Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 50

Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 50
50 matur & vín Helgin 2.-5. apríl 2015 By Wirth tímaritahengi 8.400.- Pyro Pet kerti 4.900.- By Wirth myndahengi 5.100.- Skjalm P kopar vasar 3.300.- & 4.900.- Höfum opnað verslun að Síðumúla 21 Gjöf við hvert tilefni Opnunartímar: Virkir dagar 11-18 laugardagar 12-16 Síðumúla 21 S: 537-5101 snuran.is Um páskahelgina er tilvalið að gera vel við sig, bæði í mat og drykk. Einn af allra bestu kokteilunum er Viskí Sour sem á rætur sínar að rekja aftur til 1870 og er forveri allra sour-drykkja. „Þessari uppskrift hefur lítið verið breytt frá 1870 en hún hefur auðvitað verið notuð í mismunandi útfærslum. Þegar notað er egg í hann kallast hann Boston Sour. Þessi drykkur er alltaf vinsæll, maður virðir alltaf þennan drykk. Þeir sem eru að byrja að drekka kokteila verða oft fyrir mestum áhrifum af þessum,“ segir Ási á Slipp- barnum sem er sérfróður í kokteil- fræðunum. Í slenskt bjóráhugafólk fær fleira til að njóta um páskana en páskaeggið. Í gær var fyrsti söludagur ársins í Vínbúðunum á Úlfi Úlfi nr. 17 frá Borg brugghúsi. Úlfur Úlfur er einungis bruggaður einu sinni á ári, í takmörkuðu upplagi og nýtur gríðarlegra vinsælda. Ölið er af gerðinni Double India Pale Ale (DIPA) og er einskonar tvöföld útgáfa af Úlfi nr. 3, hinum hefðbundna IPA-bjór brugghússins. Humlasprengja með suðrænum keim „Þetta er þriðja árið sem við bruggum þennan bjór og gerum það ávallt á þessum tíma en 1. apríl varð fyrir val- inu af nokkrum ástæðum. Nafnið tónar skemmtilega við þann óheiðarleika sem fylgir deginum, en auk þess að vera vísun í Úlf, hefðbundna IPA-bjórinn okkar, er það auðvitað vísun í þekkta dæmisögu um heiðarleika,“ segir Valgeir Valgeirs- son, bruggmeistari hjá Borg. „Þegar við brugguðum Úlf Úlf fyrst fyrir þremur árum hafði aldrei verið bruggaður svona humlamikill bjór hér- lendis áður. Margir biðu spenntir en í ljósi dagsins óöruggir með hvort eitthvað væri raunverulega að koma eða hvort það væri verið að rugla eitthvað í þeim. Þetta er líka ákveðið forskot á vorið sem tæplega er komið hingað á þessum tíma – bjórinn er mikil humlasprengja og því talsverðir suðrænir ávextir og blóm í lykt og bragði sem vonandi koma einhverjum yfir sein- ustu metra vetrarins.“ Ferskvara sem á njóta sem allra fyrst Þrátt fyrir háa áfengisprósentu er Úlfur Úlfur mikil ferskvara og alls ekki ætluð til þroskunar. „Að gefnu tilefni ber að taka fram að Úlfur Úlfur er, eins og aðrir IPA-bjórar, mikil ferskvara og ætti að drekkast eins nálægt framleiðsludegi og mögulegt er. Það ríkir ákveðinn misskilningur með þetta sem er að einhverju leyti okkur hjá Borg að kenna,“ segir Árni Long, brugg- meistari hjá Borg. „Við höfum sent frá okkur þónokkuð af sterkum og maltmiklum bjórum sem við höfum verið að hvetja fólk til að prófa að þroska heima hjá sér, bjóra á borð við Surtina, Garúnu, bjóra í belgískum klaustursstílum og fleiri. Þessir bjórar eiga það sameiginlegt að vera háir í alkó- hólmagni. Það er hinsvegar ekki alveg svo einfalt að allir bjórar með hátt alkó- hólinnihald séu vænlegir til þroskunar. Léttir einfaldir lagerbjórar eru ferskvara og DIPA-bjórar á borð við Úlf Úlf eru gott dæmi um sterka bjóra sem eru það einnig og á alls ekki að þroska. Karaktereinkenni Úlfs Úlfs koma að langmestu leyti frá því mikla humla- magni sem í honum er og humlar eru mjög veikir fyrir öldrun og „oxast“ illa eins og það er kallað. Þess vegna eru IPA bjórar þekktir fyrir að eldast illa en eru með vinsælli bjórstílum bjóráhugafólks á meðan þeir eru ferskir. Við hvetjum því fólk til að njóta Úlfs Úlfs sem fyrst og liggja ekki á birgðum. Þetta er kannski svipað og jólalögin sem eru skemmtileg í desember en hálf glötuð strax í janúar. Fyrir þá sem vilja mastera ferskleikann er hægt að benda á strætó. Þannig þarftu ekki einu sinni að bíða eftir því að komast heim, heldur getur byrjað strax á leiðinni. Þá er hinsvegar mikilvægt að muna eftir glasi – því allan gæðabjór á auðvita að drekka úr glasi, aldrei af stút,“ segir Árni Long. Sígildur Viskí Sour  45 ml Bourbon (Til dæmis Maker’s Mark eða Bulleit)  30 ml ferskur sítrónusafi  15 ml sykur síróp (1,5 sykur á móti 1 vatni)  Dass maraschino líkjör, sem er kannski svona 5 ml eða eftir smekk (Í sumum uppskriftum er líkjörnum sleppt)  1 eggjahvíta Viskí sour Aðferð Allt sett í hristara og hrist án klaka til að slá í sundur eggjahvítuna. Svo er klaka bætt við og hrist duglega, klaki síaður frá á klakafyllt glas. Ási á Slippbarnum segist „dassa“ angostura bitter yfir en því má sleppa. Skreytt með sítrónubát.  Bjór Úlfur Úlfur kemur á markað þriðja árið Í röð Veisla fyrir bjóráhugafólk Valgeir Valgeirsson og Árni Long í Borg brugghúsi hafa sent frá sér tvöfaldan IPA-bjór, Úlf Úlf. Ljósmynd/Hari Strákarnir í Borg brugghúsi senda þriðja árið í röð frá sér tvöfaldan IPA-bjór, Úlf Úlf. Hann er seldur í takmörkuðu upplagi og hvetja bruggmeistarar Borgar bjóráhugafólk til þess að njóta veiganna sem fyrst, en ekki að bæta bjórnum í safnið heima.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.