Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 2
Þú finnur stjörnuspána þína
í Spádómsegginu frá Góu.
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
1
5
0
8
6
8
58 MW fyrir verksmiðju
á Bakka
Landsvirkjun og PCC BakkiSilicon hf. hafa
undirritað nýjan samning um sölu raf-
magns til kísilmálmverksmiðju, sem PCC
BakkiSilicon hf. áformar að reisa á Bakka
við Húsavík. Gert er ráð fyrir að verk-
smiðjan hefji starfsemi á árinu 2017 og
framleiði í fyrsta áfanga allt að 36 þúsund
tonnum af kísilmálmi og noti 58 MW af afli.
Nýi rafmagnssamningurinn er svipaður og
sá fyrri, frá árinu 2014, en með nokkrum
frávikum þó. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
ákvað í desember síðastliðnum að hefja
skoðun á fyrri rafmagnssamningi aðila
frá 2014 og þeim rafmagnssamningi hafa
samningsaðilar nú rift. Nýi rafmagns-
samningurinn var tilkynntur til ESA í gær,
miðvikudag.
Veiðigjöld sem skila
meiri tekjum
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra hefur lagt fram
á Alþingi tvö frumvörp sem lúta annars
vegar að veiðigjöldum og hins vegar
makríl. Í veiðigjaldafrumvarpinu er lagt
til að álagningu veiðigjalda verði breytt
þannig að þau verði innheimt mánaðar-
lega og taki mið af lönduðum afla í stað
þess að leggjast á úthlutaðan afla í upphafi
fiskveiðiárs. Í makrílfrumvarpinu er lagt til
að makrílveiðum verði stýrt á grundvelli
tímabundinna aflahlutdeilda til sex ára.
Áætlað er að álögð veiðigjöld verði um
10,9 milljarðar á næsta fiskveiðiári. Gert er
ráð fyrir óbreyttri reiknireglu frá síðasta
ári við útreikning veiðigjalda til næstu
þriggja ára í frumvarpi sjávarútvegsráð-
herra um breytingu á lögum um veiðigjöld.
Í þessu felst að veiðigjaldið skilar um 1,7
milljarða tekjuaukningu frá síðasta ári.
51 milljarðs halli á
ríkissjóði
Greiðsluupgjör ríkissjóðs fyrir janúar 2015
liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um
afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra
tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá
rekstri versnaði verulega á milli ára og
var neikvætt um tæpan 51 milljarð króna
samanborið við 10,4 milljarða króna 2014.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðu-
neytinu skýrist hallinn að stærstum hluta
með útgreiðslum vegna leiðréttingar verð-
tryggðra húsnæðislána sem gjaldfærðar
voru í lok árs 2014 en komu til greiðslu í
janúar. Innheimtar tekjur lækkuðu um 8,8
milljarða króna milli ára en greidd gjöld
jukust um 364 milljónir króna.
Nýtt móttökuhús við Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn
Nýtt og glæsilegt móttökuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal
var opnað í gær, miðvikudag. Garðurinn fagnar 25 ára afmæli í maí. Nýja húsið
hefur þá kosti að hægt verður að sinna
gestum garðsins við betri aðstæður,
og í fyrsta sinn verður innandyra hægt
að sinna þjónustu, eins og miða- og
minjagripasölu, símavörslu, vörumót-
töku og móttöku hópa. Þá mun bygging
dýrahúss hefjast í ár sem og hönnun á
betri fræðslu- og starfsmannaaðstöðu.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður
opinn alla páskana frá 10-17. Það er vor í lofti í húsdýragarðinum og hægt að heilsa
upp á forvitna nautkálfa í fjósinu, nýklakta kjúklinga í smádýrahúsi og kiðlingar eru
væntanlegir í geithúsið á næstu dögum en huðnurnar eru alveg komnar að burði.
15% unglinga
í 8.-10. bekk
eyða fjórum
klukkutímum
á dag á sam-
félagsmiðlum.
Rannsóknir sýna að fólk skoðar símann sinn allt að 150 sinnum á dag og að meðalnotkun er 3,5 klukkutímar á dag. Sé þetta sett
í samhengi eyðir foreldri sem notar slíkan tíma í símann því sem samsvarar einu ári af fyrstu sex árum barnsins síns við þá iðju.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Velferð snjallsímanotkun foreldra fylgja neikVæðari samskipti
Foreldrar sem eru mjög uppteknir í snjallsímum eiga í neikvæðari samskiptum við börnin sín og
er staðan orðin þannig að börn þurfa að keppa við snjallsíma um athygli foreldra sinna. Hrefna
Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, leggur áherslu á að foreldrar veiti börnum
sínum óskipta athygli á samverustundum í stað þess að liggja í símanum. Heimili og skóli tekur
þátt í árvekniátakinu „Líttu upp“.
B örn þurfa að keppa við snjallsíma um athygli foreldra sinna og þeir foreldrar sem eru mjög uppteknir
í snjallsímum eiga í neikvæðari samskipt-
um við börnin sín en aðrir,“ segir Hrefna
Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heim-
ilis og skóla, og vitnar í nýlega rannsókn
sem Boston Medical Center gerði á snjall-
símanotkun foreldra og samskipta þeirra
við börnin. Hún bendir á að dæmi séu um
það á íslenskum leikskólum að þeim til-
mælum sé beint til foreldra að vera ekki
að tala í símann þegar þeir sækja börnin
sín heldur veita börnunum óskipta athygli.
Heimili og skóli tekur þátt í árvekni-
átakinu „Líttu upp“ ásamt Samgöngu-
stofu og kaffiframleiðandanum Gevalia.
Með átakinu er fólk hvatt til að líta upp úr
snjallsímanum, eyða meiri tíma saman og
sleppa snjallsímanotkun við akstur. Net-
notkun Íslendinga er ein sú mesta í heimi
og samkvæmt niðurstöðum rannsóknar-
innar Ungt fólk 2014 eyddu 15% unglinga
í 8.-10. bekk fjórum klukkutímum á dag á
samfélagsmiðlum en þriðjungur þessa ald-
urshóps var í 2-3 klukkutíma á dag á sam-
félagsmiðlum. Þá er ekki meðtalin önnur
notkun þeirra á snjallsímum.
Hrefna segir að Heimili og skóli taki
þátt í átakinu með því að benda á hversu
mikilvæg samskipti barna og foreldra eru,
og hvað stöðug snjallsíma- og netnotkun
hefur á þessi samskipti. Rannsóknir sýna
að fólk skoðar símann sinn allt að 150
sinnum á dag og að meðalnotkun er 3,5
klukkutímar á dag. Í tilkynningu vegna
átaksins kemur fram að það geri rúmlega
24 klukkustundir á viku, um 1.300 klukku-
stundir eða 53 daga á ári – tæplega tvo
mánuði á ári í stanslausri snjallsímanotk-
un. Sé þetta sett í frekara samhengi má
benda á að foreldri sem eyðir slíkum tíma
í símanum eyðir því sem samsvarar einu
ári af fyrstu sex árum barnsins síns við
þá iðju. „Við hvetjum foreldra til að leggja
símann til hliðar þegar það er með mikil-
vægustu manneskjunni í lífi sínu,“ segir
Hrefna.
„Samvera foreldra og barna er besta
forvörnin þegar kemur að áhættuhegð-
un barna sem og vímuefnaneyslu. Með
samvistum við barnið er verið að byggja
upp traust og þannig eru meiri líkur á að
barnið leiti til foreldra sinna ef það lendir
í vandræðum. Það er líka mikilvægara
hvað foreldrar gera en hvað þeir segja. Það
nægir ekki að segja börnum að takmarka
tímann í snjallsímanum ef foreldrar eru sí-
fellt að grípa í símann við matarborðið eða
jafnvel í bílnum. Við þurfum að huga að því
hvernig við notum tímann okkar og það er
ekki gæðastund með barninu okkar ef við
erum líka í snjallsímanum á samskipta-
miðlunum,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Keppa við snjallsíma
um athygli foreldra sinna
páskar aldrei fór ég suður á ísafirði um helgina
Búist við 2-3.000 manns á Ísafjörð
„Stemningin er alveg ljómandi
góð, nú er allt fjörið að byrja. Sólin
skín, fjöllin eru full af snjó
og það er akkúrat verið að
setja Skíðavikuna,“ segir
Birna Jónasdóttir, rokk-
stjóri Aldrei fór ég suður,
rokkhátíðar alþýðunnar,
sem fer fram á Ísafirði um
páskana.
Mikið verður um að vera
í bænum venju samkvæmt
nú um páskahelgina.
„Hlutirnir gerast hratt og það er
farið að fjölga í bænum. Maður sér
það þegar maður þarf að bíða eftir
að beygja á aðalgötunni,“ segir
Birna. Hún kveðst ekki vita
nákvæmlega hversu margir
gestir verði í bænum um
helgina enda er hvorki selt
inn á rokkhátíðina né skíða-
vikuna. „En við gerum ráð
fyrir svona 2-3.000 manns.
Það er eiginlega öll gisting
uppbókuð, það er kannski
eitthvað laust í bæjunum í
kring.“
Aðalnúmerin á Aldrei fór ég
suður eru Mugison, Prins Póló,
AmabaDama og Agent Fresco en
hátíðinni er nú dreift yfir fleiri
daga en áður. „Við teygjum vel úr
okkur og byrjum með upphitun
strax á fimmtudagskvöld. Þetta
verður mikið stuð. Ef veðrið helst
svona þá skiptir ekki máli hverju
við klúðrum,“ segir Birna Jónas-
dóttir. -hdm
Birna
Jónasdóttir. Mikið stuð er jafnan á rokkhátíðinni
Aldrei fór ég suður á Ísafirði um
páskana.
2 fréttir Helgin 2.-5. apríl 2015