Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 16

Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 16
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 200716 Ferðalangarnir fimmtugu: Efri röð frá vinstri: Gunnhildur Hauksdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Ása Grímsdóttir, Steinunn Árnadóttir, Ásgerður Jónasdóttir, Guðný Hólmgeirsdóttir, Kristín Marteinsdóttir, Helga Harðardóttir, Brynja Guðmundsdóttir og Stefanía Birgisdóttir. Neðri röð frá vinstri: Helgi F. Arnarson, Sigurjón J. Sigurðsson, Róbert Guðfinnsson, Guðmundur Einarsson og Svanbjörn Tryggvason. Skemmtiferðaskipið Costa Atlantica við eyjuna Santorini sem tilheyrir Grikklandi. Fimmtugir í siglingu á fljótandi lúxus hóteli Hópur afmælisbarna frá Ísafirði fóru í siglingu um Miðjarðarhafið á glæsilegu skemmtiferðaskipi í septem- ber. Um var að ræða vinahóp sem fagnaði fimmtíu ára af- mæli í ár. Ferðalangarnir komu við í nokkrum löndum og skoðuðu sig um í framandi umhverfi. Farið var til Ítalíu, Sikileyjar, Egyptalands, Kýp- ur, Tyrklands og Grikklands. Fararskjótinn var hið glæsi- lega fley Costa Atlantica sem er um 86.000 tonn að stærð. Skipið sem byggt var árið Portofino á Ítalíu var á meðal þeirra staða sem hópurinn sótti heim í ferðinni. 2000 er 298 metra langt og 33 metra breitt. Sigrún Halldórs- dóttir, ein ferðalanganna, segir alla ferðina hafa verið mikla upplifun en það sem hafi stað- ið upp úr væri Kairó, höfuð- borg Egyptalands og eyjan Santorini sem sumir hafa hald- ið fram að sé hin týnda Atlant- is. Kveikjan að ferðinni frekar óvenjuleg en uppspretta henn- ar er saumaklúbbur sem nokkr- ar ísfirskar stúlkur stofnuðu 11 ára gamlar. „Þetta var svokölluð fimm- tugsferð en frumkvæðið af henni áttu nokkrar konur í saumaklúbb. Þetta er í raun einn saumaklúbbur sem er starf- ræktur er af brottfluttum Ísfirð- ingum, annars vegar á Ísafirði og í Reykjavík. Við sem byrj- uðum í upphafi höfum verið í saumaklúbbnum í 39 ár, eða frá því að við vorum 11 ára gamlar. Í þessari ferð voru fjórar af þeim fimm sem stofn- uðu saumaklúbbinn auk átta af þeim níu sem voru í klúbbn- um sem unglingar. Þetta var því mjög skemmtilegt.“ – Hversu margir fóru í ferð- ina? „Hópurinn taldi 28 manns og af þeim voru fimmtán sem fagna fimmtugsafmæli á þessu ári. Það var ákveðið fyrir um fimm árum að fara í siglingu þegar við yrðum fimmtug. Þar sem það var góður aðdragandi að ferðinni sáu sér fleiri fært fara í hana og mætingin var mjög góð.“ – Er það í bígerð að endur- taka leikinn á sextugsafmæl- inu? „Nei, en reyndar höfum við ákveðið að fara í einhverja ferð eftir fimm ár. Það er harð- ákveðið að gera eitthvað skemmtilegt aftur þá, því þetta er mjög góður og samstilltur hópur.“ – Hvað stóð upp úr í ferð- inni? „Það var mikil upplifun að koma til Kairó í Egyptalandi. Ég held að það hafi staðið upp úr hjá okkur öllum. Svo líka bara þessi lúxus að vera um borð í háklassa skemmtiferða- skipi. Ég vil hvetja fólk til að prófa þennan frábæra ferða- máta. Maður hefur allt til alls á fljótandi hóteli, fer að sofa að kvöldi og vaknar í nýju landi að morgni. Þetta er algjör lúxus fyrir utan að maður sleppir við allar fríhafnir og allt slíkt. Það var mikil upplifun að koma til allra þessa landa sem við heimsóttum. Við byrjuð- um á fjórum dögum í Rapallo á Ítalíu þar sem við skoðuðum okkur um, bæði í Rapallo og næsta nágrenni. Við fórum síðan um borð í skipið í Savona og sigldum til Napolí þar sem margir skoðuðu Pom- pei. Síðan sigldum við til Sikileyjar og fórum þaðan yfir Miðjarðarhafið til Alexandríu í Egyptalandi og áfram til Kairó. Þá til Limmasol á Kýp- ur, Marmaris í Tyrklandi, Santorini í Eyjahafinu og Nokkrir ferðalanganna fyrir framan einn af píra- mídunum i Kairó í Egyptalandi. Frá vinstri: Sigríður Bragadóttir, Eiríkur Kristófersson, Sigrún Hall- dórsdóttir, Oddný Bára Birgisdóttir, Stefán Ómar Jónsson og Brynja Guðmundsdóttir.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.