Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Side 20
mánudagur 2. júní 200820 Sport DV
Del Piero slær met ítalinn snjalli alessandro del Piero verður
fyrsti leikmaður landsins sem spilar á fjórum Evrópukeppnum
að því gefnu að hann leiki með liðinu á Em í austurríki eða Sviss.
Ekki hafa margir leikið þetta eftir en Peter Schmichael hefur einn-
ig náð þessum áfanga. del Piero lék fyrsta á Em 1996 á Englandi
en lék einnig í Hollandi og Belgíu árið 2000 og í Portúgal árið
2004. Vera hans í hópi roberto donadoni kom mörgum á óvart
en kappinn hefur leikið afar vel það sem af er leiktíðar í ítölsku
knattspyrnunni. Frakkinn Liliam Thuram og Hollendingurinn Ed-
win Van der munu einnig leika í sínni fjórðu Em-keppni.
MOLAR
lauDruP að taka við
Panathinaikos
daninn michael Laudrup er við það
að taka við stöðu þjálfara hjá Pan-
athinaikos í grikklandi. Eftir góða
frammistöðu með getafe á Spáni
þykir mikið
spunnið í Lau-
drup sem þjálf-
ara en hann
mun fá 2,5
milljónir evra í
árslaun en það
jafngildir um
290 milljónum
íslenskra króna.
Hann mun fá
full yfirráð yfir því hverjir koma til
félagsins en Panathinaikos hefur ekki
riðið feitum hesti frá grísku knatt-
spyrnunni á undanförnum árum
eftir að hafa ávallt verið í meistara-
baráttu þar á undan. Olympiakos er
meistari í grikklandi og það er þyrnir
í augum Panathinaikos-manna sem
þyrstir í titil.
viljum ekki riise
jean Claude Blanc, yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá juventus, segir félagið
engan áhuga hafa á því að fá john
arna riise vinstri bakvörð frá Liverpool
til félagsins en umboðsmaður norð-
mannsins sagði
juventus vera
á eftir honum.
„Við munum
halda hægri
og vinstri hluta
varnar okkar
nákvæmlega
eins á næstu
leiktíð. Christ-
ino molinaro
og Paolo de Ceglie munu berjst um
stöðu vinstri bakvarðar. Við viljum
sýna öllum að við erum tilbúnir að fara
langt á leikmönnum sem eru uppaldir
hjá okkur,“ segir Blanc. john arne riise
ku vera fallinn í ónáð hjá rafa Benitez
stjóra Liverpool og alvaro arbeloa hef-
ur tekið stöðu hans í byrjunarliðinu.
hyyPia kallar eftir friði
Sami Hyypia varnarmaður Liverpool
biður stjórnarmenn félagsins að semja
um frið þar sem eilíft umrót í stjórn fé-
lagsins hafi áhrif
á frammistöðu
leikmannna.
nokkrar deilur
hafa geisað á
milli george
gillett og Tom
Hicks um hríð
og Hyypia kallar
á samheldni.
„Eftir allt sem
hefur átt sér stað utan vallar finnst mér
kominn tími til þess að allir einbeiti
sér að sama hlutnum. Það er að vinna
knattspyrnuleiki. Ég veit í sjálfu sér
ekki almennilega um hvað deilurnar
snúast en ég veit að þær eru ekki að
hjálpa Liverpool og nú er mál að linni,“
segir hinn 34 ára gamli Sami Hyypia.
henk ten Cate ósáttur
Henk Ten Cate sem rekinn var frá
Chelsea í liðinni viku segir að menn
innan félagsins
hafi markvisst
grafið undan
honum. Þessi
fyrrverandi
þjálfari hjá ajax
var fenginn til
Chelsea fyrir
tæpu ári til
þess að hressa
upp á sóknar-
leik liðsins en það gekk ekki alveg
sem skyldi. „Ég var mjög spennt-
ur þegar ég kom inn í verkefnið en
ég fer dapur í hjarta yfir því að hafa
ekki fengið að klára verk mitt. Ég hef
verið málaður sem vondur maður í
búningsklefanum en það eru nokkrir
leikmenn sem bera ábyrgð á því,“
segir Ten Cate en mikið hefur verið
rætt um deilur hans og johns Terry
skömmu fyrir úrslitaleikinn í deildar-
bikarnum.
BallaCk sáttu við lehmann michael Ballack, fyrirliði Þjóð-
verja, er ánægður með að jens Lehmann muni standa í marki
Þjóðverja á Em í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Hann hefur
fulla trú á hinum 38 ára gamla leikmanni og segir að enginn mark-
vörður í dag sé nærri því jafn góður í Þýskalandi. „Það er enginn
innan liðsins sem efast um hann. Hann er mjög reyndur. Við treyst-
um á hann og stöndum saman. margir leikmenn eru að taka þátt í
sínu fyrsta stórmóti og það er mikilvægt að hafa stöðuga einstakl-
inga í hópnum,“ segir Ballack en Þjóðverjar léku sinn síðasta æf-
ingaleik fyrir Evrópumótið þegar þeir lögðu Serbíu 2-1 í nürnberg.
„Inni á vellinum var eins og við vær-
um hræddar við verkefnið,“ sagði
sársvekkt Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir við DV eftir 23-37 tap íslenska
kvennalandsliðsins gegn Rúmen-
um í gær. Leikurinn var liður í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins en
leikið er heima og að heiman. Rúm-
enska liðið var mörgum númerum
stærra en það íslenska sem sýndi þó
marga ágætis takta í seinni hálfleik.
flora kemst ekki í liðið
Áhorfendur í Laugardalshöll í
gær sem voru þó nokkrir fengu að sjá
muninn á fínu liði og heimsklassa-
liði. Getumunurinn var gífurlegur og
voru gestirnir ekki lengi að sýna mátt
sinn og megin. Breidd Rúmenanna
er gífurleg og hafa þeir á að skipa
mörgum hávöxnum skyttum sem oft
á tíðum léku sér að íslensku vörn-
inni, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Florentina Stanciu, markvörður
Stjörnunnar, þykir sú allra besta hér
heima en hún er rúmensk. Það gef-
ur hugmynd um breidd liðs Rúmena
að það skartaði þremur markvörðum
í hópnum en Flora sat uppi í stúku og
horfði á.
Það var á köflum pínlegt að horfa
á leikinn í fyrri hálfleik en íslenska
liðinu varð ekkert ágengt. Hvorki í
vörn né sókn. Það alversta var þó að
íslensku stúlkurnar sýndu litla sjálfs-
bjargarviðleitni og voru oft í fyrri
hálfleik með hangandi haus. Ef sókn
fór forgörðum voru þær lengi að
koma sér til baka en það kostaði yf-
irleitt alltaf mark úr hraðaupphlaupi
andstæðinganna. „Sama hversu illa
leikmaður spilar getur hann allt-
af hlaupið til baka. Þetta hef ég sagt
oft áður og á eflaust eftir að segja oft
til viðbótar,“ sagði ósáttur Júlíus Jón-
asson landsliðsþjálfari við DV eftir
leik.
mun skárra í seinni hálfleik
Íslensku stelpurnar léku mun bet-
ur í seinni hálfleik þar sem skrekkur-
inn var farinn úr þeim og holningin
á liðinu allt önnur. Vörnin var mun
betri og sótti út í skyttur Rúmena sem
þurftu að taka erfiðari skot og með
því fylgdi markvarsla frá Berglindi
sem átti frábæran seinni hálfleik.
Það var þó alltaf við ofurefli að
etja og sú eina sem náði að standa
í hári Rúmena frá fyrstu mínútu var
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir. „Það
er minni munur á liðunum en loka-
tölurnar gefa til kynna. Við gerðum
mjög vel í seinni hálfleik en við hefð-
um þurft að byrja þannig líka. Það
er samt ekkert verkefni óvinnandi
og við verðum að fara í seinni leik-
inn í Rúmeníu með það hugarfar að
við getum unnið hann,“ sagði Anna
en Ísland þarf að vinna upp fjórtán
marka mun eftir 23-37 tapið í gær.
trúin ekki til staðar
„Mér fannst eins og trúin á verk-
efnið væri ekki til staðar í fyrri hálf-
leik,“ sagði Júlíus Jónasson landsliðs-
þjálfari við DV eftir leikinn en hann
var virkilega ósáttur við spilamennsku
sinna stúlkna þar. „Það var oft eins
og stelpurnar væru farnar að horfa á
klukkuna og vildu komast inn í klefa.
Þá fengum við einhver 4-1 kafla á okk-
ur sem við máttum alls ekki við.“
Eins var hann mun ánægðari með
seinni hálfleikinn. „Vörnin kom mik-
ið til í þeim seinni og þar fengum við
markvörslu og náðum hraðari leik.
Rúmenar eru með mun sterkari skytt-
ur og það vitum við. Þess vegna þurf-
um við að nýta hraðann til að stinga
okkur á milli. Rúmenska liðið er mjög
líkamlega sterkt og því mun fljótara
að grípa okkur og halda. Það var allt-
af vitað að þetta yrði erfitt verkefni og
svo reyndist vera,“ sagði Júlíus við DV
að lokum.
Seinni leikurinn fer fram í Rúmen-
íu næsta laugardag.
tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
RÚMENAR NÚM-
ERUM OF STÓRIR
Íslenska
kvennalands-
liðið í hand-
knattleik
tapaði fyrir
Rúmeníu í gær
með fjórtán
marka mun,
23-37, í fyrri
leik liðanna í
umspili um
sæti á heims-
meistaramót-
inu á næsta ári.
Mikill getum-
unur var á
liðunum eins
og búist var við
en Rúmenar
hafa á að skipa
einu besta
landsliði
heims.
Gjörðu svo vel! rúmenar fóru
ekki ósjaldan yfir eða í gegnum
vörn íslands í gær.
Góður Þessi ágæti maður fór
hamförum í Höllinni í gær og
var sáttur við sínar konur.
skýjum ofar Hæðarmunurinn á
liðunum var gífurlegur.