Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.2009, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 29.01.2009, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 7 Háls-, nef- og eyrna- læknir á Ísafirði Sigurður Júlíusson læknir verður með mót- töku á Ísafirði dagana 5.-7. febrúar. Tímapantanir í síma 450 4500 á milli kl. 08-16 alla virka daga. Verð á fatnaði frá 66°Norður fer eftir hitastigi á Suðureyri. „66°Norður var stofnað á Suður- eyri við Súgandafjörð árið 1926. Í hvert skipti sem hitinn þar fer niður fyrir frostmark verður af- sláttur í verslunum 66°Norður á meðan kuldakastið varir“, segir á vef fyrirtækisins. Ef mælirinn sýnir -1°C til - 5°C frost er 5% afsláttur af 66°Norður vörum í verslunum 66°Norður. Ef mælir- inn sýnir -6°C frost er 6% afslátt- ur af 66°Norður vörum í verslun- um 66°Norður. Og ef mælirinn sýnir -7°C frost er 7% afsláttur af 66°Norður vörum í verslunum 66°Norður og svo koll af kolli Eftir því sem mælirinn á Suður- eyri sýnir meira frost, þeim mun meiri afsláttur er af 66°Norður vörum. Stofnandi fyrirtækisins var Hans Kristjánsson frá Súganda- firði ásamt nokkrum öðrum aðil- um. Hans hafði kynnt sér sérstak- lega framleiðslu sjófatnaðar í Noregi nokkrum árum áður. Af- slátturinn er uppfærður daglega og gildir í 24 tíma. Grætt á kuldakasti á Suðureyri Af rúmlega 6700 sóknarbörn- um á Vestfjörðum eru aðeins um 5460 skráð í Þjóðkirkjuna sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstof- unni. Fyrir tveimur árum voru um 5.700 þjóðkirkjumeðlimir í Vestfjarðaprófastsdæmi og fer þeim því fækkandi þrátt fyrir að sóknarbörnum hafi fjölgað. Yfir þrjá tugi sókna er að finna í fjórð- ungnum. Sem dæmi má taka að í Patreksfjarðarsókn í Patreks- fjarðarprestakalli sem hefur 617 sóknarbörn eru 496 í Þjóðkirkj- unni, í Ísafjarðarsókn í Ísafjarðar- prestakalli eru 2.355 af 2.730 sóknarbörnum í Þjóðkirkjunni, 193 af 245 sóknarbörnum Hnífs- dalssóknar í Ísafjarðarprestkalli eru í þjóðkirkjunni og í Staðar- sókn í Súgandafirði eru 149 af 312 sóknarbörnum ekki í þjóð- kirkjunni. Hinn 1. desember síðastliðinn voru sóknarbörn í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri 195.576 talsins en það er fjölgun um 1.032 frá fyrra ári. Hlutfallslega hefur aftur á móti orðið þar fækkun úr 80,1% í 78,6% af öllum 16 ára og eldri. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta hlutfall fer niður fyrir 80%. Það má að nokkru leyti skýra með miklum aðflutningi erlendra rík- isborgara á árinu 2008 en þeir flokkast við komuna til landsins með óskráðum trúfélögum nema þeir skrái sig sérstaklega í trú- félög. Í óskráðum og ótilgreind- um trúfélögum teljast nú 19.323 miðað við 16.713 í fyrra. Það er aukning um rúmlega 2.600 ein- staklinga eða tæplega 0,8% af heildarmannfjölda. Skráðum trúfélögum hefur fjölgað talsvert á undanförnum árum; skráð trúfélög utan Þjóð- kirkju og fríkirkjusafnaða eru nú 25 en voru 10 árið 1990. Eitt nýtt trúfélag varð til árið 2008 en það heitir Soka Gakkai International á Íslandi (SGI á Íslandi) og var viðurkennt sem skráð trúfélag af dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu hinn 14. apríl síðastliðinn. Vestfirðingum í Þjóðkirkjunni fækk- ar þrátt fyrir fjölgun sóknarbarna Athuga fyrirkomulag afslátta á fasteignagjöldum sveitarfélaga Samgönguráðuneytið hefur farið þess á leit við sveitarfélög landsins að þau upplýsi ráðu- neytið um þær reglur sem í gildi eru varðandi afslætti á fasteigna- skatti. Tilefnið er úrskurður sam- gönguráðuneytisins á síðasta ári í máli er varðaði ágreining um hvort sveitarfélagi væri heimilt að veita flatan afslátt á fasteigna- skatti eða binda hann eingöngu við tekjur. Í málinu kom fram að sveitarfélag hafði um árabil veitt elli- og örorkulífeyrisþegum af- slátt af fasteignaskatti og eftir atvikum fellt hann niður. Í því sambandi hafi verið tekið mið af tekjum viðkomandi. Árið 2003 var hins vegar gerð sú viðbót við tekjutengda afslátt- arkerfið að boðinn var flatur af- sláttur fyrir ákveðinn aldurshóp. Fasteignaskattur umræddra aðila féll þannig niður þegar árstekjur voru undir ákveðnum viðmiðun- armörkum en við önnur mörk var veittur 80% afsláttur. Fyrir utan þennan tekjutengda afslátt var öllum elli- og örorkulífeyris- þegum veitt föst fjárhæð í afslátt og þeir sem voru 70 ára og eldri fengu hærri afslátt. Óskað er að upplýsingarnar berist ráðuneytinu eigi síðar en 2. febrúar. Bæjarráð Ísafjarðar- bæjar hefur falið bæjarstjóra að svara erindinu þegar gengið hefur verið formlega frá reglum Ísa- fjarðarbæjar fyrir árið 2009. – thelma@bb.is

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.