Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Síða 18
mánudagur 2. júní 200818 Sport DV
Sport Ronaldo ákveðuR sig í vikunni Portúgalska ungstirnið ronaldo hefur opnað umræðuna um real madrid upp á gátt eftir að hann til-kynnti blaðamönnum að hann hygðist ákveða framtíð sína eftir þrjá daga. Hann ætlar að koma með almenna tilkynningu í upphafi næstu viku en eigendur manchester united hafa hótað því að hann verði látinn sitja uppi í stúku frekar en leika með öðru liði á næsta ári. ronaldo hefur þrátlátlega verið orðaður við real madrid að undanförnu og þessi tilkynning kemur nokkuð á óvart þar sem forráðamenn real tilkynntu nýlega að þeir væru búnir að gefa Portúgalann upp á bátinn.
ÚRSLIT
landsbankadeildin
Fjölnir - Breiðablik 1–2
0-1 Prince Rajcomar (13.)
0-2 Árni Kristinn Gunnarsson (60.)
1-2 Ómar Hákonarsson (71.)
Þróttur - Keflavík 2–3
1-0 Michael Jackson (17.)
1-1 Guðjón Árni Antoníusson (30.)
2-1 Adolf Sveinsson (76.)
3-1 Hjörtur Júlíus Hjartarson (85.)
3-2 Hólmar Örn Rúnarsson (86.)
ÍA - Fylkir 2–3
0-1 Ian David Jeffs (6.)
1-1 Björn Bergmann Sigurðarson (24.)
1-2 Peter Gravesen (29.)
1-3 Guðni Rúnar Helgason (65.)
2-3 Vjekoslav Svadumovic (67.)
staðan
lið l u J t M st
1. Keflavík 5 4 0 1 14:9 12
2. FH 4 3 1 0 12:4 10
3. Fram 4 3 0 1 6:1 9
4. Fjölnir 5 3 0 2 8:5 9
5. Fylkir 5 3 0 2 8:8 9
6. Breiðabl. 5 2 2 1 8:9 8
7. Valur 4 2 0 2 8:8 6
8. Þróttur 5 1 2 2 7:10 5
9. ía 5 1 1 3 5:9 4
10. Kr 4 1 0 3 5:7 3
11. grindav. 4 1 0 3 7:10 3
12. HK 4 0 0 4 2:10 0
Undankeppni Ól 2008
Ísland - Argentína 36–27
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 9,
Snorri Steinn Guðjónsson 7, Arnór Atlason 5,
Ólafur Stefánsson 4, Róbert Gunnarsson 4, Einar
Hólmgeirsson 3, Alexander Petersson 2, Vignir
Svavarsson 1, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 15, Hreiðar
Levy Guðmundsson 2.
Ísland - Pólland 28–34
Mörk Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 7/3,
Arnór Atlason 6, Guðjón Valur Sigurðsson 5,
Ólafur Stefánsson 5/1, Róbert Gunnarsson 3,
Alexander Petersson 2.
Varin skot: Hreiðar Levy Guðmundsson 16.
Ísland - Svíþjóð 29–25
Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 6, Guðjón
Valur Sigurðsson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 3,
Alexander Petersson 3, Arnór Atlason 3, Róbert
Gunnarsson 3, Sigfús Sigurðsson 2, Ásgeir
Örn Hallgrímsson 2, Arnór Atlason 1, Vignir
Svavarsson 1.
Varin skot: Hreiðar Levy Guðmundsson 18/2.
Pólland - Svíþjóð 22–22
Pólland - Argentína 28–26
Svíþjóð - Argentína 33–21
staðan
lið l u J t M st
1. Pólland 3 3 0 0 84:78 6
2. ísland 3 2 0 1 93:86 4
3. Svíþjóð 3 1 1 1 80:72 3
4. argentína 3 0 0 3 74:97 0
Umspil hm kvk
Ísland - Rúmenía 23–37
Mörk Íslands: Dagný Skúladóttir 5, Hanna Ste-
fánsdóttir 5/3, Sólveig Lára Kjærnested 4, Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Stella Sigurðardót-
tir 2, Sunna María Jónsdóttir 2, Hildigunnur
Einarsdóttir 1, Rakel Dögg Bragadóttir 1.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 20.
Fimmtu umferð í Landsbankadeild karla lýkur í kvöld með þremur leikjum:
ReykjavíkuRslaguR í FRostaskjóli
Fimmtu umferð í Landsbanka-
deild karla lýkur í kvöld með þremur
leikjum. Stærsti leikurinn er á milli
KR og Fram sem mætast í Frosta-
skjóli. Grindavík tekur á móti topp-
liði FH en HK fær meistara Vals í
heimsókn.
Framarar hafa byrjað mótið mjög
vel og sterkur varnarleikur liðsins hef-
ur ekki farið framhjá neinum en lið-
ið er aðeins búið að fá á sig eitt mark.
Henrik Eggerts og Jón Þorgrímur
Stefánsson eru enn meiddir og hópur
þeirra er fremur þunnur. Hannes Þór
Halldórsson verður í markinu þrátt
fyrir að hafa átt við meiðsli að stríða.
„Það er alltaf gaman að mæta
KR. Við mætum óhræddir til leiks og
eigum harma að hefna síðan í fyrra
þegar við töpuðum í lokin á KR-vell-
inum,“ segir Daði Guðmundsson,
leikmaður Fram.
KR-ingar hafa tapað þremur leikj-
um í röð og vilja sigur. Þeir eru við
það að endurheimta Pétur Mart-
einsson, Stefán Loga Magnússon og
Grétar Ólaf Hjartarson úr meiðslum
„Það er alltaf sérstakt þegar KR og
Fram mætast. Gamlir erkifjendur og
því verður baráttan mikil.
Við finnum ekki fyrir pressu þó
við höfum tapað síðustu leikjum.
Við höfum verið ánægðir með spila-
mennskuna á köflum og við vitum að
við eigum mikið inni. Það eina sem
vantar er einn sigur og við ætlum
okkur meira þegar þessi sigur kem-
ur,“ segir Grétar Sigfinnur Sigurðsson
varnarmaður úr KR.
FH fer í heimsókn til Grinda-
víkur. Einhver hefði talið þennan
leik formsatriði en eins og Grinda-
vík sýndi gegn Breiðabliki um dag-
inn getur enginn bókað sigur gegn
þeim.
HK og Valur mætast á Kópavogs-
velli. HK-menn eiga enn eftir að
innbyrða stig á leiktíðinni en þeir
voru ansi nærri því gegn Fylki í síð-
asta leik. Valsmenn eru aftur komn-
ir á beinu brautina eftir tvö slæm
töp í fyrstu þremur umferðum. Þeir
unnu Fjölni í síðasta leik og eru sig-
urstranglegir gegn HK.
kR og Fram mætast
Óðinn árnason úr Fram
og guðmundur reynir
gunnarsson Kr-ingur
eigast hér við.
„Mér leið eins og eftir sigurinn á
Rúmenum 1986,“ sagði kampakátur
landsliðsþjálfari Íslands, Guðmund-
ur Þórður Guðmundsson, þegar DV
náði í skottið á honum í gærkvöldi
eftir að Ísland tryggði sér sæti á ól-
ympíuleikum með 29-25 sigri á Sví-
þjóð. „Ég er alveg í skýjunum með
þennan frábæra sigur. Það var alveg
gífurlega mikið í húfi,“ bætti Guð-
mundur við en leikurinn var sann-
kallaður úrslitaleikur um sæti á
stærsta íþróttaviðburði heims.
sprennuþrunginn fyrri
hálfleikur
„Við náðum að leika alveg frá-
bæran leik bæði í vörn og sókn og
markvarslan var stórkostleg,“ sagði
Guðmundur við DV en það virtist
ekki duga í fyrri hálfleik. Íslenska
liðið lék einstaklega vel og bauð
meira að segja upp á fantagóðan
varnarleik sem alltaf er beðið eft-
ir að það sýni. Þrátt fyrir það þurfti
Ísland að sætta sig við að ganga til
búningsklefa í stöðunni 13-13 þó
Svíar spiluðu ekkert vel.
„Það var engin hræðsla við þá
stöðu,“ sagði Guðmundur um hálf-
leikstölurnar. „Við fundum okkur vel
og fórum með bullandi sjálfstraust
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik mun leika á Ólympíuleikunum í Peking í ágúst.
Aftur voru það Svíar sem lögðust undir íslensku strákana en Svíagrýlan var rifin upp úr
jörðinni og grafin aftur með frábærum 29–25 sigri í gær. Fögnuðurinn var gífurlegur í leiks-
lok enda sæti á stærsta íþróttaviðburði heims tryggt. „Stefndum að þessu leynt og ljóst,“
sagði hæstánægður þjálfari Íslands, guðmundur guðmundsson, við DV í gærkvöld.
taumlaus gleði íslensku
strákarnir gjörsamlega
misstu sig af gleði eftir
sigurinn á Svíum og er
það engin furða.
TAKIÐ FRÁ SÆTI,
ÍSLAND FER TIL PEKING!
tÓMas ÞÓR ÞÓRðaRson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
-hvað er að frétta?
Hvað er að frétta?
– kíktu á dv.is
FRÉTTIR FÓLK FRÓÐLEIKUR SKEMMTUN
skurður 210x288