Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 48

Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 48
48 matur & vín Helgin 2.-5. apríl 2015 V analega eru chiliréttir búnir til úr hakki og það má vel nota hakk í þennan. En núna, af því að það eru nú einu sinni páskar, er best að skottast til kjötkaupmannsins ( já, það þarf að hafa kjötkaupmann) og biðja hann um það kjöt sem hann setur venju- lega í hakkavélina. Við erum að tala um síðubita, hnakka eða eitthvað af þeim bitum sem þurfa smá ást og tíma til að verða mjúkir og bragð- góðir. Hefðbundið gúllas er yfirleitt skorið úr lærvöðvum og skortir oft þá eiginleika sem þarf í lengri suðu. Eins og fitu og tengivefi sem breyt- ast úr collageni í gelatín við langa væga suðu. Fá sum sé tvö kíló eða svo hjá kaupmanninum og skunda með þau í eldhúsið. Eldhúsið Skera kjötið í litla bita og brúna um helminginn á pönnu. Hinn helming- urinn af bitunum fer í nokkrum holl- um í matvinnsluvél. Þar er púlsað aðeins á þeim, sem þýðir að brjóta kjötið aðeins upp án þess að mauka það alveg. Brúna það líka í pönn- unni. Krydda vel með pipar. Skutla svo tveimur dósum af tóm- ötum í pott og kjötinu út í. Opna dós af nýrnabaunum, skilja safann frá og skutla helmingnum af baununum út í með tómötunum. Mauka hinn helminginn með sama tóli og kjötið og svo út í pottinn með maukið. Þetta mun þykkja sósuna vel. Þá er það að brenna skinnið utan af papriku. Það er hægt að gera beint yfir brennara á gashellu, undir grillinu í ofninum eða með logsuðu- tæki. Brenna rikkuna þangað til að allt skinnið er orðið svart eins og sálin í framsókarmanni fyrir kosn- ingar. Láta hana þá standa í skál með filmu yfir í nokkrar mínútur og skafa svo kolsvart skinnið af. Saxa svo í bita og það er allt í lagi þótt nokkrar svartar tægjur fari með út í pottinn. Bara ekki of mikið. Þeir sem vilja svolítið sterkara chili gera slíkt hið sama með eins mörgum chili og þurfa þykir aukalega við paprikuna. Páskakássa – með bjór Chili og súkkulaði fara saman eins og Beggi og Pacas. Þess vegna er það besta þegar búið er að borða of mikið af páskaeggjum að rétta sig af með kjötmikilli chilikássu. Þessi er búin til með Páskagulli. Ljómandi fínum hveitibjór sem hentar einkar vel í matargerð. Páskabjórsósa Ná því næst í stóra dós af Páskagulli sem þetta árið er ljómandi hveiti- bjór að hætti þýskra. Hella einum sopa í glas og drekka yfir matar- gerðinni. Smá dreitill er notaður til að afgljáa pönnuna sem kjötið var steikt á. Það fer svo líka út í pottinn góða. Þetta er látið malla á meðan heill rauðlaukur, eða hvaða laukur sem er, er svitaður á miðlungsheitri pönnu. Þegar laukurinn er orðinn glær eru fjögur til sex hvítlauksrif söxuð niður og svituð með laukn- um í lokin. Krydda með góðri mat- skeið af paprikudufti, u.þ.b. tveimur teskeiðum af chilidufti, teskeið af hvítlauks- og laukdufti. Þurrkuð steinselja fer því næst út í pottinn. Plús-mínus matskeið af henni. Allt fer þetta svo út í pottinn og hveitbjórinn aftur notaður til að af- gljá pönnuna. Restin af bjórnum fer svo út í pottinn. Smá nautakraftur, helst fljótandi, heimagerður ef til er, fer svo út í ásamt desilítra af tómat- sósu. Halda áfram að hræra með spaða í botninn svo ekkert brenni við. Eftir um korter á lágum hita án þess að hafa lokið á fer það á og inn í ofn í að minnsta kosti tvo tíma. Allt upp í sex tíma. Fer svolítið eftir því hvaða bita kjötsalinn átti. Það besta er þó að elda kássuna daginn áður og hita hana svo upp eftir þörfum um páskana. Þá er kjöt- ið er búið að drekka í sig sósuna og hægt að tyggja herlegheitin með augnlokunum. Borið fram með góðu brauði eða tortillaflögum. Rifinn ostur, fersk steinselja og sýrður rjómi skemma ekkert fyrir heldur. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Karlamellukjöt. Það er mjög mikilvægt að brúna kjötið vel. Það þarf að gera í nokkrum hollum svo kjötið karlamellist og verði gullinbrúnt en soðni ekki í eigin safa. Ekki lengur rauð paprika. Til að ná skinninu af papriku er best að brenna það og láta paprikuna svitna í lokuðu íláti. Skafa svo brunarústirnar af. Af þessu kemur líka ljómandi reykt bragð í kássuna. Með kássunni er hægt að bjóða allt frá spagettí og hrísgrjónum upp í standandi mat með tortillum, flögum eða brauði. Ostur, sýrður rjómi, gvakamóle, kóríander og steinselja skemma ekkert heldur. Úr ofninum. Potturinn með kássunni getur verið í ofninum í marga klukkutíma við miðlungs hita. Kannski 130 gráður eða svo. Best er hún þó upphituð dagana eftir. Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur Villijurtir Lamb Islandia Grískt lambakrydd Lambakrydd úr 1001 nótt Kryddblöndur á páskalambið

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.