Bæjarins besta - 29.01.2009, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009
Ný sundlaug í mynni Tungudals?
Haukur í horni: Tvær eða fleiri flugur í einu höggi?
Um 150 manns mættu í jóga.
Settu Íslands-
met í hópjóga
Tæplega 150 manns mættu í
hópjóga í íþróttahúsið á Torfnesi
á Ísafirði á laugardag. Var mæt-
ingin langt framar vonum skipu-
leggjanda viðburðarins, Mörthu
Ernsdóttur, sem bjóst við um 70-
100 manna þátttöku. „Vestfirð-
ingar láta ekki sitt eftir liggja
þegar þeir ætla sér eitthvað. Ég
upplifði mikla ánægju og þakk-
læti og ég hugsa að fólk hafi
gengið sátt út,“ segir Martha.
Hún reiknar með að aldursdreif-
ing þátttakenda hafi verið á bilinu
þriggja ára til sjötíu ára. „Tengda-
móðir mín er 80 ára og hún sat í
stól og fylgdist með og tók þátt.
Við slógum Íslandsmet í jóga-
iðkun í einum tíma en auglýsi
hér með eftir ef það er ekki rétt,“
segir Martha.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt að gjaldskrár
hafna sveitarfélagsins hækki að
meðaltali um 10% í ár. Gerð verð-
ur breyting á einstöku liðum eins
og það að rafmagnstengigjaldi
verður skipt upp í tvo flokka,
flotbryggjuflokk og hafskipa-
kantsflokk. Orðið rafmagns-
tengigjald fellur út og í staðinn
komi rafmagnstenglagjald, þar
sem viðkomandi gjald skal
standa undir endurnýjun og við-
haldi tengla og raflagna. Einnig
verður tekið upp farþegagjald á
skemmtiferðaskip og farþega-
báta. Skemmtiferðaskip skulu
borga farþegaskatt fyrir hverja
ferð og farþegabátar skila inn
farþegagjaldi mánaðarlega.
Hækkun á rafmagni til skipa
tekur mið af hækkun Orkubús
Vestfjarða á milli gjaldskrár 2008
-2009 og er 23%, er framvegis
uppfærist sjálfkrafa í samræmi
við verðskrá OV. Aflagjald,
kranagjald og skráningargjald
skal vera óbreytt. Áður hafði
hafnarstjórn samþykkt að gjald-
skrá hafnsögubáts verði hækkuð
um 40% vegna hækkunar á elds-
neytisolíu síðustu misseri og ann-
ars rekstrarkostnaðar.
Gjaldskrár
hafna sam-
þykktar