Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.2011, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 03.03.2011, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Byggðastofnun samþykkir ekki Lotnu Stjórn Byggðastofnunar sam- þykkir ekki kaup Lotnu ehf., á fiskvinnslufyrirtækinu Eyrar- odda ehf., á Flateyri vegna við- skiptasögu eigenda Lotnu. Anna Kristín Gunnarsdóttir, stjórnar- formaður Byggðastofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórn Byggðastofnunar hefði ver- ið búin að komast að þessari nið- urstöðu áður en stjórnarfundur- inn var haldinn. „Starfsmenn Byggðastofnunar voru búnir að fara yfir málið og því var hafnað af eðlilegum ástæðum. Við horf- um þar til viðskiptasögu þeirra og eins hefur þetta ekki verið auglýst,“ sagði Anna Kristín. Kristján Kristjánsson hjá Lotnu sagðist vera mjög undrandi á þessari afgreiðslu. „Skiptastjóri var búinn að selja okkur húsin með fyrirvara um samþykki Byggðastofnunar og annarra. Byggðastofnun var búin að sam- þykkja allt, lánakjör, vexti, greið- slutilhögun, mennina og allan gjörninginn með skriflegum hætti. Um viku seinna fáum við upplýs- ingar um að þeir séu hættir við, en þá vorum við búnir að ráða fólk og byrjaðir að vinna í húsinu. Svona vinnubrögð geta tæplega gengið,“ sagði Kristján í samtali við Morgunblaðið. Sigurður meðeigandi Krist- jáns, segir að fiskvinnsla haldi áfram á Flateyri þó að Byggða- stofnun leggist gegn kaupum Lotnu á eignum úr þrotabúi Eyr- arodda. Hann segir að lögfræð- ingur Byggðastofnunar sé búinn að skrifa undir pappíra um sölu til Lotnu. „Við munum halda áfram að vinna fisk á Flateyri enda erum við búnir að kaupa þessar eignir,“ sagði Sigurður. „Skiptastjóri þrotabús Eyrarodda er búinn að selja Lotnu allar eignir búsins, sama hvort það eru eignir sem eru með veði í eignum Byggða- stofnunar eða annarra. Byggða- stofnun á engar eignir þarna á staðnum. Hún á bara veð í hluta af þessum eignum. Allir veðhafar í þessum eignum voru búnir að samþykkja kauptilboð okkar. Þeir sem lánuðu til kaupanna hafa samþykkt að breyta lánum. Byggðastofnun er ekki að sam- þykkja neitt kauptilboð. Stofn- unin er bara að samþykkja að skipta um greiðanda á þeim eign- um sem stofnunin er með veð í,“ sagði Sigurður. Eyraroddi átti þrjú fiskvinnslu- hús á Flateyri og sagði Sigurður að Byggðastofnun hefði átt veð í tveimur þeirra. Ef Byggðastofn- un ákveði að leysa til sín þessar tvær eignir þá haldni Lotna bara áfram fiskvinnslu í þriðja hús- inu. „Reksturinn verður ekki stöðv- aður þarna,“ sagði Sigurður sem er harðorður í garð Byggðastofn- unar. „Það er eins og hægri hönd- in viti ekki hvað vinstri höndin er að gera. Ég er ekki hissa á að rekstur Byggðastofnunar gangi svona illa ef þetta eru vinnu- brögðin sem eru viðhöfð.“ Sigurður Aðalsteinsson, einn eigenda Lotnu ehf. Skipulagsbreytingar hjá Ísafjarðarbæ Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tillögur að nýju skipuriti þar sem m.a. er gert ráð fyrir fimm stjórnsýslusviðum í stað þriggja. Fimm starfsmönn- um verður sagt upp störfum í kjöl- farið, þar af tveimur yfirmönnum og þremur í stjórnsýslu bæjarins. Í staðinn verða auglýstar tvær stöður sviðsstjóra og ný störf á skóla- og tómstundasviði. „Upp- sagnirnar taka gildi í dag (föstu- dag í síðustu viku) en flestir þeirra sem sagt var upp eru með upp- sagnarfrest til 1. júní og einhverj- ir eru með biðlaun,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar. „Við vonumst þó til að við getum boðið flestum þeirra sem sagt var upp, starf á ný innan sveitarfélagsins.“ Aðspurður hversu miklum fjármunum áætl- að er að hagræðingin skili bænum segir Daníel að hér sé verið að fækka um tvö stöðugildi og sparnaður við það sé um 10-13 milljónir á ári. Tillaga um skipulagsbreyting- arnar var samþykkt einróma af bæjarstjórn. Í tillögunum felst með- al annars að hafnir Ísafjarðar- bæjar, slökkvilið og upplýsinga- fulltrúi heyra beint undir bæjar- stjóra. Skóla- og fjölskyldusviði verður skipt upp í tvö svið. Fé- agsmálasvið sem Margrét Geirs- dóttir mun stýra, og skóla- og tómstundasvið þar sem auglýst verður eftir sviðstjóra. Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa, leikskólafulltrúa og grunnskóla- fulltrúa verður lagt niður og í staðinn verður auglýst eftir svið- stjóra skólasviðs auk þess sem að hálft til eitt stöðugildi til við- bótar verður auglýst. Verkefni áðurnefndra starfsmanna færast á þessar nýju stöður. Stjórnsýslusviði verður skipt upp í tvö svið. Fjármálastjóri verður gerður að sviðstjóra og mun Jón H. Oddsson gegna því starfi áfram. Starf framkvæmda- stjóra Fasteigna Ísafjarðarbæjar verður lagt niður sem og starf sviðstjóra framkvæmda- og rekstrarsviðs. Í staðinn verður til nýtt svið umhverfis- og eignasvið þar sem auglýst verður eftir nýj- um sviðsstjóra. Að því kemur í minnisblaði bæjarstjóra sem lagt var fyrir bæj- arstjórn er markmiðið með breyt- ingum margþætt. Í fyrsta lagi að skerpa á áherslum og aðlaga skipuritið að því hvernig það virkar í raun og veru. Í öðru lagi er verið að leggja meiri áherslu á fræðslu- og tómstundamál með það að markmiði að efla sam- þættingu og samvinnu skólastiga og skóla bæjarins sem og tryggja að það fjármagn sem sett er í skóla- og tómstundamál sé nýtt eins vel og kostur er. Í þriðja lagi er verið að sameina alla eigna- umsjón bæjarins á einn stað með sameiningu Fasteigna Ísafjarðar- bæjar og framkvæmda- og rekstr- arsviðs. – thelma@bb.is Fimm starfsmönnum Ísafjarðarbæjar verður sagt upp í kjölfar skipulagsbreytinganna.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.