Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 58
Fermingarkóngurinn sest senn í helgan stein Vigfús Þór Árnason er sóknarprestur í Grafarvogssókn sem er stærsta sókn landsins. Hann er oft kallaður fermingarkóngurinn því fáir hafa fermt jafn mörg börn og hann. Hann er að hefja sitt síðasta starfsár en kvíðir því alls ekki að setjast í helgan stein. Þ að eru auðvitað algjör forrétt-indi að hafa fengið að byggja sóknina upp frá grunni,“ seg- ir Vigfús Þór Árnason sem hefur verið sóknarprestur í Grafarvogi frá árinu 1989. „Þá bjuggu hér um 300 manns og hér var eiginlega ekkert nema bara gras. Nú búa um 20.000 manns í sókninni og við störfum hér fjórir prestar saman.“ Nóg að gera í helgum steini Vigfús var vígður til prests á Siglu- firði árið 1976 svo hann er að hefja sitt fertugasta og jafnfram síðasta starfsár í vor. „Ég verð víst að hætta sjötugur því ég er opinber starfsmaður þó svo að ég sé eld- hress. Ég held ég hafi bara sjaldan haft það betra en akkúrat núna. Sykurstigið hefur eitthvað aðeins verið að angra mig en annars er ég mjög hraustur. Þetta er dálítið sérkennileg tilfinning en ég þakka fyrir að hafa fengið að starfa svona lengi og ég þakka bara fyrir hvern dag sem er gefinn,“ segir Vigfús sem kvíðir því ekki að setjast í helgan stein. „Það er nóg af verk- efnum sem bíða mín. Það er í nógu að snúast í Lions-klúbbnum Fjörgin hér í Grafarvogi, þar sem ég hef verið meðlimur frá upphafi, og þó það hvíli mikil leynd yfir Frímúr- arareglunni þá er það nú ekkert leyndarmál að ég er mjög virkur í henni,“ segir Vigfús og hlær. „Það er fer ekkert fram í Frímúrararegl- unni sem gæti ekki farið fram við altarið hér í kirkjunni.“ Fermingarbörnin hafa breyst mikið á 40 árum Á fjörutíu ára starfsferli hefur Vig- fús fermt yfir 6000 fermingarbörn og segist hann oftar en ekki hitta gömul fermingarbörn á förnum vegi. Hann segir fermingarbörn- in hafa breyst gríðarlega á þess- um fjörutíu árum. „Hér áður fyrr snerist fræðslan aðallega um að þylja yfir börnunum en í dag snýst þetta miklu meira um samtal okk- ar á milli og krakkarnir eru til í að ræða allt milli himins og jarðar. Án þess að vilja móðga strákana þá eru stelpurnar aðeins á undan í þroska á þessum aldri og þær eru mikið að spá í framtíðina. Þær ræða hisp- urslaust um hjónabandið á meðan strákarnir horfa í aðra átt,“ segir Vigfús og hlær. Vígður prestur er alltaf prestur „Krakkar í dag eru almennt mun opnari en áður og ekkert hræddir við að tala um hluti eins og flókin fjölskyldutengsl fyrir framan allan bekkinn, hluti sem áður voru bara ræddir á bak við lokaðar dyr áður. Ég hefði sjálfur roðnað og litið und- an sem fermingarstrákur. Nú eru 55 ár síðan séra Árelíus fermdi mig í Langholtskirkju. Hann fermdi mjög marga, gamli maðurinn, og var oft kallaður fermingarkóngur sinnar tíðar,“ segir Vigfús og játar því að það megi kalla hann sjálf- an fermingarkóng líka. „Já, ætli það megi ekki kalla mig það því ég er með í öllum fermingum hér og við erum stærsta sóknin. Þetta verður næstsíðasta hópfermingin mín núna í ár. En vígður prestur er auðvitað alltaf prestur svo ég á nú örugglega eftir að taka þátt í einhverjum athöfnum, allavega að ferma barnabörnin mín. Ef guð lofar og ef heilsan leyfir.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Vigfús Þór Árnason fermdist sjálfur á föstudaginn langa í 30 barna hópi í Langholtskirkju. Hann segir sína bestu vini vera á meðal fermingarbarnanna en þau ætla öll 30 að hittast á föstudaginn langa og fagna því að 55 ár eru frá fermingunni. Ljósmynd/Hari 58 menning Helgin 2.-5. apríl 2015 Billy Elliot (Stóra sviðið) Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00 Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 17/5 kl. 20:00 Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Sýningum fer fækkandi Hystory (Litla sviðið) Lau 11/4 kl. 20:00 3.k. Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 4.k. Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl. leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið) Fim 9/4 kl. 19:30 4.sýn Fim 16/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 10/4 kl. 19:30 5.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 6.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz. Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið) Sun 19/4 kl. 19:30 Aukas. Allra síðasta aukasýning. Segulsvið (Kassinn) Fös 10/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 10.sýn Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson Konan við 1000° (Stóra sviðið) Sun 12/4 kl. 19:30 Aukas. Allra síðasta aukasýning. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Sun 12/4 kl. 13:30 Sun 19/4 kl. 13:30 Sun 12/4 kl. 15:00 Sun 19/4 kl. 15:00 Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn! 08. apríl kl. 20.00 Kvöldstund með Helgu Þórarins. Súpa í veitingastofum frá kl 18.00, borðapantanir í síma 511 1904 10. apríl kl. 20.00 Samsöngur með Júlíönu Indriðadóttur og Sigurkarli Stefánssyni. Súpa í veitingastofum frá kl 18.00, borðapantanir í síma 511 1904 11. apríl kl. 16.00 Tónleikar- Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir sópransöngkona og Sólborg Valdimarsdóttir píanóleikari. www.hannesarholt.is Miðasala á midi.is Dagskrá hannesarholts
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.