Fréttatíminn - 02.04.2015, Page 4
Ein
ákvörðun
getur öllu
breytt
www.allraheill.is
„Ég held að það
sé leiðin fyrir
okkur Íslendinga
að fara í sjálf-
bæra framleiðslu
því við munum
aldrei koma til
með að keppa
við stóru slétt-
urnar um massa-
framleiðslu.“
966
fóstureyðingar voru framkvæmdar á
Íslandi árið 2013.
Dunkin’ Donuts til Íslands
Bandaríska kleinuhringja- og kaffihúsa-
fyrirtækið Dunkin’ Donuts á í viðræðum
um að hefja starfsemi hér á þessu ári.
Frá þessu er greint í Markaðinum.
Aukin sala á páskabjór
78.508 lítrar hafa selst af páskabjór í ár,
frá öskudegi þar til á síðasta sunnudag.
Þetta er 14 prósent söluaukning
milli ára. Mest hefur selst af Víking
páskabjór í dós, þá Páskagulli í dós og
Páskakaldi er þriðji mest seldi bjórinn.
Guðný Helga til Landspítalans
Guðný Helga Herbertsdóttir
hefur verið ráðin deildar-
stjóri samskiptadeildar
Landspítalans. Hún hefur
undanfarin ár starfað sem
upplýsingafulltrúi Ís-
landsbanka en var áður
fréttamaður á Stöð 2.
Byggt við Alþingishúsið
Ríkisstjórnin hyggst minnast aldaraf-
mælis fullveldis Íslands árið 2018 með
því að byggja viðbyggingu við Alþingis-
húsið eftir hönnun Guðjóns Samúels-
sonar, fyrrum húsameistara ríkisins. Þá
á að ljúka við byggingu Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum og
reisa nýja Valhöll á Þingvöllum.
2.079
fleiri gengu úr þjóð-
kirkjunni á síðasta ári
en gengu í hana.
Tæplega 20
þúsund manns
stóðu utan trú-
félaga í byrjun
þessa árs.
Vikan sem Var
Lambakjöt þjóðarrétturinn?
Aðalfundur sauðfjár-
bænda samþykkti
fyrir skemmstu að
vinna að því að ís-
lenskt lamba-
kjöt verði
viðurkennt
sem þjóðarréttur
Íslendinga.
Sólheimar eru vagga lífrænnar ræktunar á Íslandi og þekkt alþjóðlegt samfélag. Með samstarfi við Matís munu þar skapast fjöl-
breytt tækifæri til framleiðslu matvæla.
nýsköpun matís og sólheimar gera með sér samstarfssamning
Matís og Sólheimar skrifuðu í vikunni undir samstarfssamning sem er ætlað að leiða af sér
spennandi nýsköpunarverkefni og fjölbreyttari atvinnumöguleika á Suðurlandi. Ein af matar-
smiðjum Matís mun flytjast til Sólheima þar sem frumkvöðlum og framleiðendum í mat-
vælaiðnaði mun bjóðast aðstaða til vöruþróunar, kennslu og rannsókna.
V ið höfum verið að setja upp svo-kallaðar matarsmiðjur á nokkrum stöðum um landið þar sem fólk með
nýjar hugmyndir í matvælaframleiðslu get-
ur fengið aðstöðu til að þróa hugmynd sína,“
segir Oddur Már Gunnarsson, sviðsstjóri
hjá Matís, sem undirritaði samstarfssamn-
ing við Sólheima í vikunni. Fyrirhugað er
að opna slíka matarsmiðju að Sólheimum
sem mun þjóna öllum þeim matvæla frum-
kvöðlum og framleiðendum sem hafa áhuga
á vöruþróun en auk þess mun hún nýtast
heimamönnum til framleiðslu og nýsköp-
unar.
„Það er mikil þörf fyrir matarsmiðjurnar
en samfélagið hér á Íslandi er svo lítið að
þær standa svo ekki undir sér þegar fram í
sækir. Það gerðist í matarsmiðjunni á Flúð-
um þar sem var mikill áhugi til að byrja
með en sem þynntist svo út. Við fórum því
að velta því fyrir okkur hvernig hægt væri
að nýta þau tæki sem þegar væru til staðar
og fundum þá lausn í sameiningu við sveit-
arfélagið að flytja hana til Sólheima.“
Sjálfbær stefna Matís
„Á Sólheimum er vistvæn og sjálfbær starf-
semi sem fellur gríðarlega vel að okkar
stefnu. Þar er matvælavinnsla sem verið er
að þróa áfram og fullt af nýjum hugmynd-
um sem eiga eftir að finna sér farveg í öll-
um þeim búnaði sem matarsmiðjan býður
upp á,“ segir Oddur en auk þess er mjög
góð kennslu- og fundaraðstaða á Sólheim-
um sem mun nýtast í frumkvöðlastarfinu.
„Ég veit ekki hvort við breytum heiminum
strax á morgun en við erum að taka lítil
skref í rétta átt. Aukin sjálfbær matvæla-
framleiðsla leiðir af sér meiri sátt við um-
hverfið því þegar framleiðsla er sjálfbær þá
tökum við ekki meira en við getum gefið til
baka, sama hvort það er á ræktuðu landi
eða í hafinu. Ég held að það sé leiðin fyrir
okkur Íslendinga að fara í sjálfbæra fram-
leiðslu því við munum aldrei koma til með
að keppa við stóru slétturnar um massa-
framleiðslu.“
Skapar störf á Suðurlandi
Guðmundur Á. Pétursson, framkvæmda-
stjóri Sólheima, er spenntur yfir samstarf-
inu sem hann segir að eigi eftir að skapa
fjölbreytt störf á Suðurlandi. „Við hér á
Sólheimum erum þakklát fyrir að horft
sé til okkar til að vista verkefnið og ég sé
fram á að fjöldamörg tækifæri, eins og t.d.
tækifæri til fullvinnslu matvæla á Suður-
landi sem margir munu geta nýtt sér auk
þess sem þetta skapar fjölbreytta atvinnu-
möguleika. Það er óskaplega margt í gangi
á Suðurlandi og fjöldi fólks sem vantar að-
stöðu til að koma vörunum sínum á markað
svo þetta er ekkert nema frábært.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Opna matarsmiðju í vöggu
lífrænnar ræktunar á Íslandi
Veður föstudagur laugardagur sunnudagur
SuðLæg átt, 8-15 M/S og úrkoMa, en
bjartiviðri na-LandS. HLýnandi.
HöfuðborgarSvæðið: SuðauStLæG Átt oG
dÁLÍtiL úrkoMa. HLýnar.
Sunnanátt og Skúrir einkuM nv-tiL en Létt-
Skýjað uM auStanvert Landið.
HöfuðborgarSvæðið: SuðveStanÁtt oG
Stöku Skúrir.
SuðveStanátt og Skúrir en úrkoMuLítið
na-tiL.
HöfuðborgarSvæðið: SuðveStanÁtt oG
Skúrir eða riGninG.
Snýst í suðlæga átt á
föstudaginn langa og
hlýnar um mest allt land
nú nálgast landið lægð og heldur hlýrra
loft. norðanáttin er því úr sögunni yfir
páskana og í stað hennar er útlit fyrir suð-
lægar áttir og mildara loft. Á
sunnanverðu landinu er útlit
fyrir úrkomu, snjókomu að
morgni föstudagsins langa
en síðan slyddu og rigningu.
útlit er fyrir að norðan og
austantil verði að mestu
þurrt. vindhraði er yfir-
leitt 8-15 m/s, og hlýnar
smám saman um allt land.
5
3 3
3
5
5
3 5
4
5
4
3 5
4
5
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 2.-5. apríl 2015