Bæjarins besta - 03.03.2011, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
Flutningur á hættuleg-
um farmi – ADR-réttindi
Gilda m.a. á evrópska
efnahagssvæðinu
Vinnueftirlitið fyrirhugar að halda eftirfarandi
námskeið á Ísafirði ef næg þátttaka fæst fyrir
þá er öðlast vilja réttindi til að flytja hættuleg-
an farm á Íslandi og annars staðar á evrópska
efnahagssvæðinu:
Flutningur á stykkjavöru (grunnnámskeið)
17.-19. mars 2011.
Flutningur í/á tönkum: 24.-25. mars 2011.
Flutningur á sprengifimum farmi: 26. mars
2011.
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðunum um
flutning í/á tönkum og/eða á sprengifimum
farmi er að viðkomandi hafi setið námskeið
um flutning á stykkjavöru (grunnnámskeið)
og staðist próf í lok þess.
Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðsgjald
í síðasta lagi föstudaginn 11. mars 2011. Skrán-
ing og nánari upplýsingar eru veittar hjá um-
dæmisskrifstofu Vinnueftirlitsins á Ísafirði, Árna-
götu 2-4, sími 450 3080, netfang: vestfirdir@ver.is.
Fyrsti farfuglinn kominn til Vestfjarða
„Það sáust nokkrar grágæsir í
Dýrafirði í byrjun síðustu viku
og líklega eru þetta fyrstu farfugl-
arnir sem komnir eru til Vest-
fjarða,“ segir Böðvar Þórisson,
líffræðingur hjá Náttúrustofu
Vestfjarða. „Þessar gæsir eru
óvenju snemma á ferðinni og það
er erfitt að segja til um hvað veld-
ur. Kannski voru þær að flýja
snjókomuna í Bretlandi og Dan-
mörku þar sem þær hafa vetur-
setu.“ Nú fer hver farfuglinn á
fætur öðrum að koma til landsins
og segir Böðvar að oftast séu
það álftir og tjaldar sem sjáist
fyrst á Vestfjörðum.
„Eins og margir vita þá búa
nokkrir tjaldar við hliðina á Bón-
us í Skutulsfirði yfir veturinn.
Þetta eru eitthvað um 50 fuglar
og við tökum strax eftir því þegar
þeim fer að fjölga. Þá eru nokkrar
álftir sem hafa vetursetu á Vest-
fjörðum og í vetur hafa nokkrar
álftir verið að þvælast kringum
Reykjanes í Ísafjarðardjúpi og
það gætu verið fleiri fuglar í Jök-
ulfjörðunum án þess að við vitum
af því. Það fer að líða að því að
fyrstu tjaldarnir og álftirnar sem
eru farfuglar, fari að koma en
venjulega gerist það í byrjun
mars, “ segir Böðvar.
Fyrsti farfuglinn sem sást á
Íslandi var sílamáfur í Sandgerði
þann 17. febrúar. Böðvar segir
að venjulega líði nokkrar vikur
frá því að fyrstu farfuglarnir sjáist
á SA-landi þar til þeir sjást á
Vestfjörðum. „Þegar stórir hópar
koma til landsins líða þó ekki
nema tveir til þrír dagar frá því
að þeir sjást fyrst fyrir sunnan og
þar til eru komnir hingað vestur,“
segir Böðvar og bætir við að lóan,
hinn eini sanni vorboði, komi
venjulega í byrjun apríl.
Böðvar vill hvetja þá sem koma
auga á farfugla á næstu vikum að
láta Náttúrustofuna vita. „Við
höfum verið að kortleggja komur
farfuglanna og erum komin með
ágætis grunn frá árinu 2004-
2005. Og þó að fyrstu gæsirnar
séu komnar í Dýrafjörðinni, er
áhugavert að vita hvenær þær
koma á aðra staði,“ segir Böðvar.
– kte@bb.is
Vegagerðin vinnur nú að því
að bæta við vatnsvörnum göng-
unum undir Breiðadals- og Botns-
heiðar. „Það hefur komið fram
leki á fleiri stöðum en þegar
göngin voru kláruð á sínum tíma.
Göngin er því blaut á ansi stóru
svæði, en bleytan eykur slit á
veginum og því viljum við draga
úr lekanum eins mikið og hægt
er. Þetta er það mesta sem við
höfum gert í þessum verkþætti í
nokkur ár og við verðum þarna
við vinnu langt fram í næsta
mánuð,“ segir Geir Sigurðsson,
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á
Ísafirði.
„Göngin eru einbreið þar sem
vinnan fer fram og þröngt fyrir
menn að athafna sig. Ég vil því
brýna fyrir ökumönnum að hægja
vel á sér og sýna starfsmönnun-
um tillitsemi,“ segir Geir.
– kte@bb.is
Bæta við vatnsvörnum
Starfsmenn Vegagerðarinnar að störfum í göngunum.