Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 6
24.900 kr.
DÚNMJÚKUR
DRAUMUR
QOD dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
QOD dúnkoddi
· 15% dúnn
· 85% smáfiður
Fullt verð: 4.900 kr.
Aðeins 69.900 kr.
NATURE’S REST
heilsurúmFERMINGAR
TILBOÐ
Shape Comfort
koddi fylgir með
að verðmæti
5.900 kr.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
Nature’s Rest heilsudýna með Classic botni.
Fáanlegt í svörtu og hvítu.
Stærð: 120x200 cm.
Fullt verð: 79.900 kr.
FERMINGAR
TVENNA
Fyrir þínarbestu stundir
Holtagarðar | Akureyri | www.dorma.is
Fyrir fólk sem stækkar og stækkar
SHAPE HEILSURÚMRivera rúmstæði
Spape heilsudýna sem lagar sig að líkamanum. Rivera rúmstæði.Fáanlegt í svörtu, hvítu og gráu.Stærð: 120x200 cm.
Fullt verð: 140.900 kr.
112.640 kr.
69.900 kr.
24.900 kr.
20%
FERMINGAR
TILBOÐ
Shape Comfort koddi fylgir með að verðmæti
5.900 kr.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
Shape Comfort koddi fylgir með að verðmæti
5.900 kr.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
NATURE’S RESTheilsurúm
Nature’s Rest heilsudýna með Classic botni.Fáanlegt í svörtu og hvítu.
Stærð: 120x200 cm.
Fullt verð: 79.900 kr.
FERMINGAR
TVENNA
DÚNMJÚKUR DRAUMUR
QOD dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
QOD dúnkoddi
· 15% dúnn
· 85% smáfiður
Fullt verð: 4.900 kr.
FERMINGAR
TILBOÐ
Afgreiðslutími
Mánudaga til föstudaga frá kl. 10–18Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
P
re
nt
un
: Í
sa
fo
ld
ar
pr
en
ts
m
ið
ja
1
A
15
03
01
2
D
or
m
a
15
-0
3-
03
-
0
8:
33
:4
8
O
rk
n
r
--
C
M
Y
K
ormabæklinginn
finnur þú á dorma.is
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Fyrir fólk sem
stækkar og stækkar
Þ etta eru ótrúlega spennandi tímar, það sem er nýtt í dag
verður gamalt á morgun.
Auðvitað geta verið fólgin
tækifæri í þessum breyting-
um fyrir íslenskt atvinnulíf.
Vegna smæðar sinnar á það
að vera sveigjanlegra til þess
að taka breytingum. Engu að
síður geta þessar breytingar
haft skammtíma áhrif hér
eins og annars staðar. Sam-
kvæmt Oxford-háskóla þá
munu 45% af þeim störfum
sem eru til í dag ekki vera til
eftir tíu ár. Það er því ljóst að
breytingarnar eiga eftir að
hafa áhrif hér þar sem flestir
hafa atvinnu af einhverskon-
ar þjónustu,“ segir Ingi Björn
Sigurðsson, skipuleggjandi
ráðstefnunnar Point Zero,
sem haldin verður í Gamla
bíói 22. apríl næstkomandi.
Á ráðstefnunni verður
fjallað um þær hröðu breyt-
ingar sem nú eiga sér stað
í viðskiptalífinu og samfé-
laginu með tilkomu staf-
rænnar dreifingar. „Síðasta
áratug eða svo er komin ný
tegund af milliliðum sem eru
með flatari uppbyggingu en
milliliðir fortíðar. Við köllum
þá „platform“ en því miður
hef ég ekki fundið gott ís-
lenskt orð yfir þá. „Platform“
er staður þar sem framleið-
endur og neytendur geta ver-
ið í beinum samskiptum og
viðskiptum. Góð dæmi um
þetta eru Google, Airbnb,
UBER og Amazon. Þessi
þróun á eftir að halda áfram.
Það verða enn færri milliliðir
með útbreiðslu P2P-sam-
skipta,“ segir Ingi Björn.
Hann segir að þessar
breytingar muni ná bæði til
stórfyrirtækja og almenn-
ings. „Það er mín spá að
Amazon Fresh og Instacart
verði stærstu dreifingarað-
ilar íslensks sjávarfangs eftir
nokkur misseri,“ segir Ingi.
Breytingarnar á líf al-
mennings verða sömuleiðis
mjög róttækar, að mati
Inga. „Í mínum huga mun
næsta bylgja verða leidd
áfram af tækninni bak við
Bitcoin-sýndarmiðilinn eða
annarri álíka tækni sem
gerir fólki kleift að stunda
örugg viðskipti sín á milli
milliliðalaust. Deilihagkerfið
verður til umfjöllunar á ráð-
stefnunni en það gengur í
grunninn út á betri nýtingu
á gæðum. Það er orðin við-
tekin venja erlendis að fólk
deili íbúðum, bílum og upp-
lýsingum. Könnun í Banda-
ríkjunum sýndi fram á að
helmingur aldamótakyn-
slóðarinnar (1980-2000) hafa
nýtt sér deilivefi á borð við
UBER, Airbnb, Lyft og fleiri
álíka. Þetta er líka að gerast
hér. Við sjáum bara áhrif
Airbnb á Reykjavík, þau eru
rosaleg. Svo eru rúmlega
12 þúsund manns í hópnum
Skutlarar á Facebook. Ég
hef ekki prófað þetta sjálfur
en vinir mínir hafa gert það.
Þetta eru náttúrlega mikið til
krakkar á bíl foreldra sinna
sem rukka þúsundkall fyrir
farið en það er þrælmikið
svona að gerast. Hlutirnir
eru að breytast á þessu litla,
saklausa landi.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Viðskipti point Zero ráðstefnan í reykjaVík síðar í apríl
Orðin viðtekin venja að
fólk deili íbúðum og bílum
Ingi Björn Sigurðsson skipuleggur ráðstefnuna Point Zero í Reykjavík. Hann segir miklar
breytingar eiga sér stað í samfélaginu með tilkomu stafrænnar dreifingar og deilihagkerfisins.
Airbnb hefur haft mikil áhrif í Reykjavík og 12 þúsund manns eru í hóp á Facebook þar sem fólk
býðst til að skutla öðru fólki.
Ingi Björn
Sigurðsson
er fram-
kvæmdastjóri
Point Zero sem
haldið verður í
Reykjavík síðar
í mánuðinum.
Um er að ræða
ögrandi ráð-
stefnu þar sem
breytingar í
viðskiptalífinu
og samfélaginu
verða ræddar.
point Zero-ráðstefnan
Tólf erlendir fyrirlesarar mæta
á Point Zero-ráðstefnuna.
Þar á meðal verða Oliver
Luckett, framkvæmdastjóri
The Audience, Sangeet Paul
Choudary, stofnandi Platform
Thinking, og April Rinne,
sem vakið hefur eftirtekt
fyrir fyrirlestra um deilihag-
kerfið. Þá munu einnig erlendir
gestir sækja ráðstefnuna en
Ingi Björn segir markhópinn
þó fyrst og fremst íslenskt
atvinnulíf. „Markmiðið er að
þetta verði ögrandi ráðstefna
þar sem þessir hlutir verði
ræddir á mannamáli. Stefnan
er að Point Zero verði árlegur
viðburður fyrir viðskiptalífið
líkt og Iceland Airwaves, Sónar
og Hönnunarmars er fyrir
menningarlífið.“
Nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna má fá á PointZero.is.
Kostnaður við flutning og dreifingu raf-
magns vegna húshitunar hjá þeim sem
ekki eiga kost á hitun með jarðvarma
verður að fullu niðurgreiddur frá og með
byrjun næsta árs samkvæmt nýju frum-
varpi iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í
vikunni.
Með þessu er ætlun ríkisstjórnarinnar
að jafna búsetuskilyrði um allt land.
Hyggst stjórnin verja um 215 milljónum
króna ár hvert til að mæta þessum aukna
kostnaði. Til þessa hefur kostnaður ríkis-
ins við beinar niðurgreiðslur verið 1.280
milljónir á ári.
Í fréttatilkynningu frá atvinnuvegar-
áðuneytinu kemur fram að um 90% lands-
manna geti hitað hús sín með jarðvarma,
sem er ódýrari kostur en rafhitun. Segir
að munur á kostnaði við rafhitun og hitun
með jarðvarma hafi farið vaxandi undan-
farin ár.
Byggðamál ríkisstjórnin Vill jafna Búsetuskilyrði um allt land
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
215 milljónir í auknar
niðurgreiðslur við húshitun
6 fréttir Helgin 2.-5. apríl 2015