Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Qupperneq 27
DV Sviðsljós mánudagur 2. júní 2008 27
Var næstum
farinn á hausinn
Aerosmith-rokkarinn Steven Tyler
heldur því nú statt og stöðugt fram að
ástæðan fyrir því að hann hafi skráð
sig í meðferð hafi ekki verið eitur-
lyfjaneysla heldur að hann hafi farið í
aðgerð á fæti. „Læknar sögðu mér að
sársaukinn í fótunum gæti horfið með
nokkrum aðgerðum. Þar af leiðandi
þurfti ég öruggt umhverfi þar sem ég
gæti bara slökkt á símanum mínum
og slakað á í friði til að jafna mig eftir
þessar aðgerðir og mér fannst með-
ferðarheimilið besti staðurinn fyrir
slíkt því þar eru læknar á vaktinni og
maður er í góðum höndum,“ sgaði
Tyler í yfirlýsingu sem hann sendi til
erlendra fjölmiðla.
í meðferð
út af fæti
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna
Britney Spears er að gera grín að
leikkonunni Juliu Roberts á þess-
um nýlegu myndum sem náðust af
söngkonunni. Eins og sjá má virðist
Britney vera að reyna að leika eftir
pósu leikkonunnar á forsíðunni og
er ekki vitað hvort hún er að slá á
létta strengi, ögra Juliu eða bakslag
hafi orðið í andlegri heilsu hennar.
Britney undirbýr nú endur-
komu sína með risatónleikum í Ve-
gas. Söngkonan hefur verið á fullu
í ræktinni undanfarnar vikur en án
mikils árangurs og Britney senni-
lega aldrei verið þyngri. Tónleikarn-
ir mun kosta stórfé og eiga að verða
einir stærstu og veigamestu tón-
leikar hennar til þessa. Það þykir þó
ólíklegra með hverjum deginum að
Britney eigu nokkurn tímann eftir
að snúa til baka. asgeir@dv.is
af hVerju?
Samkvæmt nýjustu fréttum eru hundar þeirra Parisar Hilton og Joels
Madden að slá sér upp. Kærasti Parisar, Benji Madden, er sem sagt bróðir
Joels Madden auk þess sem þeir eru saman í hljómsveitinni Good Charlot-
te og hefur chihuahua-hundurinn hennar Parisar verið að gera sér dælt við
pitbull terrier-hundinn hans Joels. „Það var fjölskylduboð heima hjá Paris
og allir komu með börnin sín og hundana með sér. Það var greinileg ást á
milli Tinkerbell hennar Parisar og Eazy hans Joels. Við óskum þeim alls hins
besta í framtíðinni,“ segir í nýju bloggi á heimasíðu hljómsveitarinnar Good
Charlotte.
hundarnir
að deita
Britney SpearS gerir grín að Juliu
roBertS og Vanity Fair-Forsíðu hennar
Það kom flestum á óvart er Jaymes Foster tilkynnti í fjölmiðlum vestan-
hafs að hún ætti von á barni og pabbinn er enginn annar en Idol-söngvarinn
Clay Aiken, en rauðhærði söngvarinn hefur neitað að svara spurningum um
kynhneigð sína hingað til, en sá orðrómur hefur verið lífseigur að hann sé
samkynhneigður.
Jaymes og Clay hafa verið bestu vinir síðan Clay tók þátt í Idolinu og búa
þau meira að segja saman í Los Angeles.
Barnaði Bestu
Vinkonu sína
tilvonandi pabbi Clay aiken á von
á barni með bestu vinkonu sinni. Mamman jaymes Foster er ólétt.
Britney Spears Það er
erfitt að segja hvað
söngkonunni gengur til.
Sóðaleg hefði mátt
fara í hreinan bol og
brjóstahaldara.
Jennifer Butler Murray, eiginkona
Bills Murray til 11 ára, hefur sótt um
skilnað frá grínleikaranum mikla og
segir ástæður fyrir því vera ofbeldi
og fíkn hans í áfengi og maríjúana. Í
skilnaðarpappírunum kemur einnig
fram að Murray léti sig oft hverfa frá
eiginkonu sinni án þess að láta kóng
eða prest vita og þar á meðal til ann-
arra landa. Murray lendir oft í deil-
um og orðaskaki við almenning sem
greinilega hefur farið fyrir brjóstið á
Jennifer. Einnig er talað um framhjá-
hald leikarans.
Samkvæmt pappírunum lagði
Murray oft hendur á eiginkonu
sína, sló hana í andlitið og sagði „...
að hún væri heppin að hann dræpi
hana ekki“. Lögfræðingur Murrays
hafði lítið um málið að segja en tók
þó fram að leikarinn væri „...í mikilli
sorg vegna skilnaðarins“. Bill Murray
og Jennifer giftu sig árið 1997 og eiga
saman fjögur börn.
„heppin að ég
drep þig ekki“
Bill Murray er í djúpum...
Fullur í Svíþjóð jennifer segir leikarann oft fara til útlanda og lenda þar í orðaskaki og átökum. Bill murray var stöðvaður í miðborg stokkhólms fyrir að keyra fullur á golfbíl.
erfiður skilnaður
eiginkona Bills murray hefur
sótt um skilnað. í skilnaðar-
pappírunum segir jennifer
Butler murray frá ofbeldi og
fíkniefnaneyslu sem og
áfengisvandamáli leikarans.
Christian Bale
rambaði á barmi
gjaldþrots fyrir
fáeinum árum.