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal. Um er að ræða verkefni sem finna má Vest- fjarðaskýrslunni en það var sett þar inn í samráði við þing- menn og þáverandi sam- gönguráðherra. Gert er ráð fyrir að fjármagn til framkvæmda verði tryggt samkvæmt Vestfjarðasamn- ingnum, samtals 60 milljónir króna, og framlagi einstakl- inga sem nemur 40 milljónum króna. Þetta kom fram á fundi formanns bæjarráðs og bæjar- stjóra Ísafjarðarbæjar með fjárlaganefnd alþingis í lok september. Einkaaðilar hafa lýst áhuga á að koma til liðs við stjórn- völd og sveitarfélög á Vest- fjörðum um frekari uppbygg- ingu skíðasvæðisins í Tungu- dal til að takast á við nýja tíma og breyttar kröfur. Vegna veðurfarsbreytinga þarf að auka snjósöfnun með lands- lagsmótun og einnig þarf að bæta við lyftum. Umhverfisráðherra hefur staðfest breytingu á aðalskipu- lagi Flateyrar 1996 – 2015. Tillagan tekur til breytinga á svæði austan við Hafnarstræti, milli Tjarnargötu og Ránar- götu, sem ætlað er fyrir íbúð- arsvæði, iðnaðarsvæði og blandaða landnotkun breytist í svæði fyrir verslunar- og þjónustusvæði. Þá er gert ráð fyrir nýrri götu austan Hafn- arstrætis. Samtímis breytingu á aðalskipulagi var auglýst deiliskipulagstillaga sem tek- ur til lagningu götu austan við og samsíða Hafnarstræti, þar er gert ráð fyrir níu nýjum lóðum fyrir útleiguhús. Sjóstangveiði er ný atvinnu- grein innan ferðaþjónustu- geirans og er að skjóta rótum í sjávarbyggðum Vestfjarða. Þörf er fyrir hentugt gistirými í nálægð við hafnarsvæði fyrir þessa starfsemi. Megin mark- mið með breytingu á aðal- skipulagi þessu er að skapa svæði fyrir útleiguhús nálægt hafnarsvæðinu. Umhverfis- nefnd Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarstjórn að deili- skipulagið, austan við Hafnar- stræti þar sem gert er ráð fyrir níu nýjum lóðum fyrir útleigu- hús verði staðfest. Breyting á aðalskipulagi Flateyr- ar staðfest af umhverfisráðherra Flateyri.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.