Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Side 25
Tónskáldið Áskell Másson
og frú Létu ljósmyndasýn-
inguna ekki framhjá sér fara.
DV Flugan mánudagur 2. JÚnÍ 2008 25
Náttúran lét í sér heyra svo eftir var tekið á
fleiri stöðum en Selfossi. Ægir konungur rumdi
af vellíðan þegar blásið var til Hátíðar hafsins
á Hafnarbakkanum á laugardagsmorguninn
og býfluga hrökk upp af værum vorsvefni sín-
um - en stúlkan býr við höfnina. Starir einmitt
oft á hafið. Stóreyg ... Hún skellti í sig espressó,
málaði varirnar, hljóp út á meðal fólksins og
skemmti sér við að skoða og snerta furðufiska
og kleip í kinnar á litlum börnum og rasskinnar
á pöbbum.
En talandi um náttúru. Ummm - Viggo Mort-
ensen ...
Leikarinn þokkafulli vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið þegar stóri skjálftinn reið yfir en
þá var hann að hengja upp myndirnar sínar á
Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Viggo varð ekki
smeykur enda mikil hetja af norrænum ættum.
Hann er yfirlýstur hatursmaður blaðamanna en
stóðst ekki fröken býflugu og tjáði henni stoltur
að hann væri ekki bara leikari og ljósmyndari,
heldur líka skáld og forleggjari; Viggo er eigandi
Percival Press sem gaf út bók íslenska lista-
mannsins Georgs Guðna. En auðvitað er Viggo
þekktastur fyrir hlutverk Aragons eða Estragons,
eða hvað hann nú heitir, gaurinn í Hringadrótt-
inssögu.
Sýning Mortensens nefnist Skovbo og ljós
og skuggar eru í aðalhlutverki ljósmyndanna.
Listamaðurinn ákvað að stilla verði myndverk-
anna mjög í hóf og láta andvirði seldra verka
renna til Náttúruverndarsamtaka Íslands. Eigi
veit ég hvort Íslendingar séu svo náttúruvernd-
arsinnaðir eða bara spenntir fyrir frægum kyn-
þokkafullum leikurum en eitt er víst; þessi opn-
un í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsinu
var án nokkurs vafa fjölsóttasta sýningin á þeim
bænum frá upphafi. Á meðal góðra gesta voru
rithöfundurinn Andri Snær Magnason og Loftur
Atli Eiríksson ritstjóri Séð og heyrt sem er ein-
mitt einnig lærður ljósmyndari. En konur voru í
meirihluta og vakti sú staðreynd upp þá spurn-
ingu hvort það væri Viggo sem væri til sýnis.
Svo gjörsamlega pakkað var að erfitt reynd-
ist að sjá myndirnar og Estragon sjálfur sat um-
kringdur aðdáendum úti í horni og áritaði verk
sín. Með öryggisvörð sér við hlið. Óvanaleg sjón
á myndlistaropnunum. Kannski talinn hættu-
legur staður ... efsta hæðin á Borgarbókasafninu
í Reykjavík. Og öryggisvörður við lyftuna.
Flugan Fór víða um helgina:
Klipið í barnaKinnar
Meðlimir Harmónikkufélags
Reykjavíkur Spiluðu á myndar-
legri Hátíð hafsins á miðbakka.
Það var svakalegt
stuð á dansgólfinu á
Nasa á laugardags-
kvöldið og menn
hristu sig sveitta við
vesturafrísku taktana.
Söngfuglarnir Friðrik Ómar og Heiða
Ólafsdóttir mættu á stuðtónleikana á nasa.
Friðrik var ferskur – nýkominn til landsins.
Hljómsveitin Super
Mama Djombo frá gíneu-
Bissá í Vestur-afríku kom
öllum í seiðandi sveiflu.
Nasa hristist og skalf á laugar-
dagskvöldið þegar Super Mama
Djombo lék unaðslega tónlist
og gestir dönsuðu sig bulls-
veitta inn í nóttina. Á meðal
góðra gesta sem fíluðu músík-
ina í ræmur voru söngvarinn
ljúfi Friðrik Ómar úr Euroband-
inu og Heiða Ólafsdóttir söng-
kona. Afrískir töfrar heltóku bý-
flugu sem kom í feiknastuði út
á Austurvöll um miðja nótt þar
sem íslenska miðurnætursólin
baðaði hana geislum sínum á
heimleiðinni.
á Nasa
Býflugan
„party liKe
an animal!“
Hinn árlegi Blómadagur Skólavörðustígs-
ins var haldin hátíðlegur á laugardaginn
þótt það aðalhönnunar- og tískustræti
borgarinnar sé í rúst sökum framkvæmda.
En Kaffifélagið sem stendur við stíginn
snotra lét ekkert á sig fá og hélt upp á eins
árs afmæli sitt. Býfluga kom við til að sam-
fagna og dreypa á ítals-
kri kaffibaunablöndu.
Tók eftir að neðst á
stígnum hefur hönn-
uðurinn GaGa Skordal
komið sér vel fyrir í lít-
illi verslun og flaggar
Trippen-skóm í gluggan-
um. Tónlistarmaðurinn
Ólöf Arnalds skoppaði í
pilsi eftir Austurstræti
en hún er að fara að
troða upp með Björk og
Sigur Rós þann 28. júní
á útitónleikum þeg-
ar ætlunin er að vekja
lýðinn til umhugsunar
um verndun náttúrunnar og
því væntanlega nóg að gera hjá hinni ungu
móður. Nokkuð spes skilti vakti athygli
mína fyrir utan veitinga- og skemmtistað-
inn Oliver á Laugaveginum en á því stóð:
„Eat like a man – party like an animal ...“
Íslensk skemmtanamenning í hnotskurn?
Söngkonan og
náttúruvernd-
arsinninn Ólöf
arnalds skoppaði
í stuttum kjól eftir
austurstræti.
Smáfólkið fékk pylsur og
blöðrur Freyja og Frosti
dáðust að hetjum hafsins.
Viggo „Estragon“ Mortensen Hafði seið-
mögnuð áhrif á íslensku kvenþjóðina sem
fjölmennti á háum hælum og varalituð vel.
Súper Seiður mama Djombo
og p bbaraSSa
Eldar Ástþórsson mikið verk er fyrir
höndum hjá eiganda Hr. Örlygs, Þorsteini
Stephensen, að finna mann í hans stað.
airwaveS á
jarðSKjálfta-
Svæði?
Aðdáendum Airwaves-hátíðarinnar var
illa brugðið í vikunni þegar í ljós kom að
hún stendur ekki á tryggri jörð; kannski
bara á jarðskjálftasvæði, og mörgum til
mikilla vonbrigða sagði hinn snaggara-
legi töframaður Eldar Ástþórsson upp
starfi sínu sem framkvæmdastjóri. Mik-
ið verk er fyrir höndum hjá eiganda Hr.
Örlygs, Þorsteini Stephensen, að finna
mann í hans stað. Það sem meðal annars
hrjáir víst Airwaves er skortur á starfhæfu
húsnæði og hærri styrkjum. Jakob okkar
Magnússon sér vonandi mikilvægi þess
að hátíðin fái að lifa góðu lífi; hún er orð-
in ómissandi hluti lífkerfis Reykjavíkur-
borgar og ótrúlegt aðdráttarafl túrista.
Kobbi hlýtur að vera í stöðu til þess í dag
og leggja sitt af mörkum til að styrkja þetta
Roskilde Reykjavíkur.