Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.2009, Side 4

Bæjarins besta - 29.01.2009, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 Vel heppnað þorrablót GÍ Nemendur í 10. bekk Grunnskólans á Ísafirði, foreldrar þeirra, aðrir gestir og kennarar skemmtu sér hið besta á þorrablóti sem haldið var á bóndadaginn í skólanum. „Blótið heppnaðist mjög vel eins og alltaf. Mikið var dansað undir öruggri stjórn Evu Friðþjófsdóttur og foreldrarnir stóðu sig vel í skemmtiatriðum. Þetta er örugglega besta þorrablótið í bænum þar sem ekkert áfengi er haft um hönd“, segir Bergljót Halldórsdóttir umsjónarkennari í GÍ. Blótið er ein af elstu hefðum skólastarfsins og með þeim skemmtilegustu að margra mati, því það má telja það eins konar manndómsvígslu að hafa upplifað að snæða þorramat með ættingjum sínum, hlustað á gamanvísur um náungann og horft á heimatilbúið skaup áður en flogið er úr öruggum faðmi grunnskólans á vit fullorðinsáranna og átthagablóta. Að borðhaldi loknu var slegið upp balli og dansaðir gömlu dansarnir en unga fólkið hafði æft gömlu dansana að undanförnu undir leiðsögn Evu Friðþjófsdóttur danskennara auk þess sem nokkrir foreldrar þáðu danstíma. Að vanda voru þeir sem gátu hvattir til að skarta þjóðbúningum.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.