Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Qupperneq 29
DV Fólkið Mánudagur 2. júní 2008 29
AlexAndrA
Alexandra Helga Ívarsdóttir var kjörin ung-
frú Ísland 2008 á Broadway á föstudag. Alex-
andra er 18 ára Grafarvogsbúi sem er á þriðja ári í
Menntaskólanum við Sund. Alexandra tekur þátt
í keppninni Miss World sem fer fram í Úkraínu í
október. Þar mun hún freista þess að feta í fótspor
Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur og fleiri íslenskra
fegurðardrottninga sem hafa unnið keppnina.
„Þetta kom mér á óvart. Ég er ennþá að átta
mig á þessu,“ segir Alexandra Helga Ívarsdóttir,
nýkrýnd Ungfrú Ísland. Fjölskyldan hefur stutt
hana gegn um keppnina og segir hún foreldra
sína mjög stolta af sér. Hún segir stúlkurnar í
keppninni hafa náð vel saman og að góð stemn-
ing hafi ríkt í hópnum.
Í öðru sæti var Ingibjörg Ragnheiður Egils-
dóttir, 23 ára Hornfirðingur, og í þriðja sæti var
Sonja Björk Jónsdóttir, 18 ára Dalvíkingur. Þá var
Hanna Lind Garðarsdóttir valin ljósmyndafyrir-
sæta Íslands 2008 en hún var einnig valin ljós-
myndafyrirsæta Reykjavíkur fyrir skemmstu.
Ingibjörg mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss
Universe sem fram fer í Víetnam um miðjan júlí.
Athygli vakti að Aðalbjörg Ósk Gunnarsdótt-
ir sem var valin ungfrú Reykjavík fyrir skemmstu
var ekki í þremur efstu sætunum en margir
höfðu talið hana sigurstranglegasta í keppninni
framan af. Aðalbjörg var í 4.-6. sæti í keppn-
inni en Alexandra Helga, sem var í öðru sæti
í Ungfrú Reykjavík, fór alla leið á toppinn í
þetta skiptið.
Ungfrú Ísland
BuBBi
á vínyl
Nýjasta plata Bubba Mort-
hens, Fjórir naglar, kemur út 11.
júní, en upphaflega átti platan
að koma út 4. júní. Bubbi upp-
lýsti sjálfur aðdáendur sína um
seinkunina á spjallsvæði heima-
síðu sinnar, bubbi.is. Bubbi segir
margvíslegar ástæður liggja að
baki seinkuninni, en þá helst að
nokkrir hlutir séu honum ekki
alveg að skapi. Þá upplýsti Bubbi
einnig að platan myndi koma
út á vínyl í 300 eintaka upplagi.
Þykir eflaust mörgum aðdáend-
um Bubba það mikill fengur, en
vínyl-platan lifir góðu lífi meðal
safnara og tónlistargrúskara.
Ekkert varð af sviðsettum blaðamannafundi vegna jarðskjálftans:
upptökum frestAð
vegnA jArðskjálftA
eldAr
hættir hjá
hr. örlygi
Eldar Ástþórsson, framkvæmda-
stjóri Iceland Airwaves og Hr. Ör-
lygs, hefur sagt starfi sínu lausu.
Þessu greindi Eldar frá í samtali
við DV síðastliðinn föstudag. Eld-
ar hefur verið framkvæmdastjóri
Airwaves allt frá upphafi og hefur
hátíðin vaxið og dafnað undir hans
stjórn og er í dag í hópi virtustu
grasrótarhátíða Evrópu.
„Ég hef sagt starfi mínu lausu,“
segir hann. „Ég og eigandi Hr. Ör-
ylgs, Þorsteinn Stephensen, höfum
ekki sömu framtíðarsýn á verkefnið
og mér fannst hreinast og beinast
að gera þetta svona,“ segir Eldar
sem skilur við verkefnið með mikl-
um trega. „Þetta er auðvitað gríð-
arlega erfitt enda búinn að vera í
þessu frá byrjun.“
Alexandra Helga Ívars-
dóttir var valin ungfrú
Ísland fyrir helgi. Alex-
andra endaði í öðru sæti í
Ungfrú Reykjavík á dög-
unum en fór nú alla leið
og hreppti titilinn eftir-
sótta. Hún keppir í Miss
World í október.
til ÚkrAínu
Fresta þurfti upptökum á sjónvarpsþátta-
röðinni Svartir englar vegna jarðskjálftans
sem reið yfir landið á fimmtudaginn. Þá hafði
fjöldi fjölmiðlamanna frá ýmsum miðlum ver-
ið boðaður á tökustað, þar sem átti að svið-
setja blaðamannafund. Plönin fóru því miður
fyrir lítið þegar annar hver fréttamaður á höf-
uðborgarsvæðinu var sendur á Suðurland til
þess að fylgjast með eftirmálum jarðskjálftans.
Þurfti því að fresta tökunum, sem munu að öll-
um líkindum fara fram í þessari viku. Upptökur
á þáttunum hafa staðið yfir frá því í byrjun maí,
en þættirnir verða sýndir í Ríkissjónvarpinu í
haust. Það er Óskar Jónasson sem leikstýrir, en
handritið skrifa þau Margrét Örnólfsdóttir og
Sigurjón Kjartansson. Þættirnir fjalla um hóp
lögreglumanna í Reykjavík sem keppast við að
leika glæpi. Í aðalhlutverkum verða Sigurður
Skúlason, Sólveig Arnardóttir, Steinn Ármann
Magnússon og Helgi Björnsson. Þættirnir eru
byggðir á bók Ævars Arnar Jósepssonar.
Óskar Jónasson Leikstýrir Svörtum
englum, en fresta þurfti upptökum
á blaðamannafundi vegna
jarðskjálftans á fimmtudaginn.
Ungfrú Ísland
2008 alexandra
Helga ívarsdóttir.
Gullfallegar Ingibjörg ragnheið-
ur, alexandra Helga og Sonja Björk.
Fyrirsæta Hanna
Lind var valin
ljósmyndafyrir-
sæta íslands 2008.