Bæjarins besta - 29.01.2009, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009
Fjögur tilboð bárust í vél- og stjórnbúnað Mjólkárvirkj-
unar. Tilboðin bárust frá Orkuveri ehf., / GHE Hydro En-
ergy sem buðu kr. 679.964.408., Andritz Hydro GmbH sem
bauð kr. 720.536.425., Smith & Norland / Kössler sem buðu
kr. 1.114.084.375 og frá Rafeyri – Gügler sem buðu kr.
1.316.654.688. Tilboðsfjárhæðirnar eru hámarksverð, miðað
við að stærsti mögulegi pakki verði keyptur, þ.e. stærri út-
gáfa af vél 1, svokölluð Mjólká III og IV og ný vél II. Á næstu
vikum verður gerður samanburður á tilboðum og hagkvæm-
ni hvers virkjunarkosts fyrir sig þar sem verkkostnaði er
bætt við. Þá fyrst verður hægt að taka endanlega ákvörðun.
Tilboð opnuð í nýjan vél-
og stjórnbúnað í Mjólká
Ferðaþjónustan í Heydal í Mjóafirði hlaut nýlega, ásamt
fjórum öðrum gististöðum Ferðaþjónustu bænda, viður-
kenningu fyrir frábæra þjónustu sumarið 2008. Viðurkenn-
ingin er veitt í tengslum við gæðaverkefnið „Gerum góða
gistingu betri“ á vegum Ferðaþjónustu bænda og Better
Business. Verkefnið fólst í því að þrisvar yfir sumarið kom
„leynigestur“ sem gisti, borðaði og tók staðinn út samkvæmt
fyrirfram ákveðnum stöðlum. Niðurstöðurnar voru kynntar
hverju fyrirtæki fyrir sig á netinu mánaðarlega svo tækifæri
gæfist til að bæta þjónustu. Frá þessu var greint á vef ferða-
þjóna á Vestfjörðum.
Fengu viðurkenningu
fyrir góða þjónustu
Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir þremur þýðendum
til starfa í nýju útibúi þýðingamiðstöðvar sem tekur til starfa
á Ísafirði í byrjun apríl. Ráðuneytið hefur einnig auglýst eft-
ir þremur þýðendum til viðbótar til starfa á landsbyggðinni,
en endanleg staðsetning verður ákveðin með tilliti til umsækj-
enda og skilyrða fyrir fjarvinnu. Öll störfin falla undir
kjarasamning fjármálaráðherra og Félags háskólamennt-
aðra starfsmanna stjórnarráðsins. Ráðuneytið gerir kröfur
til umsækjenda að þeir hafi háskólamenntun, staðgóða þekk-
ingu í íslensku og ensku, reynslu af þýðingum, samskiptalip-
urð, góða framkomu og gott tölvulæsi.
Þrjú ný störf við
þýðingar á Ísafirði
Vinnsla hjá Fiskvinnslunni Íslandssögu á Suðureyri hefur
aukist síðastliðin misseri að sögn Óðins Gestssonar, fram-
kvæmdastjóra. Vinnslan afkastar um 20 tonnum af þorski
og ýsu á dag en 75 manns starfa við vinnsluna, sem er nokk-
ur fjölgun frá því í desember. Að sögn Óðins gengur vel að
selja afurðirnar en þó finni þeir fyrir því að salan sé að
minnka. Hann segist mjög ánægður með aukningu þorsk-
kvótans því 60-70 tonn bætast við aflaheimildir fyrirtækisins.
Vinnslan vann úr 4700 tonnum í fyrra og var verðmæti
þeirra einn og hálfur milljarður. Hann segist finna fyrir
auknum fyrirspurnum um atvinnu hjá fyrirtækinu og eru
þær aðallega frá Íslendingum víðs vegar að af landinu.
Aukin vinnsla hjá Ís-
landssögu á Suðureyri
Styttri viðbragðstími
frá Skeiði en eyrinni
Öflug grunngerð forsenda fyr-
ir atvinnuþróun í Ísafjarðarbæ
Bættar samgöngur, aukinn
fjöldi fagfólks samhliða þróun
nýrra atvinnutækifæra í Ísafjarð-
arbæ og styrkingu þeirra atvinnu-
greina sem nú þegar eru á svæð-
inu eru forsendur fyrir jákvæðri
uppbyggingu. Þetta kemur fram
í drögum að drögum aðalskipu-
lagi Ísafjarðarbæjar sem kynnt
er á vef sveitarfélagsins. Eitt af
viðfangsefnum aðalskipulags er
að marka stefnu sem tryggir
rekstrarumhverfi fyrirtækja og
styrkir þannig möguleika á þróun
og vexti atvinnulífs. Byggðaþró-
un, samgöngur, skipulag at-
vinnusvæða og öflug samfélags-
vitund eru þættir sem spila þar
stórt hlutverk.
„Allir kjarnar Ísafjarðarbæjar
hafa sterka sögu og sérstöðu sem
ætti að nýta. Sérstaða hvers
kjarna er talsverð og bæirnir ein-
kennast af frumkvæði og einka-
framtaki sem hefur markað spor
í söguna á mismunandi hátt“,
segir í greinargerð með aðal-
skipulaginu.
Öflug grunngerð er alger for-
senda fyrir atvinnuþróun á svæð-
inu. Samgöngur og veitukerfi á
svæðinu hafa ekki staðist saman-
burð við mörg önnur landsvæði.
Þetta hefur haft neikvæð áhrif á
atvinnulífi vegna hás flutnings-
kostnaðar fyrir framleiðslu- og
þjónustugreinar, og laks afhend-
ingaröryggis afurða í framleið-
slugreinum. Auk þess hefur
ferðaþjónustan mátt líða fyrir
ímynd lélegs vegakerfis.
Núverandi staða í atvinnumál-
um einkennist af samdrætti í
greinum sem snerta sjávarútveg,
fiskvinnslu og iðnað. Breytingar
hafa einnig orðið í landbúnaði
og störfum þar hefur fækkað.
Samgöngur eru erfiðar og upp-
bygging vegakerfis hefur ekki
fylgt sama hraða og í öðrum
landshlutum. Atvinnusvæði inn-
an fjórðungsins er ekki samfellt
og flutningskostnaður hár innan
hans og til annarra landshluta.
Samfara samdrætti í sjávarút-
vegi hefur fjölbreytni og nýsköp-
un aukist í öðrum greinum. At-
vinnugreinar geta styrkt hver aðra
þó sumar eigi nánast enga sam-
leið. Ferðaþjónusta og atvinnu-
greinar tengdar henni eru vax-
andi, sérstaklega á allra síðustu
árum. Við uppbyggingu atvinnu-
tækifæra við ferðaþjónustu und-
anfarið hefur gjarnan verið litið
til gamalla hefða og tíma.
Staðbundið háskólanám og
háskólasamfélag á Ísafirði hefur
vaxið undanfarin ár og uppbygg-
ing í tengslum við það m.a. með
afleiddum störfum er mikil, á þessu
er hægt að byggja enn frekar.
Gert er ráð fyrir að núverandi
aðstaða slökkviliðs, lögregluliðs
og björgunarfélags á Eyrinni á
Ísafirði verði lögð af og nýtt í
aðra starfsemi þegar ný björgun-
armiðstöð hefur risið. Eins og
fram hefur komið er fyrirhugað
að björgunarmiðstöð rísi á Skeiði
í Skutulsfirði og að hún hýsi alla
helstu viðbragðsaðila í Ísafjarð-
arbæ s.s. slökkvilið, lögreglulið,
björgunarlið, Neyðarlínuna og/
eða viðbragðsaðila á landsvísu
auk tengdra félagasamtaka.
Svæðið er í góðri tengingu við
Djúpveg og í nálægð við Vest-
fjarðaveg og flugvöll. Aðgengi
að Skeiði er því gott, en svæðið
er jafnframt nær því að vera mið-
svæðis í sveitarfélaginu.
Með þessu móti er hægt að
stytta viðbragðstímann auk þess
sem umferð neyðar- og viðbragðs-
aðila færist frá Eyrinni og álagið
minnkar því svæði. Til greina
kemur að þyrlupallur verði stað-
settur við björgunarmiðstöðina
en þó er nálægðin við flugvöllinn
það mikil að óvíst er að þess
gerist þörf. Til greina kemur að
björgunarmiðstöð þjóni öllum
norðanverðum Vestfjörðum. Í
því ljósi er staðsetning á Skeiði
afar hentug og brýnt að umferð
tengd stöðinni liggi sem minnst
um Eyrina. Helsti ókostur stað-
setningarinnar er nálægðin við
hættusvæði vegna ofanflóða.
Viðbragðsaðilar í Ísafjarðarbæ
eru staðsettir á þremur aðskildum
stöðum á Eyrinni á Ísafirði en
auk þess eru björgunarsveitir á
Þingeyri, Dýrafirði, Flateyri,
Suðureyri og Hnífsdal. Slökkvi-
stöð er í Fjarðarstræti, en þar eru
slökkvi- og sjúkrabílar staðsettir.
Lögreglustöð er í Stjórnsýslu-
húsinu og Björgunarfélag Ísa-
fjarðar er staðsett við Sindragötu.
Fjarðarstræti er þröng húsagata
sem er að hluta til einstefnugata,
en það á einnig við nærliggjandi
götur. Umferð til og frá slökkvi-
stöðinni er því ekki góð en lög-
regla og björgunarsveit hafa betra
aðgengi að Pollgötu sem er stofn-
braut. Öll umferð frá þessum
stofnunum fer þó um Eyrina, en
þar er þéttleiki íbúða, þjónustu
og gangandi og akandi vegfar-
enda mikill. Þetta getur lengt
viðbragðstíma neyðarbíla auk
þess sem ónæði og jafnvel hætta
skapast af forgangsakstri í svo
þéttri byggð eins og er á Eyrinni.
– thelma@bb.is
Frá Skeiði í Skutulsfirði.