Fréttatíminn - 02.04.2015, Side 34
heimili & hönnun Helgin 2.-5. apríl 201534
Þ að er mjög skandinavískur blær yfir hönnun hér á landi og það sem mér finnst mest áberandi þessa stundina eru
svokallaðar subway flísar en fólk er
ýmist að flísaleggja heilan vegg í eld-
húsinu með þeim eða þá um það bil 50
sentimetra hátt svæði fyrir ofan borð-
plötuna,“ segir Jónína. Með „subway“
flísum á hún við litlar hvítar flísar
sem sækja nafngift sinna til flísa sem
þekja neðanjarðarlestarstöðvar víðs
vegar í heiminum. „Það er einnig orðið
meira áberandi að hafa opnar hirslur
í eldhúsinu til þess að gera þau aðeins
persónulegri, en þá er fólk með uppá-
halds hlutina til sýnis.“ Í þessu sam-
hengi nefnir Jónína String hillurnar
sem dæmi. „Þær eru dæmi um fallega
og tímalausa hönnun sem er svo hægt
persónugera með skemmtilegum
hætti með því að raða uppáhalds hlut-
unum sínum í þær.“
Umfang marmarans minnkar
Þegar kemur að efnisvali í eldhús
segir Jónína að tímalaus form og ljósir
litir, oftast hvítur, séu vinsæl á móti
hráum við eða jafnvel steypu. „Flot-
aðar borðplötur verða einnig sífellt vin-
sælli. Svo virðist sem marmarinn, sem
hefur notið mikilla vinsælda, sé aðeins
að minnka og hrárri efniviður sé að
taka við, til dæmis steypa í ýmsum
formum.“
Opnari og bjartari eldhús
Jónína segir að hinir hefðbundu efri
skápar séu að verða minna áberandi
í eldhúsum. „Þeir minnka rýmið svo
mikið og það er einfaldlega skemmti-
legra að hafa eldhúsið bjartara. Þetta
er því frábær lausn fyrir þá sem hafa
ágætlega stórt rými.“ Jónína ráðleggur
þeim sem eru að huga að breytingum í
eldhúsinu að fara í framkvæmdir sem
standast tímans tönn. „Svo er um að
gera að sýna uppáhalds eldhúsmunina
í stað þess að geyma þá inn í lokuðum
skápum.“
Allt umhverfið veitir innblástur
Aðspurð um hvaðan hún fái innblástur
fyrir ný hönnunarverkefni segir Jónína
að bestu hugmyndirnar fái hún úr um-
hverfinu. „Ég er alltaf að pæla í öllu
sem er að gerast í kringum mig og
mér finnst gaman að koma heim til
fólks og sjá allavega hönnun, en þá fer
hugmyndaflugið á fullt. Pinterest er
að sjálfsögðu besti vinur minn eins og
flestra hönnuða að ég held. Svo finnst
mér yndislegt að eiga stund með góð-
um kaffibolla og lesa blöð á borð við
Bolig og Interiör eða vafra um á netinu
um hin ýmsu blogg. Þegar kemur að
eldhúsum að þá fylgist ég einna helst
með hönnun Boffi frá Ítalíu en það er
einstaklega falleg hönnun á heims-
mælikvarða í eldhúsinnréttingum.“
Tímalaus
eldhús með
persónu-
legum blæ
Innanhúsarkitektinn Jónína Þóra Einars-
dóttir er einn þriggja eigenda hönnunarfyr-
irtækisins Krí8 Reykjavík Stúdíó, sem tekur
að sér að skapa og skipuleggja allskyns
rými fyrir fyrirtæki og heimili. Fréttatíminn
fékk að forvitnast aðeins um hvers má
vænta í eldhúshönnun í vor og sumar.
String hillurnar eru dæmi um fallega og tímalausa hönnun sem
er hægt persónugera með skemmtilegum hætti.
Jónína Þóra Einarsdóttir, innanhúsarkitekt, segir að opin og björt eldhús í persónulegum stíl muni einkenna eldhúshönnun á
næstunni. Ljósmynd/Hari.
Svokallaðar subway flísar njóta mikilla vinsælda um þessar
mundir, en nafngiftina sækja þær til flísa sem þekja neðan-
jarðarlestarstöðvar víðs vegar í heiminum.
... hinir hefð-
bundu efri skápar
séu að verða
minna áberandi
í eldhúsum. Þeir
minnka rýmið
svo mikið og það
er einfaldlega
skemmtilegra
að hafa eldhúsið
bjartara. Þetta er
því frábær lausn
fyrir þá sem hafa
ágætlega stórt
rými.
Fyrir þínar bestu stundir
Fæst
um land
allt
Vörur SVeinbjargar fáSt á eftirtöldum Stöðum á landinu
reykjaVík: Epal, Kraum, Hrím, Dúka, Garðheimar, Þjóðminjasafnið, Eymundsson
Laugavegi Hönnunarsafn Íslands, Norræna húsið, Old Harbour Souvenirs og Sýrusson
kópaVogur: 18 Rauðar rósir, Bosch búðinog Valfoss akureyri: Sveinbjörg - Njarðarnes 4,
Eymundsson, Sirka, Kista og Blómabúð Akureyrar mýVatnSSVeit: Vogafjós
akraneS: @ Home VeStmannaeyjar: Póley SelfoSS: Motívo HVeragerði: Blómaborg
neSkaupStaður: Nesbakki Höfn: Húsgagnaval íSafjörður: Eymundsson
keflaVík: Krummaskuð StykkiSHólmur: Bókaverslun Breiðafjarðar
VefVerSlun: www.sveinborg.is, www.heimkaup.is www.sveinbjorg.is