Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 12
RAFVÆDD FRAMTÍÐ Í SÁTT VIÐ SAMFÉLAG OG UMHVERFI
Landsnet býður til opins vorfundar um stöðu flutningskerfis raforku á Íslandi og nýjar áherslur félagsins á
Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 9. apríl milli kl. 9-11.
Morgunhressing í boði frá kl. 8:30 og meðan fundur stendur yfir.
Skrásetning á heimasíðu Landsnets, landsnet.is, eða í síma 563 9300.
Allir velkomnir!
Dagskrá:
Ávarp
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar – og viðskiptaráðherra.
Landsnet 10 ára – horft fram á veginn
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets.
Öruggt rafmagn í takt við samfélagið
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets.
Jarðstrengir á hærri spennu á Íslandi
Friðrika Marteinsdóttir jarðfræðingur hjá EFLU verkfræðistofu.
Áhugasamir, sem eiga þess ekki kost að mæta á fundinn, geta fylgst með beinni útsendingu frá honum á heimasíðu
Landsnets. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir á twitter með merkingunni #landsnet
Víðerni og vírar í sátt við samfélagið
Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Gagnaver: Ný starfsemi á Íslandi í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi raforku
Eyjólfur Magnús Kristinsson, formaður Samtaka íslenskra
gagnavera.
Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri:
Edda Hermannsdóttir, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins.
AT
H
YG
LI
/
M
AR
S
20
15
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Smart föt, fyrir smart konur
Netverslun á tiskuhus.is
Advania býður heildarlausnir
á sviði upplýsingatækni. Þar finna
fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum lausnir sem auka hagræði
í rekstri.
Vinsældir skýjalausna aukast
sífellt, en þær bæta sveigjanleika
og öryggi. Gögn eru vistuð á
öruggan máta og aðgengileg hvar
og hvenær sem er. Svokallað
áskriftarmódel hentar mörgum, en
þá þurfa fyrirtæki ekki að leggja
í stóra upphafsfjárfestingu.
Útvistun á rekstrarþáttum á borð
við prentrekstur getur skapað
Auglýsing - Lausn við myndagátu
Lausnin er Advania
mikið hagræði. Þannig er hægt
að lækka prentkostnað um allt
að 30% og búa til meiri tíma til
að sinna kjarnarekstri. Rekstrar-
þjónusta Advania býður fjölbreyttar
þjónustuleiðir sem tryggja öryggi,
auka uppitíma og skapa fyrir-
tækjum svigrúm til að sinna því sem
mestu máli skiptir.
Viðfangsefni á sviði mannauðsmála
eru fjölbreytt, allt frá ráðningu
til starfsloka. Advania býður
lausnir á borð við ráðningakerfi,
mannauðskerfi, launakerfi, tíma-
skráningakerfi og mötuneytiskerfi
svo eitthvað sé nefnt.
Lausnin er Advania. Rétt notkun
upplýsingatækni getur skapað sam-
keppnisforskot og aukið hagræði.
málin
er svari
ð á síðu 12.
G rundvallarhugsunin á bak við tilskipunina er að auka frjálst f læði sjúklinga innan sam-
bandsins, auka tækifæri einstaklinga
á þjónustu og að auka samvinnu innan
heilbrigðiskerfa á evrópska efnahags-
svæðinu,“ segir Þórunn Oddný Steins-
dóttir lögfræðingur á skrifstofu heil-
brigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu,
en íslensk stjórnvöld vinna nú að inn-
leiðingu tilskipunar Evrópusambands-
ins um heilbrigðisþjónustu þvert yfir
landamæri. „Við getum ekki enn séð
hver áhrifin af tilskipuninni verða því
við vitum ekki í hve miklum mæli ein-
staklingar munu nýta sér þennan rétt.“
Munum þurfa fyrirfram gefið sam-
þykki
Tilskipunin gefur ríkjunum kost á því
að setja ákveðin skilyrði um fyrirfram
samþykki áður en einstaklingum er
heimilað að fara til annarra ríkja að
sækja sér heilbrigðisþjónustu. „Við
viljum fara varfærnislega í þessa inn-
leiðingu því við vitum í rauninni ekki
hvaða áhrif hún mun hafa. Aðalatriðið
í okkar vinnu er að setja kröfu á fyrir-
fram gefið samþykki en það eru ekki
öll lönd sem gera það, segir Þórunn.
„Það mun í fyrsta lagi þurfa að sækja
fyrirfram um samþykki til sjúkra-
trygginga Íslands ef þjónustan sem er
sótt er flókin, kostnaðarsöm og krefst
innlagnar. Í öðru lagi ef þjónustan er
áhættusöm fyrir sjúklinginn eða al-
menning og í þriðja lagi ef vafi leikur
á um gæði þjónustunnar.“
Fellur ekki undir sérfræðiþjónustu
Þórunn segir tilskipunina eiga eftir
að veita fleiri valmöguleika en annars
muni hún ekki breyta miklu fyrir neyt-
endur íslenska heilbrigðiskerfisins.
„Stærsta breytingin er sú að þú get-
ur verið hérna heima en kosið frekar
að sækja þér þjónustu í öðru Evrópu-
sambandsríki, valkostirnir verða því
fleiri. En hún fjallar bara um þá þjón-
ustu sem fellur undir sjúkratrygginga-
kerfið hér, hún fjallar ekki um þá þjón-
ustu sem fæst ekki hér heima, eins
og til dæmis sérfræðiþjónustu vegna
sjaldgæfra sjúkdóma,“ segir Þórunn
en tilskipunin mun þó gangast í sam-
bandi við sjaldgæfa sjúkdóma að öðru
leyti. „Mikilvægur hlutur í tilskipun-
inni er samvinnan á milli þjóðanna.
Það á eftir að myndast sameiginlegur
gagnabanki upplýsinga, til að mynda
í sambandi við sjaldgæfa sjúkdóma,
sem mun nýtast öllum sem að sam-
starfinu koma.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
HeilbriGðismál evrópusambandið
Innleiðing heilbrigðisþjónustu
þvert yfir landamæri á Íslandi
Íslendingar munu þurfa
fyrirfram gefið sam-
þykki Sjúkratrygginga
Íslands þegar tilskipun
Evrópusambandsins
um heilbrigðisþjónustu
þvert yfir landamæri
nær fram að ganga.
Þórunn Oddný Steins-
dóttir lögfræðingur
telur tilskipunina ekki
eiga eftir að hafa
róttæk áhrif á neyt-
endur íslenska heil-
brigðiskerfisins en
sameiginlegur gagna-
grunnur upplýsinga
muni nýtast okkur vel.
Íslensk stjórnvöld
vinna nú að inn-
leiðingu tilskipunar
Evrópusambandsins
um heilbrigðis-
þjónustu þvert yfir
landamæri.
12 fréttir Helgin 2.-5. apríl 2015